Morgunblaðið - 18.02.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2012
BAKSVIÐ
Kristján Jónsson
Andri Karl
Hæstiréttur komst í gær að þeirri
niðurstöðu að staðfesta bæri dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur um
tveggja ára fangelsi yfir Baldri Guð-
laugssyni, fyrrverandi ráðuneytis-
stjóra í fjármálaráðuneytinu, vegna
innherjasvika og brota í opinberu
starfi. Einnig eru gerðar upptækar
til ríkissjóðs 192 milljónir króna sem
eru söluandvirði hlutabréfa Baldurs
í Landsbankanum. Fram kom að
brotið hefði verið stórfellt og Baldur
hefði „misnotað stöðu sína sem op-
inber starfsmaður“.
Baldur var ákærður fyrir
innherjasvik og brot í opinberu starfi
þegar hann seldi hlutabréf í Lands-
bankanum 17. og 18. september
2008. Hann var þá ráðuneytisstjóri í
fjármálaráðuneytinu og sat í sam-
ráðshópi íslenskra stjórnvalda um
fjármálastöðugleika. Héraðsdómur
Reykjavíkur komst á sínum tíma að
þeirri niðurstöðu að Baldur hefði því
verið innherji í skilningi laga um
verðbréfaviðskipti og brotið gegn
þeim lögum.
Ólafur Börkur Þorvaldsson, einn
hæstaréttardómara, skilaði séráliti
þar sem hann segir að vísa beri mál-
inu frá dómi. Hann tók einnig efn-
islega afstöðu til sakarefnisins og
komst þá að þeirri niðurstöðu að
sýkna bæri Baldur af ákæruatriðum.
Fjármálaeftirlitið hefði ekki litið á
upplýsingar þær sem Baldur hafði
aðgang að vegna setu í samráðs-
hópnum sem innherjaupplýsingar,
það kæmi fram í bréfi FME til
ákærða 7. maí 2009. Hefði stofnunin
þó verið búin að athuga alla fundi
samráðshópsins í september 2008.
Brot á mannréttinda-
sáttmála Evrópu?
Fjármálaeftirlitið rannsakaði mál
Baldurs þegar í nóvember 2008 en
greip þá ekki til neinna aðgerða, hins
vegar gerði stofnunin það í júlí 2009
og sendi málið til embættis sérstaks
saksóknara. Hæstiréttur segir að
FME hafi strax í upphafi sett fyr-
irvara um að málið kynni að verða
tekið upp aftur ef ný gögn bærust.
Og það hafi gerst, m.a. þegar
skýrslur voru teknar af öðrum ráðu-
neytisstjórum. Ólafur Börkur sagði
hins vegar að engin ný gögn hefðu
verið í málinu þegar ákveðið var að
hefja rannsókn að nýju, eftir að
Fjármálaeftirlitið felldi málið fyrst
niður. Því væri um að ræða endur-
tekna málsmeðferð sem væri í and-
stöðu við ákvæði mannréttindasátt-
mála Evrópu.
Sigríður J. Friðjóns-
dóttir ríkissaksóknari
vildi að refsing yrði
þyngd og benti á að
refsiramminn leyfði
allt að níu ára fangelsi.
Staðfestu fangelsis-
dóm yfir Baldri
Einn hæstaréttardómari vildi sýkna ráðuneytisstjórann
Morgunblaðið/Eggert
Dómur Hæstaréttardómarar taka sér sæti í gær í húsakynnum réttarins þegar skýrt var frá niðurstöðunni í máli
ríkissaksóknara gegn Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra.
skert um 35%. Fyrir árið 2012
hefðu þau samkvæmt samkomulagi
frá 2005 átt að vera 1,2 milljarðar
króna en eru 888 milljónir króna.
Þórsteinn segir þá breytingu
hafa orðið á útfarahefðum und-
anfarið að svokölluð kistulagning-
arbæn sé farin að renna saman við
útförina.
„Þetta er að hætt að vera sérstök
athöfn,“ segir hann. „Við skulum
segja að útförin sé klukkan eitt. Þá
er kistulagningarbænin gjarnan
klukkan hálfeitt, henni lokið vel fyr-
ir eitt og þá tekur útförin við í
beinu framhaldi,“ segir Þórsteinn.
Hann segist halda að fólk vilji
með þessu auðvelda sér hlutina en
einnig sé verið að hugsa um nána
ættingja sem koma utan af landi
eða frá útlöndum. „En ég held nú
að margir prestar vilji gjarnan að
þetta sé sérathöfn. Það sé mik-
ilvægt fyrir nánustu aðstandendur
að vera í ró og næði með hana,“
segir hann.
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Af þeim 1.012 einstaklingum sem
voru jarðsettir í Reykjavík-
urprófastsdæmum árið 2011 voru
348 brenndir og jarðaðir í duftkeri
en 664 í kistu. Þetta nemur því að
34% útfara í prófastsdæmunum
voru bálfarir en á landinu öllu voru
bálfarir 22,7% allra útfara.
Bálförum hefur fjölgað mjög um-
fram það sem menn sáu fyrir sér
fyrir 15 árum, segir Þórsteinn
Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma en árið
1990 samsvaraði fjöldi bálfara 7,4%
af útförum á landinu öllu, eða 126 af
1.704. Árið 2000 námu þær 11,6%
og árið 2010 22,5%.
„Þetta hefur verið mjög hröð
þróun, miklu hraðari en við sáum
fyrir,“ segir Þórsteinn. Duftgarð-
urinn í Fossvogi sé til að mynda
fullsettur en nýi garðurinn í Sól-
landi í Öskjuhlíð sé stór og mikill
og muni endast út öldina og lengur.
Mengunarvarnir
Líkbrennslur fara fram í tveimur
ofnum í bálstofunni í Fossvogs-
kirkju en báðir ofnarnir voru keypt-
ir til landsins frá Svíþjóð árið 1948
og eru því komnir til ára sinna.
„Ofnarnir eru reglulega gerðir
upp, yfirfarnir og það endurnýjað
sem þarf. En það liggur fyrir að
það þurfi að endurnýja þá innan
næstu 15-20 ára,“ segir Þórsteinn.
Þá sé einnig tímabært að huga að
mengunarmálum. „Okkar brennslu-
fjöldi er nú undir því lágmarki sem
sett hafa verið viðmið um í ná-
grannalöndum okkar en það fer að
líða að því að fjöldinn fari upp fyrir
það og þá er spurning hversu lengi
við getum notað þessa gömlu ofna á
án þessara mengunarvarna,“ segir
hann.
Renna saman í eina athöfn
Til stóð að byggja nýja bálstofu á
Hallsholti við Gufuneskirkjugarð
eftir árið 2020. Þar hefur þegar
verið reist starfsmannahús, sem er
fyrsti áfangi byggingasamstæðu
þar sem einnig verður grafarkirkja,
líkhús og bálstofa. Áformum um
uppbyggingu á Hallsholti hefur þó
verið slegið á frest í kjölfar hruns-
ins 2008, en framlög ríkisins til
kirkjugarða landsins hafa verið
Brennslufjöldi
þokast upp fyrir
mengunarviðmið
Líkbrennsluofnar komnir til ára sinna
Niðurstaða Hæstaréttar er í
takti við það sem ákæruvaldið
lagði upp með, segir rík-
issaksóknari, Sigríður J. Frið-
jónsdóttir.
„Dómurinn er skýr hvað varð-
ar skilgreiningu á inn-
herjasvikabrotinu og því mik-
ilvægt fordæmi á þessu sviði,
auk þess að vera fyrsti sakfell-
ingardómurinn hér á landi fyrir
innherjasvik,“ segir rík-
issaksóknari í tilkynningu til
fjölmiðla.
Karl Axelsson hæstarétt-
arlögmaður var verjandi Bald-
urs Guðlaugssonar í málinu
gegn honum og segir
hann niðurstöðuna
mikil vonbrigði, ekki
síst þar sem dóm-
urinn klofnaði og
skilað var séráliti.
Næstu skref hafi ekki
verið ákveðin,
fyrst verði dóm-
urinn skoðaður
gaumgæfilega.
Mikilvægt
fordæmi
RÍKISSAKSÓKNARI
Karl
Axelsson
34%
útfara í Reykjavíkurprófastsdæmum
árið 2011 voru bálfarir.
126
var fjöldi bálfara á landinu öllu
1990. Þær voru 437 í fyrra.
3
einstaklingar hafa verið jarðsettir
í óvígða mold, einn í duftkeri
og tveir í kistum.
67
leyfi hafa verið gefin fyrir ösku-
dreifingu frá árinu 2002.
‹ ÚTFARIR ›
»
Þyrla Landhelgisgæslunnar bjarg-
aði í gærkvöldi þremur mönnum
sem voru í sjálfheldu vestur af Eyja-
fjallajökli. Samkvæmt upplýsingum
frá Gæslunni voru mennirnir staddir
vestur af Grýtutindum og voru þeir
allir ómeiddir.
Á svæðinu gekk á með skafrenn-
ingi og voru mennirnir taldir vera
nokkuð kaldir þegar fyrstu fréttir
bárust af þeim í gærkvöldi. Þá var
símasamband slæmt á svæðinu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni voru menn-
irnir, einn Íslendingur og tveir út-
lendingar, vel búnir en fjölmennt lið
björgunarsveita var sent á staðinn.
Þær sveitir eru meðal annars úr
Rangárvallasýslu en einnig munu
undanfarar af höfuðborgarsvæðinu
hafa verið sendir á staðinn til að-
stoðar.
Þremur
bjargað úr
sjálfheldu
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
„Ástandið er skelfilegt. Það er bara
hræðilegt. Götufólkið kemur hingað
eftir að vera búið að vera úti alla
nóttina, kalt og hrakið og leggur sig
jafnvel við borðið hjá mér,“ segir
Kolbrún Pálína Hafþórsdóttir, mat-
ráður hjá Kaffistofu Samhjálpar.
Aldrei hefur verið meira að gera á
Kaffistofunni en í janúar.
Tíðarfarið hefur reynst útigangs-
fólki og öðrum sem eiga í fá hús að
venda erfitt. Kolbrún segir að róð-
urinn hafi jafnt og þétt verið að
þyngjast hjá Kaffistofunni, álagið sé
jafnan mest í lok mánaðar en aldrei
meira en nú í janúar.
„Ég er búin að vera hérna með 150
manneskjur í mat dag eftir dag. Um
150 manns hafa sótt mat og skjól á
Kaffistofunni daglega síðustu vikur.
Seinni hlutinn í janúar var rosalegur.
Það var eiginlega það versta sem ég
hef séð og ég hef ekki heyrt það
verra frá fólkinu heldur. Því við töl-
um saman hérna.“ Kaffistofan er op-
in milli 10 og 16. Kolbrún segir að
þegar svona kalt sé í veðri sitji marg-
ir inni allan tímann til að fá hita í
kroppinn.
Ekki fólk í neyslu
Aðspurð segir Kolbrún þó að það
sé fleira en bara vetrarhörkurnar
sem valdi aukinni aðsókn. „Tíðarfar-
ið er auðvitað slæmt en svo er bara
ofboðslega mikið um það að fólk er
að missa húsnæði. Það sefur á göt-
unni eða í bílnum sínum.
Það er eiginlega stærsta breyting-
in sem ég sé, þetta er fólk sem er
ekki í neyslu eða neinu svoleiðis. Það
eru atvinnulausir, fatlaðir og svo er
talsvert af vegalausum útlendingum
sem hafa ekki atvinnuleyfi eða neitt
slíkt.“
„Ástandið er skelfilegt“
Aldrei hafa fleiri sótt í skjól kaffistofu Samhjálpar en í janúarmánuði
Matráður segir að nú komi fólk sem ekki sé í neinni neyslu en sé heimilislaust
Hjálp Beðið eftir mat hjá Samhjálp en þar er opið á milli kl. 10 og 16.
Morgunblaðið/Ómar