Ritmennt - 01.01.2005, Page 73

Ritmennt - 01.01.2005, Page 73
RITMENNT MUNNUR SKÁLDSINS þurft að horfa framan í dauða og vansæmd á hverju andartaki. Við hirðina þarf hver og einn að gæta stöðu sinnar af hörku og víða glittir í þá hugmynd að heiður eins hljóti að vera á kostnað annars.12 Hirðsamfélagið, sem lýst er í þessari sögu, er þannig þrungið spennu og allir eru stöðugt á varðbergi. í Morkinskinnu er norsku hirðinni iðu- lega lýst sem harkalegu samfélagi þar sem níðst er á þeim sem minna mega sín. Þó að þar sé reynt að lýsa tiltölulega nýliðnum tíma - atburðum sem gerast 50-200 árum áður en sagan er talin sett saman - minn- ir samfélagslýsingin iðulega á það hvernig hirðum forsögulegra konunga er lýst í forn- aldarsögum. í Hrólfs sögu kralca eru það einkum berserkir konungs sem sýna nýjum hirðmönnum yfirgang og ójafnað, skora þá á hólm, og eina undankomuleiðin er að lúta þeim og viðurkenna yfirburði þeirra. í sögunni leynir sér eklci að berserkirnir eru fulltrúar gamals og ruddalegs tíma og eiga ekki vel heima í þeim riddarasagnaanda sem setur svip sinn á söguna.13 En það má einu gilda hvort ójafnaðarmennirnir eru kallaðir berserkir. í Morkinslcinnu er lýst norsku hirðsamfélagi sem virðist ekki síður ógreitt inngöngu, og þar sem þeir sem eru á fleti fyrir ráðast harkalega að nýjum mönn- um, ekki síst ef þeir finna á þeim veik- leikamerki.14 Harkan eykst eflaust frelcar en hitt vegna þess að samfélagið er sveigjanlegt, og virð- ing manna getur breyst hratt frá einum degi til annars. I frásögn Morkinskinnu eru oft- ast fleiri en einn konungur og samkeppni milli þeirra. Konungur er ekki einvaldur, og ýmis dæmi eru þess að ltonungum sé steypt ef þeir gæta ekki hófs. Samt er konungur efstur á tindi valdsins og völd hans eru eklci dregin í efa. Hirðsiðir eru þó engan veginn jafn strangir og síðar varð. Konungsvaldið er persónulegra, ekki eru reglur um hvaðeina eins og síðar gerðist heldur skipta smeltk- ur og slcoðanir hvers konungs meira máli. Þannig má segja að miðaldakonungar hafi í senn haft meiri og minni völd en einvalds- konungar árnýaldar. Völd þeirra náðu vissu- lega skemmra en þau voru persónulegri.15 Þegar Haraldur harðráði er konungur gefur persónuleiki hans tóninn um hirðsiði. Haraldi er lýst sem vitrum og sterkum konungi sem fellur mönnum sínum vel í geð enda fylgja þeir honum að lokum út í bráðan dauðann. En hann er einnig hvatvís, óþolinmóður og skapbráður, oft grimmur og hefnigjarn, og hjá honum gætir iðulega öfundsýki. Leið hans til valda var allt annað en bein, og ef til vill er hann þess vegna stöðugt á varðbergi. Þetta óöryggi getur stundum grafið undan visku og styrlc hans, 12 ÞettatelurHelgiÞorlákssonekkihafaveriðalmenna skilgreiningu á virðingu á 13. öld „Virtir menn og vel metnir," Sæmdarmenn: XJm heiður á þjóð- veldisöld. Reykjavík 2001, bls. 15-22 (einkum bls. 17—18) en ég hef bent á að þetta kunni eigi að síður að vera skilningur sumra persóna í Morkinsltinnu (Staður ínýjum heimi, bls. 138). 13 Fornaldarsögur Norðurlanda. Guðni Jónson og Bjarni Vilhjálmsson gáfu út. Reykjavík 1944, bls. 30-38 og 56-65. 14 Hreiðars þáttur heimska er gott dæmi um þetta (sbr. Stað í nýjum heimi, bls. 137-38) enda fjallar hann um íslenskan grænjaxl við hirðina. 15 Hér sæki ég einkum til félagsfræðingsins Norberts Elias, The Civilizing Process: The History of Man- ners and State Formation and Civilization. Edmund Jephcott þýddi. Oxford o.v. 1994 (frumútg. Úber den Prozess der Zivilisation. Basel 1939), einkum bls. 345-89 en einnig bls. 314-34. Sjá einnig Stað í nýjum heimi, bls. 109-47. 69
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Ritmennt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.