Hugur - 01.01.2007, Side 64

Hugur - 01.01.2007, Side 64
62 Gunnar Harðarson blasir við listamanninum (eftirlíkingarkenning), heldur þarf einnig að koma til handlagni listamannsins til að túlka áhrif hlutarins á sjónina (173). Málverk er því ekki einfold eftirlíking heldur kemur til skjalanna milliliður, listamaðurinn sjálfiir og ímyndunarafl hans. Og þegar upp er staðið er málverkið eða myndin orðin að summu af hagleik og ímyndunarafli listamannsins. Og þá er, eins og oft vill verða með hefðbundnar eftirlíkingarkenningar, stutt yfir í einhvers konar afbrigði af tjáningarkenningu. En Halldór fer þó ekki þá leið, heldur kýs hann að halda sig við eftirlíkingarkenninguna og líta á framlag hstamannsins fyrst og fremst sem spurningu um tækniþróun. Að vísu segir hann að því „betri sem listamaðurinn er, því svarnari óvinur er hann hinnar vélteknu myndar, sem byggir út allri ímyndun“ (174-175). En á móti kemur að „ljósmyndun, kvikmyndun og gagnmyndun (Rönt- gen) eru allar þróunarspor í sögu myndgerðar engu síður en hafskip er framfara- spor í sögu sjóferða ...“ (175). Til að gera langa sögu stutta má segja að eftir allflókna röksemdafærslu verði afstaða Halldórs til tækniþróunarinnar fremur afdráttarlaus. Listamaður sem notar blýant og pensil er einfaldlega að beita úreltum verkfærum. Þróun tækn- innar felst í því að gömul verkfæri verða úrelt og ný leysa þau af hólmi: Þau gera sama hlutinn og hin fyrri, en bara betur, þau koma með nýjar tæknilegar lausnir á ýmsum hagnýtum vandamálum. Léttivagn gegnir sama hlutverki og bifreið, því að flytja fólk milli staða, en bifreiðin gegnir þessu hlutverki betur en léttivagninn, kemst hraðar yfir og á þægilegri máta (163). Eins er um seglskip og eimskip: Hlutverk þeirra er hið sama, en eimskipið er fuhkomnara tæki en seglskipið. A sama hátt eru verkfæri myndlistarmannsins, blýantur og pensill, frumstæð í sam- anburði við ljósmyndavélina og kvikmyndavélina sem Halldór kallar fullkomin verkfæri. Gera má ráð fyrir að ástæðan fyrir því að þau eru fullkomnari sé sú að þau ná betur en blýanturinn eða pensillinn að búa til sjónræna eftirlíkingu af fyrirmyndinni (174-175). En tækniþróunin hefur ekki bara áhrif á sjálfa framleiðslu mynda. Tækniþró- unin breytir skilyrðum og möguleikum listrænnar sköpunar og þær breytingar koma fram á ýmsa vegu. Ein meginbirtingarmyndin felst í því að sérfræðiþekk- ing Ustmálaranna verður úrelt og almenningur fær í staðinn tæki sem auðvelt er í notkun og nær á einu andartaki fram hinu sama og listmálararnir með áralangri þjálfun. Þarna má sjá hina félagslegu vídd birtast í greiningu Hahdórs á mynd- listinni. Listmálarar búa til myndir handa þröngum hópi auðugra listaverkakaup- enda og þeir búa þessar myndir til með úreltum verkfærum, gefa þeim svo skáld- leg nöfn, setja upp hátt verð fyrir þær og setja á „langar hrókaræður um form og Hnur og litasamstillingu" (161). Á meðan þessu fer fram sækir almenningur kvik- myndahús og fer til ljósmyndara, en skiptir sér ekkert af listmálurunum; þetta er ódýrt og nýtt og felur í sér fagurfræðilega upplifun sem svarar til samtímans, en er ekki birtingarmynd eldri og úreltra þjóðfélagshátta. Halldór ræðir því næst framlag Ijósmyndarinnar til listarinnar. Ljósmyndin er það listform sem kemst næst því, að hans dómi, að svara til eðlis myndarinnar, sem er að vera eftirlíking. Þar tiltekur hann sérstaklega litljósmyndina, sem er, þegar ritgerðin er skrifuð, enn á þróunarstigi. Ljósmyndin sýnir útlit hlutanna
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.