Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Page 61

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Page 61
dagskrá 55 i heilsufræði. Leggja skal sérstaka áherzlu á fræðslu um heilsu- vernd, gildi íþrótta og skaðsemi eiturnautna. Fjórði kafli er um íþróttakennslu. Nám og réttindi íþróttakenn- ai'a. Þeir einir hafa rétt til að ganga undir kennarapróf í íþrótt- UIn, sem stundað hafa nám við íslenzkan eða erlendan íþrótta- hennaraskóla, minnst 9 mánuði, og kynnzt kennslu í skólum og íþróttafélögum. Þá eru ákvæði um íþróttakennslu við héraðsskóla °g kennaraskólann. Fimmti kafli er um frjálsa íþróttastarfsemi. Fjallar hann um skiptingu landsins í íþróttahéruð, þar sem allir aðilar, sem íþróttir stunda í hverju héraði bindist samtökum um íþróttaframkvæmdir utan um iþróttamiðstöðvar til náms og keppni. Þá eru kvaðir !agðar á þau félög, sem styrk hljóta til framkvæmda sinna. M. a. veröa þau að hafa starfað í 2 ár og sent samböndum sínum til- skilin gjöld og ársskýrslur. Sjötti kafli felur í sér ýms ákvæði. Bæjar-, sveitar- og sýslufé- lögum er skylt að leggja til, endurgjaldslaust, hentug lönd og lóðir undir íþróttamannvirki, sem styrkt eru úr íþróttasjóði. Til þess má taka land eignarnámi, ef þörf krefur. Leggist félag eða skóli nið- ur, sem fengið hefur styrk úr ríkissjóði eða íþróttasjóði til mann- virkja eða íþróttatækja, skulu þessar eignir renna til íþróttasjóðs, nema aðrar samþyktir liggi fyrir. íþróttanefnd sér um, að eign- irnar komi að áframhaldandi notum til íþróttaiðkana. íþrótta- uefnd sker úr ágreiningi, sem rísa kann út af skilningi á íþrótta- iögunum eða framkvæmdum þeirra, nema um dómstólamál sé að ræða. V. Síðla árs 1940 var íþróttanefndin fullskipuð. Guðmundur Kr. Guðmundsson, skrifstofustjóri, var skipaður formaður. Hann er, svo sem kunnugt er, einhver glæsilegasti og drengilegasti íþrótta- uiaður síðari ára, enda hefur forusta hans í þessu starfi verið mjög farsæl og mætt almennum vinsældum. Aðalsteinn Sigmundsson, hennari, var skipaður samkvæmt tilnefningu U. M. F. í. og Bene- öikt G. Waage, kaupm. samkv. tilnefningu í. S. í. Aðalsteinn varð ritari nefndarinnar. Hann er kunnasti og fórnfúsasti æskulýðsleið- f°gi síðari ára og átti drjúgan þátt í samningu íþróttalaganna. Var hann um langt skeið sambandsstjóri U.M.F.Í. og ritstjóri Skinfaxa. Benedikt varð gjaldkeri nefndarinnar. Hann er fjölhæfur íþrótta-

x

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál
https://timarit.is/publication/1051

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.