Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Side 34

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Side 34
28 DAGSKRÁ fræðingarnir hafa um svo lang- an aldur talið gróðahvötina meginás hagkerfisins, að menn eru farnir að líta á hana sem óumbreytanlegan þátt mann- legs eðlis. Samt verður ekki séð, að staðreyndirnar styrki þessa kenningu. Allur fjöldinn vinnur nú á dögum fyrir föstum laun- um eða kaupi án tillits til gróð- ans. Það er jafnvel sennilegt, að vinnuskilyrðin og eðli vinn- unnar, meðvitundin um gagn- semi hennar eða um, að hæfi- leikar mannsins fái að njóta sín, ráði meiru um starfsval heldur en sjálft endurgjaldið, þegar um fastlaunaða starfs- menn og faglærða menn er að ræða. Þó að öllum brezkum iðn- fyrirtækjum væri breytt í opin- ber félög, sem væru ekki rekin í gróðaskyni, myndi það senni- lega ekki hafa nein teljandi á- hrif á afstöðu verkamannsins eða hluthafans (sem myndi fá fastákveðinn, jafnan arð frá ári til árs). Að vísu er ósenni- legt, að svo róttæk breyting verði gerð, af því að með því yrði alltof mikilli byrði velt á ríkið um stjórn og eftirlit. En hitt er víst, að það er einn af öruggustu lærdómum þeirrar atvinnulífsbyltingar, sem nú stendur yfir, að eftir stríðið mun gróðasjónarmiðið vega stöðugt minna og minna, þegar ákveða skal, hvað og hvar skuli fram- leitt, hver laun skuli greidd við framleiðsluna, við hvaða verði framleiðslan skuli seld og til hvers konar framleiðslu sparifé þjóðfélagsins skuli beint. Við það, að verð og gróði víkja sem meginþættir hagkerfisins, hljóta að verða róttækar breyt- ingar á eignarhugtakinu. Einn- ig á þessu sviði hafa skoðanir almennings farið fram úr kenn- ingum hagfræðinga. Nú um langt skeið hefur borið mjög á tvíþættri þróun í þessum mál- um. Annars vegar hefur þjóðfé- lagssamvizkan sett eignar- og umráðarétti yfir persónulegum auði vissar skorður. Nær alls staðar hafa verið lagðar á hann skattar, sem fyrir hálfri öld myndu hafa talizt jafngilda eignarnámi. í mörgum löndum hefur stórum jarðeignum verið skipt upp. Hins vegar hefur eignarrétturinn yfir framleiðslu- tækjum skipzt niður í marga hluta og aðgreinzt frá umráða- réttinum. Það, að segja, að nokk- ur hundruð þúsund nafnlausra hluthafa „eigi“ hin miklu iðn- aðarfyrirtæki Bretlands og Bandaríkjanna, væri næstum því jafnfjarstætt og að kalla ör- eigana í Sovét-Rússlandi eig- endur framleiðslutækjanna þar. Menn líta almennt svo á, að hlutafélög beri ábyrgð og hafi

x

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál
https://timarit.is/publication/1051

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.