Morgunblaðið - 18.02.2012, Page 11
Menningarfylgd Birna við Andlit Sólar, verk Ásmundar Sveinssonar frá árinu 1961 sem stendur við MR.
kassar. Mér finnst miðborg Reykja-
víkur mjög sæt, hún er svolítið hall-
ærisleg en það er líka hennar
sjarmi. Þetta er lítil dama sem mað-
ur á að „digga“, “ segir Birna og er
á köflum ósátt við þá framkomu sem
dömunni hefur verið sýnd.
Slömmlordavæðing
Í kringum 2007 segir Birna að
hafi orðið það sem hún kallar
„slömmlordavæðing“ í miðborginni.
Þá hafi stefnan virst vera sú að
„slömmlordarnir“ svokölluðu hafi
keypt hús og jafnvel heilu húsarað-
irnar sem þeir hafi síðan ekkert
gert við og látið drabbast niður.
Þetta hafi verið gert í þeim tilgangi
að knýja fram leyfi til þess að
byggja annað og stærra og meira en
skipulag gerði ráð fyrir. Að því er
virðist til þess eins að geta grætt.
Birna nefnir Hverfisgötuna sem
hrikalegasta dæmið um þetta en
dæmin megi sjá víðar í miðbænum.
„Mér finnst rangt í þessu að ég
lít á miðborgina sem borg allra íbúa
landsins. Því finnst mér að borg-
aryfirvöld, hverju nafni sem þau
nefnast og hvernig sem því er hátt-
að, eigi að sjá til þess að komið sé
fram af virðingu við miðborgina. Í
öðrum löndum hefur verið brugðið á
það ráð að einstaklingar sem ekki
hugsa um eigur sínar í miðbænum
fá tækifæri til að lagfæra þær. Ann-
ars er eignin tekin af þeim og seld
þeim sem skrifar undir staðfestingu
þess að það verði bætt úr,“ segir
Birna.
Skólavörðustígur sætastur
Á ferðum sínum síðastliðin tíu
ár hefur Birna uppgötvað ýmsa
leynda staði í miðbænum.
„Ég hef fundið fullt af bakgörð-
um og svo veit ég hvar g-bletturinn
er í miðbænum. Það er alveg nauð-
synlegt að finna hann en það verður
að upplifa hann. Því ætla ég ekki að
segja frá því hvar hann er að finna.
Annars stendur Skólavörðu-
stígurinn alltaf fyrir sínu og er sæt-
astur finnst mér. Þá kemur stund-
um eitthvað nýtt frá gestunum og
ég bið fólk líka að leiðrétta mig fari
ég með einhverja staðlausa stafi.
Eitt er líka að ég lít þannig á að
hver miðborg hafi sinn karakter.
Karakter miðborgarinar hér er lág-
reistur. Þegar menn ætla að reyna
að breyta því og flytja inn einhverja
ímynd af Manhattan verður útkom-
an því í besta falli fáránleg og í
versta falli hjákátleg og sorgleg.
Eitt sinn var ég t.d. með menning-
arblaðamann frá Kanada í göngu
með mér sem spurði hver leyfði að
byggja þessi háhýsi við Skúlagöt-
una, hvernig þetta væri hægt? Það
tengist minnimáttarkennd landans
að hafa tilhneigingu til þess að telja
allt sem komi utan frá betra. Þannig
hefur oft og tíðum átt að sópa undir
stórt teppi allri vitneskju um það að
við höfum verið fátæk, með lús og
endalausa blöðrubólgu. Í Róm eru
rústir á bestu byggingarreitunum
en hér er búið að valta yfir elsta
kirkjugarðinn sem var í Fóg-
etagarðinum.
Annað dæmi má nefna að upp
úr 1960 átti að rífa öll hús í Tjarn-
argötunni. Þetta er svo mikil
skammsýni og ekkert hugsað til
þess að varðveita sögu og vita hvað-
an maður kemur. Ef maður veit
ekki hvaðan maður kemur hefur
maður enga möguleika á því að vita
hvert maður er megnugur að fara,“
segir Birna.
Niðurníðsla Svokölluð, „slömmlordavæðing“ gerir borginni ekki gott.
„Ég hef fundið fullt af
bakgörðum og svo veit
ég hvar g-bletturinn er í
miðbænum. Það er al-
veg nauðsynlegt að
finna hann“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2012
Háskóladagurinn er í dag, 18. febrúar.
Þá mun almenningur geta kynnt sér
starfsemi háskólanna. Í Háskólabíói
verður kynning á námi frá Háskóla Ís-
lands, Háskólanum á Akureyri, Há-
skólanum á Hólum, Landbúnaðarhá-
skóla Íslands, Keili og Listaháskóla
Íslands. Einnig verður þar kynning á
háskólanámi í Danmörku og Svíþjóð.
Háskólinn á Bifröst kynnir náms-
framboð í Norræna húsinu. Háskól-
inn í Reykjavík og Listaháskóli Ís-
lands kynna námsframboð sitt í
húsakynnum HR í Nauthólsvík. Fríar
rútuferðir verða milli staða á tuttugu
mínútna fresti. Meðal þess sem
kynnt verður er Rannsóknarbíll sál-
fræðinnar frá sálfræðideild Háskól-
ans í Reykjavík. Um er að ræða sér-
útbúna rannsóknarstofu á hjólum
sem notuð verður við rannsókn á
streitu í íslenskum unglingum. Rann-
sóknin er ein sú fyrsta sinnar teg-
undar en fyrir rannsóknarhópnum fer
Jack James, prófessor við sál-
fræðisvið skólans. Í dag getur fólk
kynnt sér þá tækni sem notuð verður
við rannsóknina. Verður rannsókn-
arbíllinn fyrir utan Háskólann í
Reykjavík frá kl. 12-16.
Háskóladagurinn
Morgunblaðið/Kristinn
Mælingar Í rannsóknarbílnum er sérútbúin rannsóknarstofa.
Rannsóknarbíll til sýnis
Það er orðin hefð fyrir því í febr-
úarmánuði að feitur og fallegur
snjókarl komi sér makindalega fyrir
á Ráðhústorgi á Akureyri og gleðji
þar jafnt unga sem aldna. Snjókarl-
inn Frosti vill gjarnan skarta sínu
fegursta fyrir þá sem koma að sjá
hann en nú ber svo við að nefinu
hans hefur verið stolið. Er þetta í
annað sinn í þessari viku sem ein-
hver eða einhverjir sjá sig knúna til
að ræna hann þessum líkamshluta.
Þeir sem hafa einhverjar upplýs-
ingar um nefin eru beðnir um að
hafa samband á netfangið Akureyr-
arstofa@akureyri.is.
Tapað/fundið
Myndarlegur Frosti saknar nefsins síns góða og vill gjarnan fá það aftur.
Frosti vill fá nefið sitt aftur
Opið: laugardag frá kl. 10-16 – sunnudag frá kl. 13-18
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Útsölulok
Vertu vinur okkar
á Facebook
Opið virka daga frá kl. 10-18
Stakir jakkar
Litir: Rautt og orange
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Opið í dag kl. 10-16
Eddufelli 2, sími 557 1730
Lokað í dag
www.rita.isLaugavegi 63 • S: 551 4422
www.laxdal.is
Útsölulok
Verðhrun
50-70% afsláttur
VETRARYFIRHAFNIR Í ÚRVALI
Sparidress - Vetrardragtir - Peysur - Blússur - Bolir
Laugavegi 84 • sími 551 0756
VERÐHRUN