Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Page 63

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál - 01.01.1944, Page 63
dagskrá 57 íþróttafulltrúans er mjög mikilsvert fyrir framgang íþróttamál- anna. VI. Með íþróttalögunum er stofnaður íþróttasjóður og er sú stefna þar mörkuð, að veita í einn farveg öllum greiðslum til íþróttamála, og til þess að lögin nái sem bezt tilgangi sínum, þurfa þær að vera sem ríflegastar og hafa þær aukizt að mjög miklum mun frá því sem áður var, enda þótt allt sé til tínt, sem til íþróttamála var veitt. Þessi þrjú ár hafa greiðslurnar orðið þessar: 1941 ................. kr. 75.000,00 1942 ................... — 128.100,00 1943 ................... — 300.000,00 Alls kr. 503.100,00 Þessi rúmlega hálf milljón, sem veitt hefur verið til íþróttamála síðustu þrjú árin og verið dreift me!ra og minna um allar sýslur landsins, skiptist þannig til einstakra framkvæmda: íþróttavellir ..................................... kn 14.500,00 Skíðabrautir og skálar ................................ — 27.500,00 íþróttakennsla og önnur starfræksla ................... — 114.600,00 Áhöld ................................................. — 5.000,00 Böð í skólum, almenningsböð og baðstofur .............. — 18.100,00 Sérfræðileg aðstoð og íþróttanám ...................... — 15.100,00 Sundlaugar, sundskýli og lagfæring á sundlaugum kr. 308.300,00 Alls kr. 503.100,00 Stærst einstakra mannvirkja, sem notið hafa styrks íþróttasjóðs, eru sundlaugarnar í Neskaupstað, Hafnarfirði og að Eiðum, sem allar tóku til starfa s. 1. sumar og skíðaskálar Skátafélags Reykja- víkur og Skíðafélags ísafjarðar og skíðabraut Akureyrar. Pjárveitingar íþróttasjóðs hafa ýtt mjög undir framkvæmdir og eru nú uppi stærri og almennari áform um byggingu íþrótta- hiannvirkja en nokkru sinni áður þrátt fyrir mjög erfiðar kring- umstæður. Þá eru og allmörg í smíðum. Skal til frekari skýringar gefið stutt yfirlit um þær framkvæmdir, sem verið er að fullgera eSa eru fyrirhugaðar. íþróttanefnd hefur látið gera teikningar af

x

Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá: tímarit um þjóðfélagsmál
https://timarit.is/publication/1051

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.