Sveitarstjórnarmál - 01.10.1997, Blaðsíða 52
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
Aðalfiindur Eyþings á Dalvík
5. og 6. júní 1997
Hjalti Jóhannesson fi-amkvtemdastjóri
Aðalfundur Eyþings 1997 var
haldinn dagana 5. og 6. júní í fé-
lagsheinrilinu Víkurröst á Dalvík.
Þetta er jafnframt fimmti aðalfundur
samtakanna og sá fyrsti sem ekki er
haldinn um mánaðamótin ágúst-
september. Aðalmálefni fundarins,
utan venjubundinna aðalfundar-
starfa, voru umhverfismál.
Fundarstjórar voru þeir Guðbjöm
Amgrímsson, bæjarfulltrúi á Olafs-
firði, og Gunnar Jónsson, sveitar-
stjóri í Hrísey.
Skýrsla stjórnar
Einar Njálsson formaður flutti
skýrslu stjómar og kom m.a. fram í
máli hans að samtökin hefðu leitt
óformlegt samstarf landshlutasam-
takanna á árinu og greindi hann frá
helstu málum á þeim vettvangi.
Hann gerði m.a. að umræðuefni
skólaþjónustu en slík þjónusta hefur
verið rekin í tengslum við samtökin
í eitt ár og verður það fyrirkomulag
endurskoðað fyrir næsta aðalfund.
Þá gerði hann grein fyrir því að
hann myndi láta af formennsku í
samtökunum á þessum fundi að ósk
nýs meirihluta í bæjarstjórn Húsa-
víkur og þakkaði fyrir gott og
ánægjulegt samstarf á þeim fimm
árum sem hann hefði verið formað-
ur þeirra.
Skólaþjónusta
Asta Sigurðardóttir, formaður
skólaráðs Eyþings, flutti skýrslu
skólaráðsins en það er stjómamefnd
Skólaþjónustu Eyþings. Hún gerði
grein fyrir starfseminni á fyrsta ári
hennar og helstu verkefnum sem
skólaráðið hefur fundað um en þar
má nefna skipulag á þjónustu við
fötluð börn á leikskólaaldri, fjár-
hagsáætlanir og ráðningu á sálfræð-
ingum til starfa við þjónustuna. For-
stöðumaður skólaþjónustunnar, Jón
Baldvin Hannesson, gerði þá og
grein fyrir einstökum þáttum í starf-
semi þjónustunnar.
Samþykkt var á fundinum tillaga
skólaráðs um að stjórnin skipaði
starfshóp vegna endurskoðunar á
stofnsamningi Skólaþjónustu Ey-
þings á aðalfundi 1998.
Ávörp
Svanfríður Jónasdóttir alþingis-
maður ávarpaði fundinn fyrir hönd
þingmanna kjördæmisins, Valgarð-
ur Hilmarsson, stjórnarmaður í
Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
flutti ávarp, svo og Sveinbjörn
Markús Njálsson, formaður Banda-
lags kennara á Norðurlandi eystra.
Ályktanir
Aðalfundurinn gerði ályktanir um
eftirfarandi málefni:
Framtíð byggðar í Grímsey
Fundurinn gerði svofellda ályktun
um framtíð byggðar í Grímsey:
Samfélag eins og það sem dafnar í
Grímsey á sér ekki landfræðilega
hliðstæðu á íslandi. Þess vegna er
byggðin þar íslenskri þjóðarheild
Félagsheimiliö Víkurröst á Dalvík þar sem aöalfundurinn var
haldlnn.
Séö yfir fundarsalinn í Víkurröst. Hjalti Jóhannesson tók mynd-
irnar frá fundinum.
242