Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 24

Birtingur - 01.04.1956, Blaðsíða 24
og það verður 'ævinlega nokkur hula yfir því hvernig dagur og nótt ganga yfir þjóðirnar. En þetta getum við sagt: það var liðið undir vetrarlok er þú gekkst fram á sjónarsviðið, Jónas; og voryrkjurnar biðu. Tíminn þarf að vera sérstaklega búinn 1 haginn til þess að stórmenni fái notið sín; en hitt er síðan einkenni mikils manns að hann skilur eigi aðeins stafnu tímans, heldur sveigir hana og á nokkurn hátt að hugsýn sinni: rís af öldinni og hækkar hana. Og þau voru örlög þín, Jónas, að fæðast á batnandi öld og efla stefnu hennar í vöku og draumi. Þú gafst okkur sjón, heyrn, ilman, smekk og tilfinn- ingu sem við höfum búið að í 120 ár. í þér endurfæddist þjóðin. Þú og þínir félagar skild- uð glögglega. skyldu lifandi manns við tím- ann sem hann lifir; ég vona þú forlátir mér, þó ég rifji upp fáein orð sem þið rituðuð í 1. árgang Fjölnis, um hlutverk tímarita: „Þau eiga að vaka yfir timanum, og hafa gát á, hvaða stefnu hann muni taka, dæma viðburð- •ina eftir reglum skynseminnar, vara við því illa, áður en það kemur fram, og sýna hvern- ig því verði tálmað, en hinu góða til vegar komið. Þau styrkja lesandann til að átta sig á margbreytni viðburðanna, og gjöra hann að manni síns tíma, eins og vera byrjar“. Svona mikið lá ykkur á hjarta, Jónas, og svona al- tæk var sýn ykkar. Við voraim ekki komin nema skammt áleiðis, er þú kvaddir; en hug- sjón þín hélt áfram að hafa verkan. Islenzk sjálfstæðisvitund er komin frá þér og þín- um félögum. Og svo hélztu fram málstað feg- urðarinnar, sem hafði legið margar aldir í þagnargildi, að síðan kemur þú okkur æ í hug er við tökum okkur nafn hennar í munn. Veit þá engi, að eyjan hvíta / á sér enn vor .. . Þú vissir, Jónas, hverju fram mundi vinda eftir þinn dag. Þú sást í hug þér baráttuna sem beið. Og skildir þú ekki hvernig þið fé- lagar voruð framherjar nýs lífs á Islandi? Þið þekktuð Jón Sigurðsson, hinn góða og hvíta ás, sem varð fremstur Islendinga eftir ykkur Tómas og skildi með hverri taug að sjálfstæði er hin fyrsta grein með giftusamri þjóð. Án frelsis helzt lífið í þjóðunum ekki vakandi. Þú hefðir glaðzt að fylgjast með þeirri baráttu sem háð var þrotlaust heila öld eftir brottför þína. Hún var alltaf erfið, Jónas; en í sannleika var hún aldrei tvísýn, því að andi tímans var okkur hliðhollur — þessi dularfulli andi sem er eins og guð: ó- sýnilegur og þó hvarvetna nálægur. Regn- þungan dag fögnuðum við sigursælum úrslit- um á vellinum bjarta, studdum bergi og djúpi, eins og þú kvaðst forðum. Island hafði sokkið djúpt, en nú var það hafið til æðri dýrðar. Það væri ljúft að mega ljúka þessum línum í minningu um þann dag á Þingvelli. Svo má þó ekki verða; það er hryggð mín sem leiðir mig á fund þinn, Jónas. Á Islandi hefur svo mörgu hnignað eftir þennan sólarlausa sól- skinsdag. Skýin hafa reynzt meira táknandi um það, sem í vændum var, en ljóminn í huga okkar þar á vellinum við ána. Skjótt .hefur sól brugðið sumri; það er engu líkara en haustið hafi aftur komið yfir Island. Þú renn- ir grun í hvað ég hef einkum í huga: óboðnir gestir hafa setzt upp í landinu okkar fagra; síðan finnst okkur við ekki aðeins hafa týnt frelsinu, heldur einnig og enn fremur fyrir- gert þeim siðlega mætti sem býr í hugsjón lítillar þjóðar um frið með öllum mönnum. Og einmitt þessa dagana er lagt hart að okkur að trúa því að land okkar, farsælda frónið, sé of fátækt til að við megum una hér lífi án aðstoðar auðugri þjóðar. Drottinn minn og guð minn — hvað veldur slíkum firnum, Jónas? Það er eins og að vera fluttur þrjár aldir aftur í tímann, þegar við vorum að deyja. Þú ortir einusinni um Alþing, þar sem tómir dauðir menn sætu, naha naha. Það er- indi hefði mátt koma okkur oft í hug næst- 22

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.