Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.06.1957, Page 39
en gagnrýnendur tæti þau engu að
síður í sig vegna þess að þau séu svo
og svo gölluð á stíl og formi. Þetta
atferli gagnrýnendanna segir hann
ógna andlegu frelsi ungra rithöfunda.
Ekki er auðvelt að melta þessa
kenning J. A. fremur en sumar aðrar.
Eg fæ ekki skilið að ungum skáldum
sé það neinn háski að þau venjist á
að „snurfusa" stíl sinn og vanda upp-
bygging verka sinna eftir megni.
Þvert á móti ættu slík vinnubrögð að
verða skáldunum til góðs og svo verk-
um hinna. Þaðan af síður er mér
skiljanlegt hvernig hann greinir á
milli efnis og forms ritverka. Form
verksins hlýtur ævinlega að ákvarð-
ast af efni þess, efnið að laga sig að
forminu. Ritverk án forms er óhugs-
andi alveg eins og form án efnis.
„Mannleg fegurð“ og „skemmtilegar
frásagnir" eru ósköp hugguleg hug-
tök, en þau eru harla lítils virði sem
einhver formleysa út í bláinn.
Um þetta eru verk J. Á. sjálfs ágætt
dæmi. Hann er óumdeilanlega einn af
snjöllustu rithöfundum okkar úr hópi
yngri manna, og frásagnir hans af
sjómönnum, börnum og Pétri Hoff-
mann Salómonssyni ásamt öðru fólki
er hann hefur kynnzt eru mikils metn-
ar af öllum þeim er láta sig íslenzkar
bókmenntir varða. En þótt Jónas velji
sér mannleg og skemmtileg viðfangs-
efni nægir það ekki eitt til að gefa
verkum hans listrænt gildi, frásagnir
hans eru bornar uppi af stílsnilld hans
og málsnilld.
í stuttu máli sagt: Mér virðist fá-
sinna að listræn vandvirkni geti orð-
ið nokkru skáldi háskaleg. Hafi skáld-
ið á annað borð eitthvað að segja
Jens August Schade:
Söngur minn
Söngur minn ýlir í reykháfnun
söngur mlnn er allsstaðar
hann læðist um að næturlagi
hann leggur lag sitt við vofur
hann hljóðar fyrir húshorn
og mætir þér elnsog mynd
ómáanleg af rótlausum huga
þínum
i fprs
söngur minn hleypur eftir
þjóðvegunum
símastaurarnir vita það
þeir kasta mansöngvum á glæ
veðrið er mitt
við erum eitt
um nótt í storml
er ást okkar mest
margvísleg eru atlot okkar
og sælar fórnir
brimhljóðið
er bergmál sjóðandi blóðs míns
stúlkan mín er heit
og eftirlát
eins og söngur minn
Dagur Slgurðarson
þýddi
verða orð þess þeim mun snjallari og
hljóma víðar of byggðina sem það
vandar meir til verks síns. Og hafi
skáldið ekkert að segja — nú þá er
dagskrá
37