Sveitarstjórnarmál - 01.10.1997, Blaðsíða 7
AFMÆLI
Frá hátiöarsamkomunni.
hafi verið þungamiðjan í þeirri uppbyggingu sem orðið
hefur á Egilsstöðum. Samgöngur til og frá staðnum eru
greiðar og nýr alþjóðlegur flugvöllur gefur ýmsa mögu-
leika varðandi eflingu ferðaþjónustunnar. í byrjun aldar
var póstþjónustan flutt til Egilsstaðabýlisins frá Höfða á
Völlum og má segja að það hafi verið vísirinn að því
sem á eftir kom. Opinber þjónusta er orðin stór þáttur í
atvinnulífi bæjarins. Stærstu stofnanirnar eru heilsu-
gæslustöð og sjúkrahús, skólar, bankar, Rarik og Póstur
og sími.
Þegar kaupfélagið var stofnað í byrjun aldar var sam-
þykkt að heimili og vamarþing þess yrði á Egilsstöðum
þó svo að þá hafi þéttbýlismyndun ekki verið hafin. En
það var ekki fyrr en 1946 að byggt var útibú á Egilsstöð-
um, en fram að þeim tíma hafði kaupfélagið aðsetur sitt
á Reyðarfirði. Kaupfélagið hefur verið frá þeim tíma
einn stærsti vinnuveitandi bæjarins með verslun, mjólk-
ursamlag, brauðgerð, sláturhús o.fl. Nú er framboð á
verslun og þjónustu hvers konar með því besta sem
býðst á landinu utan höfuðborgarsvæðisins og hefur það
aukist vemlega síðustu árin. Verktakar í byggingariðn-
aði og vegagerð hafa verið öflugir allt frá fyrstu tíð og
hafa þeir tekið að sér verk víðs vegar um landið og stað-
ið sig með mikilli prýði.
Skólar
Menntaskólinn á Egilsstöðum var stofnaður árið 1979
en haustið 1995 var hann sameinaður Alþýðuskólanum
á Eiðum. Skólinn hefur vaxið allt frá stofnun og er nú
öflugur skóli á framhaldsskólastiginu. Skólinn hefur
kappkostað að hafa námsframboð sem fjölbreytilegast
og gefur kost á nýjum brautum ásamt þeim hefðbundnu
og má þar nefna ferðaþjónustubraut og skógræktarbraut.
Þá er starfrækt öflug íþróttabraut.
Egilsstaðaskóli sem er grunnskóli er jafngamall og
bæjarfélagið. Skólinn hefur tekið út vaxtarverki líkt og
bærinn og nú stöndum við frammi fyrir því að skólahús-
næðið er allt of lítið og verulegra úrbóta er þörf til þess
að staðið verði við lög um einsetningu skólans. Hafist
var handa við að stækka skólahúsið á síðasta ári, en í ár
héldu menn að sér höndum varðandi byggingarfram-
kvæmdir almennt. Um næstu áramót verður haldið áfram
með bygginguna og stefnt að því að taka fyrsta áfanga í
notkun fyrir næsta skólaár. Nú í haust verður gerð úttekt
á starfí skólans að frumkvæði skólastjóra og kennara til
þess að bæta og efla starf hans.
Leikskólinn er fullskipaður og biðlisti nokkur. Gert er
ráð fyrir breytingum og stækkun á honum með haustinu.
Aðsókn að Tónlistarskólanum á Egilsstöðum hefur
vaxið ár frá ári og hefur þurft að vísa nemendum frá.
Góð samvinna hefur verið milli tónlistarskólans og
Menntaskólans á Egilsstöðum og nemendur þar hafa sótt
nám í skólanum og fengið metið til eininga. Stefnt er að
því að koma upp tónlistarbraut. Söngkennsla hófst sl.
vetur og aðsóknin mjög góð. Nemendur í söng koma
víðs vegar af Héraði og greiða sveitarfélög þeirra hlut í
kostnaðinum.
Samstarf
Egilsstaðabær á ýmiss konar samstarf við önnur sveit-
arfélög bæði innan héraðs og í fjórðungnum. Sveitarfé-
lög á svokölluðu Héraðssvæði, þ.e. sveitarfélög á Fljóts-
dalshéraði og Borgarfirði eystri, hafa átt mikið og gott
samstarf í áranna rás og nægir þar að nefna sjúkrahúsið,
1 97