Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.1995, Page 4
alls níu bindi. Ari Gíslason, heið-
ursfélagi Ættfræðifélagsins, sendi
félaginu einnig árnaðaróskir og
kveðj ur í tilefni afmæl isins. Þá gaf
Landsbanki íslands, fyrir milli-
göngu Sverris Hermannssonar
bankastjóra, Ættfræðifélaginu for-
láta gestabók með trékápu, útskor-
inni með merki félagsins. Var bók-
in að sjálfsögðu vígð á afmælinu.
Sönggleði
Áður en að útnefningu heiðurs-
félaga kom sungu söngkonumar
Ágústa Sigrún Ágústsdóttir og
Harpa Harðardóttir nokkur þjóð-
lög við undirleik Reynis Jónas-
sonar og voru þau kynnt ti 1 sögunn-
ar með eftirfarandi vísukomi:
Fræði og menningfléttum saman,
fegurð, söng og œttargaman,
Agústa og Harpan há
hœsta tónaflóði ná.
Reynir undir leikur lag,
lýkur síðan þessum brag.
Þau oss gleðja þennan dag,
þjóðar bœta ættarhag.
Heiðursfélagar
"Á 50 árum hafa margir lagt
hönd á plóginn í Ættfræðifélaginu
og unnið ættfræðinni ótal stundir
affómfýsi ogeldmóði", sagði for-
maður félagsins þegar komið var
að útnefningu heiðursfélaga.
"Seintverðurþökkuðöll súvinna,
og fátækleg verða orð og athafnir
þegar litið er til afreka margra
þeirrasem helgaðhafaættfræðinni
líf sitt, áhuga, krafta og tíma. Á
þeim 50 árum sem Ættfræðifélagið
hefur starfað hafa tí u einstakl ingar
verið gerðir að heiðursfélögum,
en það er sú mesta viðurkenning
sem félagið getur veitt fyrir vel
unnin störf. í dag bætast tveir í
hópinn, þeir Arngrímur Sigurðs-
son, framhaldsskólakennari, og
Þorsteinn Jónsson, útgefandi."
Þakkaði formaðurinn Amgrími
fyrir hans störf í þágu félagsins og
ættfræðinnar en hann sat um árabil
í stjórn félagsins, hannaði merki
þess og gaf félaginu og var m.a.
fyrsti ritstjóri fréttabréfsins.
Fáir hafa átt eins stóran þátt í
að glæða ættfræðiáhuga lands-
manna og Þorsteinn Jónsson, með
sinni viðamiklu útgáfustarfsemi,
sagði formaðurinn. Þar sameinar
hann þekkingu, fegurðarskyn og
einstaka smekkvísi. Auk þess er
hann einn þeirra fyrstu sem gerir
konum og körlum jafnhátt undir
höfði í niðjatölum sínum. Afhenti
hún þeim Arngrími og Þorsteini
síðan skrautrituð heiðursfélaga-
skj öl og þakkaði þeim þeirra mikla
framlag til ættfræðinnar.
Gullmerki
I tilefni 50 ára afmælisins lét
stjórnin útbúa barmmerki félags-
ins, ættartré, og verðurþaðtil sölu
innan tíðar. Einnig voru útbúin
gullmerki og voru fimm félagar
sæmdir því á hátíðarfundinum
fyrir störf sín í þágu ættfræðinnar
ogÆttfræðifélagsins. Fyrsta gull-
merkið var veitt höfundi og hönn-
uði merkisins Arngrími Sigurðs-
syni. Hinir fjórir voru Þorsteinn
Jónsson, viðamesti útgefandi
niðjatala á Islandi, Jón Valur Jens-
son, f.v. formaður félagsins, fyrir
útbreiðslu ættfræðiþekkingarinnar
árum saman með kennslu, bóka-
dreifingu og í ræðum og ritum,
Eggert Th. Kjartansson og Hólm-
fríður Gísladóttir en þau sáu um
útgáfu fyrsta heftis af Manntalinu
1910.
Ættfræðifélagið færði einnig
eftirtöldum félögum alúðarþakkir
fyrir þeirra vinnuframlag og ó-
eigingjarnt starf við Manntalið
1910 og voru viðstöddum afhentir
blómvendir í þakklætisskyni:
Ásthildur G. Steinsen
Guðbjörg Sigfúsdóttir
Gunnar Hvammdal
Klara Kristjánsdóttir
Kristín Guðmundsdóttir
Sigríður Guðmundsdóttir
Sigurður Sigurðarson
Sólveig Guðmundsdóttir
Hátíðarræða
Að viðurkenningarathöfninni
lokinni sungu þær stöllur Ágústa
Sigrún og Harpa á ný, að þessu
sinni létt, gömul dægurlög við
harmonikkuundirleik Reynis
Jónassonar. Svo mikil var söng-
gleðin að flestir voru farnir að
dilla sér í sætunum og tipla með
tánum og hefðu sjálfsagt fengið
sér snúning ef nokkurt gólfpláss
hefði verið.
En þá var komið að hátíðarræðu
fundarins. Hana hélt prófessor
Sigurður Líndal af sinni alkunnu
snilld. Varhúneinstaklegafróðleg
og efnismikil og tók ræðumaður
fundargesti með sér vítt og breitt
um liðnar aldir gegnum ættarflækj -
ur og lagaskyldur
(Ræðan er birt í heild sinni á öðrum
stað hér í blaðinu).
Þegar hér var komið sögu voru
menn orðnir kaffíþyrstir og hátíð-
arfundinum formlega slitið. Vitn-
aði fundarstjóri, Guðfmna Ragn-
arsdóttir, í hugarástand Andrésar
Björnssonar eldra þegar hann
kvað:
Atti égfyrrum áform glœst,
unga von sem gat ei ræst.
En nú er sú mín hugsjón hæst:
Hvenær verður étið næst.
Þvínæst lögðu menn til atlögu
við rjómapönnukökur og randa-
línur, kleinur og flatkökur með
hangikjöti og var mikið spjallað
og menn í hátíðarskapi.
Að kaffinu loknu skoðuðu
menn sýninguna langa stund en
héldu síðan með áætlunarbíl eða
eigin bílum að Dvergshöfða þar
sem hið nýja húsnæði félagsins
var skoðað. Áætlunarbíllinn skil-
aði síðan þeim sem það vi Idu niður
á Hlemm og var þá klukkan langt
gengin í sjö þennan hátíðardag.
Guðfinna Ragnarsdóttir
4