Hugur - 01.01.2007, Page 159

Hugur - 01.01.2007, Page 159
Milli Guðs ogjjöldans 157 manna.“5 Greina má þijá þætti sem Róbert álítur mikilvæga hvað varðar gagnrýni hinna ótímabæru á 19. öldina: asann, fjöldann og náungakærleikann. Hvað fyrsta atriðið varðar vitnar Róbert (FA 78) í Dagrenningu Nietzsches: ,,[Ö]ld ,vinnunnar‘, það er að segja, hraðans, ósæmilegs og taugaveiklaðs flýtis, sem vill ,ljúka öllu‘ undir eins, þar með talið sérhverri gamalli og nýrri bók“.6 Svipaðan tón finnur Róbert hjáThoreau sem kýs að ganga einn með himnasmiðnum fremur en í fjöl- menni og bíða íhugull meðan hin „eirðarlausa, taugaveildaða, smásmugulega 19. öld þeysist hjá.“ (FA 27)7 Róbert álítur að þeir Nietzsche og Thoreau eigi það sameiginlegt með Ralph Waldo Emerson (1803-1882) ogjohn StuartMill (1806- 1873) „að vilja sporna við æsingi, flýti og þeim flautaþyrilshætti sem þeim finnst einkenna 19. öldina“ (FA 79). Hann finnur annan hraða í hugsjóninni um stór- mennsku eða mikillæti sem fjórmenningarnir hafi á öld fjöldans viljað endurvekja í anda Aristótelesar (FA 73).8 Stórmennskuhugsjón Aristótelesar „felur í sér ávís- un á annan hraða og aðra afstöðu til náungans en tíðkast nú á dögum. Megin- straumar í samtímanum eru fullkomlega á skjön við þessa hugsjón, og vandséð hvernig hún verður endurreist." (FA 83)9 Róberti virðist einkar mikilvægt að endurvekja mikillæti í þeim skilningi sem hér hefur verið lagður í það hugtak og eignaður hugsuðum 19. aldar. Á sama tíma virðist mér fátt fjarstæðara og gagnstæðara samtíma okkar. Ekki vegna þess að það stangist á við manngildishugsjón kristninnar eða aðra þætti í siðferðilegum hugarheimi nútímans heldur vegna þess að það gengur þvert gegn þeim lífsmáta sem flest okkar hafa tamið sér, lífsmáta sem fyrir löngu er orðinn að trúarbrögðum og hefur breiðst víða um lönd. (FA 83)10 Lesandanum er ekki sagt beinum orðum hver þessi sameiginlegi lífsmáti okkar sé - einhver kynni að halda að lífsmáti fólks í nútímasamfélögum sé afar fjölbreyttur - en við fáum þó vísbendingar á borð við þá að Thoreau beygi sig ekki undir þessa hugsjón samtímans í riti sínu Walden: „Ofugt við fjöldann hafi hann ekkert fram að færa handa fátækum. [...] Hann efast klárlega um að góðgerðarhjörðin sem predikar um mikilvægi náungakærleika sé í raun og veru fær um að hjálpa fátæk- 5 Nietzschc, Handan góðs og ills, þýð. Arthúr Björgvin Bollason og Þröstur Ásmundsson, Reykjavíle Hið íslenzka bókmcnntafélag, 1994, §210, §241; Scbopetihauer als Erzieher, §2; Werke in drei Bánden, ritstj. Karl Schlechta, Munchen: Hanser, 1954-56,3. bindi, s. 442, 431. Áherslur í tilvitnunum eru í frumtexta nema annað sé tekið fram. 6 Nietzsche, Morgenröte, formáli §5. Þýðing Róberts H. Haraldssonar. 7 Sjá H.D. Thoreau, „Walden", Walden and CivilDisobedience, New York: Penguin, 1983, s. 43-382, hér s. 378. ® Til einfoldunar nota ég stórmennsku og mikillati sem samheiti í þessari grein þótt vitaskuld sé blæbrigðamunur þar á. 9 I Tveggja manni tali (148) ræðir Róbert annað fornt fyrirbæri sem hann áh'tur erfitt að endurreisa; hann segir óraunhæft „að taka aftur upp fjölgyðistrú." 10 Jón Ólafsson hittir naglann á höfuðið þegar hann skrifar í ritdómi („Frjálsir andar fljúga hátt“, Lesbók Morgun- blaðsins, 26. feb. 2005) um Frjálsa anda: „Róbert kemst að þeirri mótsagnakenndu niðurstöðu að afar mikilvægt sé að endurreisa dygð stórmennskunnar en um leið ómögulegt, því að tíðarandinn leyfi það ekki“. Hins vegar segir Róbert það ekki bcinlínis „ómögulegt“ heldur að flest okkar hafi tamið sér lífsstíl sem torveldi sh'ka endurreisn. Róbert gæti að hætti Nietzsches bundið vonir við örfáa einstaldinga og að slíkum mönnum fari fjölgandi í framtíðinni. En þar sem Róbert cr orðfár um þessa að eigin sögn einkar mikilvægu endurreisn í ókominni framtíð yrði hann að skýra hugmyndir sínar betur til þess að leggja mætti mat á þær.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.