Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2002, Blaðsíða 45

Freyr - 01.11.2002, Blaðsíða 45
leiðni vinnuafls í landbúnaði hafi aukist um 6% á ári. Framleiðni af stærðargráðu sem þessari byggist á því hversu mikil og ör þróun hefúr átt sér stað á tækni- búnaði sem komið hefur í stað vinnuafls. Utlit er fyrir að þessi þróun muni í nokkrum mæli halda álfam á næstu árum. Enn- fremur er líklegt að laun hækki umfram verðbólgu. Affamhald- andi hækkun laima er óhjákvæmi- leg vegna minnkandi hlutfalls ófaglærðs starfskrafts á búunum, ásamt meiri eftirspum eftir vinnu- afli miðað við það sem í boði er. Eitt af síðustu tæknilegu stökkum nútímans í mjólkurffamleiðslunni er mjaltarinn sem sparar bæði vinnuafl og tíma við mjaltimar. Framleiðslukostnaður MIÐAÐ VIÐ FJÁRFESTINGU FRÁ GRUNNI Mikill munur er á ffamleiðslu- aðstöðu til mjólkurframleiðslu í Danmörku og spannar allt frá nýjum byggingum til gamalla og Tafla 2. Útreikningar á þróun framleiðslukostnaðar mjólkur (4,2% fita og 3,4% prótein) fram til ársins 2010, háð bústærð, dkr. á lítra Bústærð. búsund lítrar Ar 80 160 240 320 400 500 2001 2,48 2,27 2,16 2,11 2,07 2,04 2010 2,10 1,94 1,85 1,81 1,78 1,75 lúinna með litla sem enga nú- tímatækni. í kringum 1990 stóð mikill hluti ffamleiðenda uppi með siðamefnda ástandið. Frá þeim tíma hefúr mikil breyting orðið á og er staðan nú orðin sú að a.m.k. 40% kúnna er í yngri fjósum en fimm ára. Unnt er að áætla þróunina sem mun eiga sér stað á framleiðslu- kostnaði á mjólk ffam til ársins 2010 með því að horfa til frjálsr- ar verðmyndunar. I töflu 2 má sjá framleiðsluverðið út frá þeim forsendum árið 2010, auk þess sem bústærðin er tekin með í myndina. I útreikningunum er gert ráð fyrir aukningu í ffamleiðni vinnuafls um nettó 10%, þ.e. leiðrétt er fyrir nýrri vinnuspar- andi tækni. Þama er ekki gert ráð fyrir ávöxtun fjármagns eða afskriftum á kvóta. Leiga vegna lands, og þar með öflun gróffóð- urs, er tekin með í útreikningana og metin út frá væntanlegri upp- skem. Auk þess er gert ráð fyrir aukningu á nyt sem nemur 2% á ári. Tekjur vegna kjötsölu og verðmæti mykjunnar er einnig tekið með í uppgjörið. (Erindi firá ráðstefnu um naut- griparcekt sem haldin var í Hern- ing í Danmörku 25. og 26. fiebrú- ar 2002, á vegum Landbrugets Rádgivningscenter). Moli Streita eykur SLYSAHÆTTU í Danmörku hefur farið fram rannsókn á samhengi streitu og slysa í landbúnaði. Þar kom fram að streita er þar helsti orsaka- valdurinn. Ekki var um að ræða að þeir bændur sem tóku þátt í rannsókninni væru illa haldnir af streitu, heldur voru þetta bændur upp og ofan, sem stunduðu starf sitt af kostgæfni en urðu öðru hvoru fyrir streituálagi. Undir þeim kringumstæðum kom í Ijós að tiltölulega lítið streituálag jók verulega slysahættuna. Af þáttum, sem einkum juku áhættuna voru, fjárhagsáhyggjur mest áberandi, en aðrir þættir, sem þar komu í Ijós, voru aukið vinnuálag og ónæði við störfin. Rannsóknin leiddi einnig í Ijós að bændur sem vönduðu verk sín og gættu vel að öryggisatrið- um voru í minni áhættu að verða fyrir slysum en hinir þegar streituálagið jókst. Það gerðist jafnvel þótt það drægi úr athygli þeirra á slysahættunni þegar streitan jókst. Þegar streitu- ástand skapast eru menn fyrst og fremst uppteknir af streitunni. Bændur, sem búa við tiltölu- lega mörg streitueinkenni og fylgjast jafnframt ekki með öryggisatriðum á búum sínum, þar með talin öryggisþáttum vél- anna, eru í fimmfaldri hættu á að verða fyrir slysum en þeir sem búa ekki við streitu og gæta að öryggismálunum. Danir hafa einnig leitað leiða til að draga úr streitu. Dönsk verk- smiðja sem framleiðir steyptar einingar átti við það ástand að glíma að 8% af framleiðslunni stóðst ekki gæðakröfur. Verk- smiðjan bauð starfsmönnum sín- um upp á hugleiðslunámskeið til að bæta einbeitingu þeirra. Hálfu ári síðar hafði gölluðum einingum fækkað í 3%. í land- búnaði getur þó enn meira verið í húfi þar sem er líf og limir fólks. Bændum hefur því verið bent á að 15 mínútna kyrrðarstund á dag með hægri en djúpri öndun geti komið að gagni gegn streitu. (Landsbladet nr. 44/2002). Freyr 9/2002 - 45 I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.