Sagnir - 01.04.1984, Blaðsíða 72

Sagnir - 01.04.1984, Blaðsíða 72
HALAVEÐRIÐ OG HEIMILI f VANDA hverjar breytingar urðu á högum ættmenna sjómannanna við fráfall þeirra. Ætlunin er að beina athyglinni næst að aðstandendum hinna látnu, afkomu þeirra og kjörum. Á viðbrögðum bæjar- yfirvalda í Reykjavík sést að þau hafa einnig haft talsverðar áhyggjur af þessu. Þann 4. mars, eða tveimur dögum áður cn leitar- skipin komu til Reykjavíkur, kom saman nefnd sem kosin hafði verið á fundi í bæjarstjórninni skömmu áður. Hlutverk hennar var að annast framkvæmd af hálfu bæjarfélagsins á opinberum ráðstöfunum út af mannskaða sem varð á skipunum Leifi heppna, Fieldmarshall Roberts [svo] og mótorbátnum Sólveig í ofviðrinu 7. og 8. febrúar eins og segir í gjörðabók nefndar- innar. Á fundinum voru teknar ákvarðanir varðandi minningar- athöfnina 10. mars og „minnst á samskot til hjálpar aðstandend- um“ cn ekkcrt ákveðið í þcim efnum. Auk nefndarmanna voru á fundinum þeir Sigurjón Á. Ólafsson formaður sjómannafé- lagsins og Ólafur Thors formaður útgerðarmannafélagsins. Það var þó ekki fyrr en á fundi nefndarinnar 7. mars, að tihögun söfnunarinnar var endanlega ákveðin. Að henni stóðu bæjar- stjórnir Reykjavíkur og Hafnar- Qarðar og þann 10. mars birtist þessi auglýsing í dagblöðunum: S a m s k oT til aöstaudeuda bjóuiauuAuuu. BœjaratjórÐir Reykjavikur o.í Haiaaríjaiðar gaDgaat 1 samrAöi viÖ (ulllrua útge:ÖarmauDa og njomauoa íyrir BaniHKotum til aóataadeaoa ijómaonauDA er íóru«t 7,—8. íeDr. Samakoiiu hiijaat kl. 4 J/i 8iöd. 1 dag, og veiðui þeim veitt viðtaka 1 baöum böokuuum og i apariBjo&i HatDaríjaiðar kl. 4 J/« — 7. Veiður þeeaum pen iog&sioínunum haldið opnum í þesau skyoi einu. Ioostæðueigeodur eiga kost a að taica ut ló til samskotauna a þessum tima, en að öðiu leyti (er ekki nein aígreiðsla íram. Þesa er íaatlega vænst, að aliir, sem það geta, leggi SKerí^sinu írnm þegar if dag. Þrátt fyrir þessi síðustu hvatn- ingarorð var greinilega gert ráð fyrir að menn yrðu ekki alveg svo fljótir að taka við sér, því einnig skyldi tekið við fé eftirleiðis. Rétt eftir næstu mánaðamót var síðan ákveðið að úthlutun sam- skotaQárins yrði í höndum fjög- urra manna nefndar sem skipuð yrði fuiltrúum úr bæjarstjórn Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, Sjómannafélagi Reykjavíkur og Félagi íslenskra botnvörpuskipa- eigenda. Skýrslurnar Á fyrsta fundi þeirrar nefndar, þann 15. maí 1925, var síðan borgarstjóra, scm var fulltrúi bæjarstjórnar Reykjavíkur í nefndinni, falið að útbúa eyðu- blað sem scnt yrði til aðstandenda sjómannanna til að afla upplýs- inga um kjör þeirra og þar með fjárþörf. Eyðublöðin voru scnd út og skiluðu sér flest inn til borgar- stjóra fyrir lok október. Á eyðublöðum þessum er spurt um nöfn, dvalarstaði og aldur allra er viðkomandi sjómaður kunni að hafa haft á framfæri sínu, efnahag þeirra og heilsu, svo og slysa- eða líftryggingu sjómanns- ins. Þá er loks rúm fyrir aðrar upplýsingar sem sá er útfyllti kynni að vilja veita nefndinni. Almennt mun talið að 68 ís- lendingar hafi farist í Halaveðr- inu. Hins vegar liggja aðeins fyrir skýrslur frá aðstandendum 61 sjómanns. Skýringar á þessu mis- ræmi eru ýmsar. Það voru 67 íslenskir sjómenn sem drukknuðu af togurunum tveimur og línu- bátnum Sólveigu, en einn maður lést af meiðslum um borð í Gull- fossi. Nefndin taldi ættingja hans ekki eiga rétt á styrk úr samskota- sjóðnum. Þá sóttu skyldmenni Qögurra sjómanna ekki um út- hlutun og einn virðist ekki hafa átt neina ættingja á lífi. Loks virðist skýrsla frá vandamönnum eins sjómanns hreinlega hafa týnst. En að hve miklu leyti er skýrsl- unum treystandi til að gefa rétta mynd af afkomu og eignum þeirra er hlut áttu að máli? Varla er nema cðlilegt að spyrja sem svo, hvort verið hafi tilhneiging til að gera minna úr eignum heimilis- ins en cfni stóðu til í von um meiri styrk. Því er helst til að svara að í því fámenni sem hér var á þessum tíma, hefur varla verið gerlegt að ganga mjög langt í þcssu efni, þótt vilja hefði ekki skort. í Reykjavík og Hafnarfirði var íbúafjöldi ekki meiri cn svo að auðvelt hefur verið að ganga úr skugga um að rétt væri talið fram ef grunur um annað kom upp. Það er því helst gagnvart skýrslum utan af landsbyggðinni sem ber að sýna nokkra varúð, þar sem aðhalds hefur ckki gætt eins mikið og í næsta nágrenni við aðsetur samskotanefndarinnar. Þetta haggar þó varla þeirri stað- reynd að óhætt mun að treysta skýrslunum í öllum meginat- riðum. í ljós kemur að ríflega helm- ingur hinna látnu var úr Rcykja- vík. Ur Hafnarfirði voru tíu en 20 voru af ýmsum stöðum á land- inu, langflestir af því vestan- verðu. Skráin sem nefndin gerði yfir hina látnu sjómenn leiðir í ljós, að nær undantekningarlaust voru þetta menn á besta aldri. Meðalaldur var rétt tæp 30 ár og einungis sjö þcirra voru eldri en 40 ára. Er því einsætt að fráfall þeirra hefur valdið óvissu um afkomu á Qölda heimila. Konur og börn Eins og áður hefur komið fram liggja fyrir skýrslur frá ættingjum 61 sjómanns. Af þeim voru 25 giftir, cn að auki var nokkuð um barneignir utan hjónabands eins og gengur og gerist; einar sjö 70 SAGNIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.