Ritmennt - 01.01.2005, Page 50

Ritmennt - 01.01.2005, Page 50
JÓN AÐALSTEINN JÓNSSON RITMENNT í góðan stand. Sjölvur var hann sundingur (?) og minntist, at eitt Himmalbræv hevði hingið i Gomlustovu. - Tá ið hann visti at langomma min, Oluvina Hendriksen, f. Olsen (3.8.1861 - d. 1950), Skúgvi, var av Skarvanesi spurði hann meg um, eg hevði hoyrt um nokoð Himmalbræv. - Nú vildi so væl til, at ommusystur min, sum var flutt til Havnar ofta hevði vitjað inn til mommu mina, nú var hon deyð, men maðurinn Jákup Heinesen, ættaður úr Mikinesi. var ofta inni á golvinum. Jú tey hövdu Himmalbrævið, sum hevði hingið Niðri í Búð í Skugvi. Tað var gaman i að lána það. Eyðun fekk so eitt eintak, sum nú hongur i Gomlustovu og vit eitt. Upprunabrævið hevur einka- sonurinn hjá Jakúp Heinesen, Hans Elias Heinesen i Hovn." Mér þykir sérstakur fengur í að hafa feng- ið fregnir af þessum færeysku himnabréf- um, sem eru nákvæmlega eins, og þá ekki sízt vitneskju um það, að himnabréf hangir enn uppi í húsi þar í eyjunum sem vernd- argripur þess og þeirra, sem þar búa. Hins vegar kemur ekki beinlínis fram í umsögn Steinbjörns eða Jóhans Hendriks, að hve milclu leyti frændur okkar í Færeyjum leggja enn trúnað á himnabréfið. Þar sem himna- bréf hangir upp í stofunni í Skarfanesi, virð- ist samt ekki of djarft að álykta sem svo, að þeir hafi enn einhverja trú á áhrifamætti bréfsins. Þá er ekki ólíklegt, að himnabréf séu eða hafi ekki verið með öllu ókunn á Hjaltlandseyjum og í Orkneyjum. Jóhan Hendrik hefur haldið uppi spurnum fyrir mig á Hjaltlandi um þess konar bréf, en án árangurs. Um Orlcneyjar hef ég enn engar heimildir. Yel má vera, að himnabréf séu enn eitt- hvað á ferðinni meðal fólks í ýmsum lönd- um, en hér er bein sönnun þess fengin frá Færeyjum. Þá má einnig minna á það, sem Vejlager segir hér framar um trú á slík bréf á Jótlandi árið 1931, þar sem beinlínis er telcið fram, að sendandi bréfsins hafi bæði afritað mörg slík bréf fyrir fólk og eins feng- ið reynslu um áhrifamátt bréfsins. Aftur á móti er ekki ósennilegt, að þeir hafi verið margir í Danmörku, sem lögðu ekki trúnað á boðskap bréfsins, og Vejlager ef til vill þess vegna ekki viljað nafngreina heimild- armann sinn. Með hliðsjón af þeirri vitneskju, sem ég hef fengið frá Færeyjum, er eiginlega óþarfi að birta hér texta færeyska bréfsins, enda er hann næstum samhljóða danska himna- bréfinu frá Haderslev. Er næsta líklegt, að önnur þau himnabréf, sem til hafa verið í eyjunum, hafi verið á dönsku og sams lconar að efni og orðavali. Virðist þess vegna vera ljóst, að Færeyingar hafi sótt himnabréf sín óbreytt beint til Danmerkur. Rit Ólafs Davíðssonar um himnabréf í tengslum við galdrastafi í ritum á 17. öld Ólafur Davíðsson, náttúrufræðingur og þjóðháttasafnari, samdi á námsárum sínurn í Kaupmannahöfn í lok 19. aldar mikið rit um galdramál á íslandi, sem hann nefndi Galdur og galdramál á íslandi og hlaut fyrir verðlaun úr Gjafasjóði Jóns Sigurðssonar árið 1901. Sjálft kom ritið hins vegar ekki fyrir sjónir almennings fyrr en löngu síðar 46
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.