Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Qupperneq 16

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Qupperneq 16
10 DAGSKRÁ Hinu mikla takmarki umbótamannanna á 20. öldinni, að tryggja öllum lífvænlega atvinnu og afkomu, verður því aðeins náð með æskilegum hætti, að ekki þurfi að glata hinum mikla árangri af umbótastarfinu á 19. öldinni, hinu persónulega og þegnlega frelsi. Það er hið sögulega hlutverk millistefnunnar á 20. öldinni að sam- rýma þetta tvennt og koma því framkvæmd. VI. Hvernig getur milli- og umbótastefna náð því mikla takmarki, sem lýst er hér að framan? Til þess að svara þessari spurningu til hlítar, þyrfti langt og rækilegt mál. Hér verður aðeins hægt að stikla á nokkrum atriðum. í fyrsta lagi verður að efla framleiðsluna og skipuleggja hana þannig, að fjármagninu og vinnuaflinu sé jafnan beint að rétt- um viðfangsefnum. Það má ekki framleiða vörur, sem fjöldinn þarfnast ekki, og ekki er heldur hægt að selja, á sama tíma og önnur arðvænlegri framleiðsla er vanrækt. Það má ekki efla ýms- an „skraniðnað“ og óhóflega milliliðastarfsemi, á sama tíma og mikilvægustu atvinnuvegina vantar vinnuafl og fjármagn. Slíkur óeðlilegur misvöxtur er segin saga hjá samkeppnisskipulaginu, og er undirrót margvíslegra fjárhagslegra vandkvæða. Úr þessu verður því aðeins bætt, að ríkið taki að sér að tryggja hið nauð- synlega jafnvægi milli atvinnuveganna, setji nauðsynlegar höml- ur, þar sem þeirra er þörf, en hvetji og styrki til framtaks, þar sem þess er þcrf. Þetta þyrfti síður en svo að torvelda heilbrigt einkaframtak, heldur ætti beinlínis að efla það, þar sem það yrði iðuglega styrkt til þess að reyna krafta sína á þeim vettvangi, þar sem það er þjóðinni æskilegt, í stað þess, að það gæti annars unnið verk, sem væru andstæð hagsmunum heildarinnar. í öðru lagi þarf að skipuleggja með svipuðum hætti allar nýjar framkvæmdir, hvort heldur þær eru gerðar af því opinbera eða einstaklingum. Það þarf að gera sér ljóst, hvaða framkvæmdir það eru, sem þörfin er brýnust fyrir, og verður þá fyrst og fremst að hafa eflingu atvinnulífsins og framleiðslunnar í huga. Hinar nauðsynlegu framkvæmdir verða að ganga fyrir þeim, sem ónauð- synlegri eru. Ræktun, nýr skipastóll, orkuver, nauðsynlegustu verksmiðjur og annað það, sem kemur aðalatvinnuvegunum á sam- keppnishæfan grundvöll, verður að sitja í fyrirrúmi fyrir „luxus“-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál
https://timarit.is/publication/1051

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.