Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Page 48

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Page 48
42 DAGSKRÁ þau heimila bæjarstjórn Rvíkur að taka leigunámi sumarbústaði og annað ónotað húsnæði í ná- grenni bæjarins. Jafnframt er fyrirmælt í lögunum, að húsa- leigunefnd skuli láta framkv. út- burð á utanhéraðsfólki, sem tekið hefir húsnæði á leigu án leyfis húsaleigunefndar. Síðan koma lögin um húsa- leiguleigu frá 7. apríl 1943. Er það allmikill bálkur, þó í felstu samhljóða hinum eldri húsa- leigulögum, þ. e. frá 1941, Þau nýmæli, sem mestu skipta, eru ákvæði 1. gr. um íbúðaskipti, þ. e. að leigusala er nú heimilt að skipta á íbúð við leigutaka, ef hún kemur leigutaka að svip- uðum notum að dómi húsa- leigunefndar. Þá er nýmæli í 3. gr. um, að utanhéraðsmenn megi ekki flytja inn í íbúðir, sem þeir kaupi eftir gildistöku laganna, en slíkt var áður heim- ilt. Einnig mætti nefna nýmæli í 5. gr. um, að þegar sérstaklega standi á, geti húsaleigunefnd að fengnu samþykki félagsmálaráð- herra tekið til ráðstöfunar hluta af húsnæði, sem afnotahafi get- ur án verið og unnt er að skipta úr. Tvö frumvörp um húsnæðis- mál komu einnig fram, en urðu ekki útrædd. Voru það frv. um viðauka við lög nr. 106 frá 1941 um húsaleigu, þ. e. að ákvæði þeirra næðu einnig til verbúða, þ. e. leigu eftir bryggjur, palla, sjómannabústaði og sjóhús. Hitt frumvarpið var um ráðstafanir til þess að tryggja húsnæðis- lausu fólki húsnæði og um stór- íbúðarskatt, þar sem gert er ráð fyrir vissu gjaldi af hverj- um fermetra, sem er framyfir það, sem talið er hæfilegt hús- rúm og er í frumvarpinu skrá yfir það. Einnig kom fram til- laga til þingsályktunar um stór- íbúðarskatt, en varð heldur ekki útrædd. Af öðrum félagsmálalögum má nefna lög um breyting á lög- um nr. 13 frá 1905 um rithöf- undarétt og prentrétt. Þau kveða á um, að höfundur hver hafi eignarrétt á því, sem hann hefir samið eða gert. Nær því einkaréttur höfundar til hvers konar birtingar eða tjáningar á verkum hans. Þó segir í lögun- um, að heimilt sé að flytja kafla úr ritsmíðum eða tónverk- um, sem út hafi verið gefin, á samkomum, sem haldnar séu í góðgerðaskyni eða aðeins til mannfagnaðar eða í skólum, enda komi ekki þóknun fyrir flutninginn. Þess má einnig geta, að lögin um þetta efni hétu áður lög um rithöfunda- rétt og prentfrelsi, en heita nú lög um höfundarétt og prent- rétt. Þá var einnig samþykkt

x

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál
https://timarit.is/publication/1051

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.