Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 12

Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 12
lifnaði þá fyrst yfir honum, þegar ég sleit samræðunum með því að fá honum eitthvert verkefni, bað hann að fara og sendast eitt- hvað fyrir mig. Að lokum varð ég jafnvel sannfærður um, að ég veitti honum ánægju með þessu. Hann var hvorki hávaxinn né lágvaxinn, hvorki góður né slæmur, hvorki greindur né heimskm', hvorki ungur né gam- all, hann var ofurlítið bólugrafinn með Ijós- leítt hár. Um hann var eiginlega aldrei hægt að segja neitt ákveðið. Eitt var þó: að því er ég komst næst tilheyrði hann sama félags- skap og Sírotkín, og í tölu þeirra manna lenti hann einungis vegna þess, hve hann var bæld- ur og kúskaður. Stundum gerðu fangarnir gys að honum, einkum fyrir það að hann skyldi „skipta“, þegar hann var á leiðinni með öðr- um dæmdum til Síberíu, og að hann skyldi láta kaupa sig til þess fyrir rauða skyrtu og eina rúblu í reiðu fé. Og svo hlógu þeir að því, hve þetta var auvirðilega lítið sem hann hafði selt sig fyrir. Að ,,skipta“ var það kall- að þegar menn skiptust á nöfnrnn og þar af leiðandi einnig refsidómi. Hve undarlegt sem þetta kann að þykja, þá er það nú samt sem áður satt, og í minni tíð var siður þessi enn í fullu gengi meðal fanga sem sendir voru til Síberíu. Fyrst í stað átti ég mjög bágt með að trúa þessu, þar til ég varð vitni að því sjálfur. Og nú skal sagt á hvern hátt þetta fór fram. Setjum svo að hópur fanga sé á leið til Síberíu. Þar ganga allir saman, þeir sem eru dæmdir til nauðungarvinnu, vinnu í verk- smiðju eða reknir í útlegð. Einhvers staðar á leiðinni, segjum í Permsk-umdæmi, óskar einhver fanganna að „skipta" við einhvern annan. Við skulum segja að einhverjum Mik- hailov sem dæmdur hefur verið fyrir morð eða einhvern annan meiriháttar glæp sé það mjög á móti skapi að vinna nauðungarvinnu í f jölda mörg ár. Setjum sem svo, að hann sé slóttugur náungi sem veit að hann er glat- aður maður, þá fer hann að svipast um eftir lítilmótlegum, kúskuðum og bældum manni í hópi félaga sinna, einhverjum sem dæmdui hefur verið til tiltölulega vægrar refsingar: annað hvort til vinnu í verksmiðju í nokkur ár, til útlegðar eða jafnvel nauðungarvinnu, en þó til skemmri tíma. Loksins uppgötvar hann Súsílov. Súsílov á til þjónustufólks að telja og er aðeins sendur í útlegð. Hann er bú- inn að ganga á annað þús. mílur, vitaskuld án nokkurs kópeka, því Súsílov getur aldrei átt peninga, — gengur þreyttur, örmagna, hefur ekki annað fyrir sig að leggja en þann matarskammt sem föngunum er ætlaður, án þess að fá nokkurntíma góðan bita, klæðist ekki öðru en venjulegum fangabúningi og þjónar öllum fyrir vesæla koparmynt. Mikha- ilov fer að tala við Súsílov, leitar eftir félags- skap hans, stofnar jafnvel til vináttu við hann og fyllir hann svo að síðustu í einhverjum án- ingarstaðnum. Loks stingur hann upp á því við hann, hvort hann vilji ekki ,,skipta“? Það er nú svo með mig, segir Mikhailov, að ég á að fara í nauðungarvinnu og ekki nauðungarvinnu, heldur í einhverja „sérstaka deild“. Nauðungarvinna er það að vísu, en þó alveg sérstakt og ku vera skárra.... Hvort þeir ættu ekki að ,,skipta“? Súsílov er orðinn drukkinn, hann er einföld sál og fullur þakklætis fyrir þá vinsemd sem Mik- hailov sýnir honum, og þess vegna hafnar hann ekki þessari tillögu. Þar að auki hefur hann þegar heyrt á félögum sínum að hægt sé að skiptast á nöfnum, hann hefur heyrt að hinir geri það, og þá getur ekki verið neitt óvanalegt eða ofboðslegt við það. Þetta verð- ur að samkomulagi hjá þeim. Hinn samvizku- lausi Mikhailov notfærir sér ótrúlega ein- feldni Súsílovs og kaupir af honum nafn hans fyrir rauða skyrtu og eina rúblu í peningum sem hann fær honum í votta viðurvist. Morg- 10

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.