Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Side 19

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Side 19
DAGSKRÁ 13 einn og sama svip. Það er svipur hinnar skynsamlegu framþró- unar, aukinnar opinberrar skipulagningar, — meiri auðjöfnunar, jafnari almennari velmegunar, án þess þó að tekin séu vafasöm og óhugsuð byltingarstökk út í bláinn. Það er umbótaleiðin, með- alvegurinn, sem Bretar munu hiklaust velja sér, og svipuð mun líka verða niðurstaðan hjá Norðurl'andaþjóðunum. Milli- og umbótastefnan er því vissulega ekki fylgisvana úti í heiminum. Hún hefur þvert á móti sjaldan verið öflugri þar en nú. Það er sagt, og það er því miður satt, að mörgum málefnum ís- lendinga sé komið í verulegt óefni, þótt tildrögin séu nú önnur en á dögum Baldvins Einarssonar. Það verður hlutverk hinnar vaxandi kynslóðar, að leysa þjóðina úr þessum voða eða hún mun glata frelsi sínu á ný. Ungir menn og konur verða því að hefjast handa og þá fyrst og fremst gera sér þess grein, hvernig þeir ætla að hátta þjóðmálaþátttöku sinni, hvern veg þeir vilja velja við- reisninni. Þau hafa að velja um veg afturhaldsins, veg kommún- ismans eða veg umbótanna, meðalveginn. Slík athugun mun vissu- lega leiða í ljós, að það er þjóðinni æskilegast, engu síður nú en fyrir 100 árum, að hlíta hinni viturlegu leiðsögn, sem Baldvin Ein- arsson markaði svo glöggt og eftirminnilega í inngangi Ármanns á Alþingi.

x

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál
https://timarit.is/publication/1051

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.