Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2002, Blaðsíða 25

Freyr - 01.11.2002, Blaðsíða 25
talsverðar og bera vott um að bjartsýni ríkir í greininni. Þær valda þó áhyggjum til lengri tima litið í ljósi þess að hluti þeirra er lítt arðbær og að þær eru að stærstum hluta íjármagnaðar með lánum. Af þessu leiðir að beita þarf aðhaldi í rekstri búanna á ár- inu 2002 og eftir föngum að leggja aukna áherslu á niður- greiðslu skulda. Tafla ö.Fjárfestingar á sérhæfðum kúabúum 2000 og 2001 samkvæmt uppgjöri búreikninga (í þúsundum króna á verðlagi hvers árs) 2000 2001 Bústofn 59 36 Vélar og taeki 1.643 1.117 Ræktun 26 19 Jörö 440 186 Byggingar 561 355 Greiðslumark 1.266 1.431 Alls 3.994 3.145 Áföll í fððurframlelðslu Síðustu ár hafa dunið yfir ýmis áföll í fóðurframleiðslu í Evrópu. Ástæður þess hafa verið vanþekking, eða skortur á innsæi, kæruleysi og e.t.v. í ein- staka tilvikum vísvitandi slæm vinnubrögð. Þarna má greina þrjá ráðandi þætti sem gæta þarf að hráefnið, framleiðsluaðferðir og meðferð á fóðrinu. Til að koma í veg fyrir viðlíka áföll í framtíðinni þarf að átta sig vel á því sem gerðist. Kúarida Nú er almennt viðurkennt að uppruna kúariðunnar megi rekja til þess að nautgripir voru fóðrað- ir með kjötmjöli sem innihélt svo- kölluð prion. Þau urðu til við framleiðslu á kjötmjöli úr riðu- sýktu sauðfé þar sem ekki var gætt fullrar varúðar við fram- leiðsluna (of lágur hiti eða of stuttur suðutími). Veikin kom upp í Bretlandi og eftir á má spyrja hvort sjá mátti þetta fyrir. Því verður ekki svarað en í mörgum öðrum löndum ESB höfðu hræ af búfé verið notuð í kjötmjöl allt fram til ársins 1999 án þess að upp kæmi nautariða. Díoxín í fóðri Díoxín í fóðri uppgvötaðist við reglubundið eftirlit á mjólk í Þýskalandi. Magnið var innan leyfilegra marka en þó svo hátt að reglur mæltu fyrir um að það skyldi rannsakað. Rannsókn sýndi að díoxínið stafaði frá fóðri úr berki sítrusávaxta frá Brasílíu, þ.e. appselsinum, sítrónum eða greipaldinberki. Þetta hráefni er þurrkað og selt m.a. til ESB- landa og er notað í fóður jórtur- dýra. Við þurrkum barkarins er bætt við leir til að fá betri áferð (struktur) á mjölinu. í þetta skipti var leirinn aukaafurð frá efnaiðn- aði og innihélt díoxín eða mynd- aði díoxín við þurrkunina. Þegar þetta gerðist, vorið 1998, voru ekki í gildi neinar sameiginlegar reglur um leyfilegt magn af díoxín í fóðri í löndum ESB en úr því hefur síðan verið bætt. Næsta díoxínáfall gerðist um 10 mánuðum síðar. Truflanir á framleiðslu útungunarstöðvar í Belgiu gaf dýralæknum grun um að eiturefnið PCB væri í fóðrinu. Rannsókn á hænum, eggjum og fóðri staðfesti þennan grun, jafn- framt því sem magn díoxíns var einnig hátt í sýnunum. í fram- haldinu kom í Ijós að díoxin- mengað fóður hafði einnig verið notað í svína- og kjúklingarækt á stóru svæði i Hollandi og Belgiu. Ástæðan var sú að verksmiðja, sem framleiddi fóðurfita, hafði tekið við PCB-mengaðri fitu sem komist hafði inn í framleiðslufer- ilinn en því verður aldrei svarað hvort þaó gerðist fyrir slysni eða vísvitandi. SORP í KJÖTMJÖLI Það gerðist í Frakklandi fyrir tveimur árum að þurrkað botnfall frá frárennslistanki kjötmjölsverk- smiðju komst í framleiðsluna. í tankinn hafði einnig verið leitt klóak verksmiðjunnar. Þetta vakti að vonum hörð viðbrögð fjöl- miðla og almennings. Hins vegar var hér ekki um smiðhættu að ræða þar sem botnfallið var sótt- hreinsað. Hér má nefna að áhugi á notk- un á úrgangi til fóðurs var fyrir hendi fyrir um 30 árum. Þá voru uppi hugmyndir að nota svínaskít í fóður jórturdýra. Ekkert var að því í okkar heimshluta en vitað er að það er gert í öðrum heims- hlutum. (Unnið upp úr Kungl. Skogs- og Lantbruksakademiens Tidskrift nr. 9/2002, bls. 33-38. Rávarar í foderindustrin, erindi eftir Kjell Larsson, Fil. Dr.). Freyr 9/2002 - 25 I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.