Sagnir - 01.06.1997, Blaðsíða 109

Sagnir - 01.06.1997, Blaðsíða 109
Stórabóla- hlutfall látinna í Álftaneshreppi. 40 35 30 <8 25 | 20 í 15 10 0 I Aldur Aldur Aldur Aldur Aldur Aldur Aldur 0-4 5-9 10-19 20-29 30-39 40-49 50-59 Aldurshópar Stöplarit sem upphajlegafylgdifyrirlestri Haraldar Briem. ' ■ % >60 um einhverjar upplýsingar um bæði frá plágunum og bólunni, þá einkanlega eyð- ing byggðar. Af þeim drögum við álykt- anir í átt við það t.d. að úr því að veruleg byggðareyðing virðist hafa orðið miklu langvinnari eftir plágurnar en bóluna, þá hafi þær væntanlega verið mun mann- skæðari en hún. Hins vegar afleiðingar sem við þekkj- um einungis á 18. öld og freistumst þá til að yfirfæra á 15.-16. öld.Til dæmis að hafi bólan ekki aukið verulega ójöfnuð í eignaskiptingu, þá hafi plágurnar varla gert það heldur. En allar eru þessar ályktanir varhuga- verðar, bæði af því að farsóttareðli sjúk- dómanna tveggja var ólíkt — þó að vissu- lega sé ýmislegt óljóst um hegðun plág- unnar á Islandi á 15. öld — og af því að ekki er víst að hin samfélagslega umgjörð hafi verið sambærileg. Þar skiptir aðallega tvennt máli: I samfélagi stórubólu voru barneignir aðallega verkefni húsmæðra, og í þeirra raðir komust konur að jafnaði nálægt miðju fijósemisskeiðinu, fýrir og eftir þrí- tugt, en margar þó aldrei.Viðkoma lands- manna var þá mjög næm fyrir öllum breytingum á hjúskapartíðni og giftingar- aldri kvenna, sem aftur valt að verulegu leyti á aðgangi fólks að jarðnæði. I þessu fólst raunar mikilvægt stýrikerfi fólks- Qöldans frá 17. öld og fram á hina 19. Bylgja fólksfjölgunar gat risið þegar sæmilega stórir árgangar kvenna höfðu tækifæri til að komast í húsmóðurstöðu á tiltölulega ungum aldri, en bylgjan var dæmd til að hjaðna þegar sú kynslóð kvenna komst úr barneign sem hafði bor- ið hana uppi. Þá fjölgaði heimilum með roskna húsmóður, þar sem að jafnaði var lítið um barneignir, en stórir árgangar ungra kvenna tepptust að vaxandi hluta í ófijórri hjúastétt. Þannig voru farsóttir og önnur ákvörð- unaröfl manndauðans alls ekki eins einráð um fólksfjöldamynst- ur Islands á 18. og 19. öld eins og al- gengt virðist vera i sögu mannkyns fýrir iðnbyltingu, heldur var breytileg fijósemi einnig miklu ráðandi í stýrikerfi semjafn- an stefndi að nokkuð ákveðnu sambandi fólksfjöldans við fjölda þeirra sveitaheimila sem fólk komst með góðu móti upp með að stofna. Mér hætt- ir alltaf til að ímynda mér að svipuðu máli hafi gegnt á 14.-16. öld, en vissulega er umhugsunarefni hvort þá var kannski miklu algengara að griðkonur ættu börn, annaðhvort innan hjónabands eða utan, þannig að tíðni barneigna hafi verið í ntinni tengslum við fjölda sjálfstæðra heimila. Líka er hugsanlegt að þá hafi konur komist í húsmóðurstétt miklu yngri að jafnaði, e.t.v. þannig að flestar konur hafi annaðhvort gifst á unglingsár- um eða piprað; a.m.k. þótti eðlilegt á miðöldum að bjargálna fólk gifti dætur sínar kornungar, og kann svipað að hafa átt við um öreigana líka. I annan stað réð það miklu um afleið- ingar stórubólu að hún gekk yfir land sem var tilfmnanlega ofsetið - ef ekki of- setið miðað við auðlindir, þá a.m.k. ofset- ið miðað við skipulag auðlindanýtingar, þ.e.a.s. miðað við fjölda bújarða. Að vísu voru nálægt tvær fjölskyldur að jafnaði á hveiju lögbýli fýrir bólu, og komu þar til tvíbýli, fleirbýli, hjáleigur og tómthús. En fjöldi þessara fýrirbæra, og þar með fjöldi mögulegra heimila í landinu, var treg- breytanlegur, og auk þess hafði þeim fækkað í harðindunum miklu við lok 17. aldar. Fyrir fólk í giftingarhugleiðingum var biðtíminn eftir jarðnæði þess vegna í lengsta lagi og hjúskaparhlutfall hvers aldursflokks ákaflega lágt. Segja má að fyrrnefnt stýrikerfi fólksfjöld- ans hafi verið stillt á „fulla ferð aftur á bak“ á fýrstu árum 18. aldar. í þessu efni hættir mér líka til að ímynda mér að svip- uðu máli hafi gegnt á íslandi um 1400, og jafnvel líka um 1490: þjóðin hafi verið fjölmenn, landið þröngt setið og margar fjölskyldur orðið að láta sér lynda tví- og fleirbýli, hjáleigur og tómthús. Rann- sóknir Arna Daníels Júlíussonar, sem hann hefur sagt okkur undan og ofan af, hníga mjög í þessa átt hvað varðar stöð- una um 1400, en heimildir eru þó lang- mest bundnar við fjölda lögbýla og mik- illi óvissu háð hvernig áætla skuli fjölda heimila umfram lögbýhn. Enn óvissara er það kringum 1490, heimildir jafnvel enn snautlegri og ekki augljóst að fólksfjöldi hafi komist í sanrt lag eftir áfall fýrri plág- unnar. Hvorki Jón Olafur Isberg né Árni Daníel myndu telja það sennilegt, þó að Gísli Gunnarsson hafi sýnt hér með reikningum að ekki þyrfti neitt sérlega öra fólksfjölgun til að svo mætti verða.8 Þetta var um samfélagslega umgjörð, en farsóttareðli sjúkdómanna virðist einkum að tvennu leyti ólíkt — og horfi ég þá fram- hjá öllum spurningum um smitleiðir pest- arinnar. I fyrra lagi var það aldrei nema minnihluti hinna sýktu sem bólan dró til dauða, en plágurnar virðast hafa strádrepið mjög stóran hluta þeirra sem á annað borð sýktust. Og í öðru lagi voru margir landsmenn, sem komnir voru yfir 35 ára aldur, ónæmir fýrir bólunni, og nærri allir yfir fimmtugu.Til samans olli þetta t.d. því að heimili og fjölskyldur eyddust sjaldan að fullu í bólunni, en í plágunum hefur verið mikið um heimili sem annaðhvort sluppu alveg eða gjöreyddust. Af þessu er t.d. fljótséð að af stórubólu má ekkert álykta um áhrif pláganna á eignaskiptingu því að erfðamynstrið hefur verið gjörólíkt. En hvað gerðist annars í stórubólu? Jón Steffensen ályktar að röskur fjórð- ungur landsmanna hafi dáið í bólunni, og „í annan stað réð það miklu um afleiðingar stórubólu að hún gekk yfir land sem var tilfinnanlega ofsetið ..." SAGNIR 107
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.