Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Blaðsíða 40

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Blaðsíða 40
svo til við lifrarkæfu. í ölvímunni fór ég að níða niður Tolstoj. „Hann bugaðist þessi greifi þinn; hann varð hræddur. Þessi trúardella var ekkert nema hræðsla. Hann var hræddur við kulda, elli og dauða; og hann gerði sér hlýjan feld úr trúar- trausti sínu.“ „Haltu áfram, áfram,“ sagði Kazantsev og riðaði til höfðinu, sem líkast var fuglshöfði. Við sofnuðum út af á gólfinu við rúmin okkar. Mig dreymdi Katju, fertuga þvotta- konu, sem bjó á hæðinni fyrir neðan. Við sótt- um til hennar heitt vatn á hverjum morgni. Ég hafði aldrei séð greinilega framan í hana, en í draumi áttum við saman mök, sem ekki eru Guði þóknanleg. Við borð lá, að við bein- brytum hvort annað með ofsalegum kossum. Þennan morgun flýtti ég mér að sækja til hennar heitt vatn. Ég sá fölan og gugginn kvenmann með sjal um herðar, öskugrátt hár og þrútnar og vinnu- lúnar hendur. Frá þeim degi borðaði ég morgunmat hjá Bendersky á degi hverjum. Ný eldavél, síldar- réttir og súkkulaði skutu upp kollinum á háa- loftinu hjá okkur. Tvisvar sinnum bauð Raísa mér í ökuferð í vagni sínum um ströndina. Ég gat ekki á mér setið að segja henni allt af létta um barnæsku mína. Mér til undrunar varð úr því sóðafengin saga. Undan hetm sinni úr moldvörpuskinni starði hún á mig skærum, óttaslegnum augum. Augnhárin titruðu af með- aumkun. Ég var kynntur fyrir eiginmanni Raisu, sköll- óttum og andlitsrjóðum Gyðingi, þrekvöxnum og sterklegum. Hann gekk jafnan álútur eins og hann væri viðbúinn að flýja. Almannarómur sagði, að hann væri í nánum tengslum við Raspútin. Gríðarlegur stríðsgróð- inn, sem hann sankaði að sér, gerði hann því nær örvita, hann leit út eins og einóður vit- firringur. Augun voru á sífelldu flökti: hann virtist ekki hafa hugmynd um neitt, sem í kringum hann var. Ralsa var alltaf í vand- ræðum, þegar hún þurfti að kynna hann nýj- um kunningjum. Uppúr nýjári komu tvær systur Raísu frá Kiev. Dag nokkurn kom ég með handritið að „L’Aveu", en þar sem Raísa var ekki heima, gerði ég mér ferð þangað aftur á kvöldi sama dags. Fjölskyldan sat að matborði. Hneggjandi hlátur og æstar karlaraddir hljómuðu frá borð- stofunni. Það er ávallt hávaðasamt við mat- borðið hjá nýríku fólki. Raísa kom fram og gaf sig á tal við mig, klædd samkvæmiskjól, flegnum langt niður á bak. Hún hafði inniskó úr tilbúnu leðri á fótunum og bar sig klaufa- lega. „Ég er drukkin, elskan mín,“ sagði hún og breiddi út faðminn. Handleggimir voru hlaðn- ir armböndum úr platínu og smaragðshringum. Líkaminn sveigðist eins og slanga, sem dans- ar eftir hljóðfalli. Bylgjað hárið þyrlaðist um höfuðið og skyndilega lét hún sig falla niður í fornan, útskorinn stól. Það hringlaði í skart- gripunum. Það glytti á ör á dyftu bakinu. Hlátrasköll kvennanna hljómuðu úr borð- stofunni. Nú komu systur Raísu inn í herberg- ið, þær voru barmmiklar og holdugar eins og Raísa sjálf, á efri vör báru þær mjúkan skegg- hýjung. Brjóstin stóðu fram og svart hárið stóð í allar áttir. Báðar áttu þær eiginmenn, sem líktust Bendersky í cinu og öllu. Herbergið fylltist ósamstæðri, óhóflegri, kvenlegri gleði, kæti fullþrcska kvenna. Eiginmennirnir dúð- uðu konur sínar í selskinn og Orenburg-sjöl og drógu svarta aurskó á fætur þeirra. Þegar búið var að dúða þær, var með naumindum hægt að grilla í gljámálaðar kinnar, fölbleik nef og nærsýn, glansandi, gyðingleg augun. Þau léku við hvern sinn fingur af kæti og höfðu há- reysti í frammi. Loks lögðu þau af stað í leik- húsið til að heyra Chaliapin syngja í óperunni „Judit“. „Mig langar að vinna," hvískraði Raísa og teygði nakta armana í áttina til mín, „við höf- um engu komið í verk í heila viku.“ Hún sótti flösku og tvö glös inn í borðstof- una. Brjóstin dingluðu undir víðum kjólnum; það sást greinilega í geirvörturnar, sem loddu við silkið. „Þetta er dýrasta vín,“ sagði Raísa og hellti fleytifull glösin, „Muscatel ’83. Maðurinn minn drepur mig, |>egar hann kemst að þessu.“ 38 DAGSKRA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.