Morgunblaðið - 18.02.2012, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2012
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að
kveikja á Friðarsúlunni, Imagine
Peace Tower, á afmælisdegi Yoko
Ono á morgun, laugardaginn 18.
febrúar nk.
Kveikt verður á Friðarsúlunni í
Viðey kl. 19 og mun hún lýsa til
klukkan 9 morguninn eftir.
Friðarsúluna má sjá í beinni út-
sendingu á vefsíðunni imag-
inepeacetower.com. Listaverkið
var afhjúpað á afmælisdegi Johns
Lennons 9. október 2007. Jafnan
logar ljós á henni ár hvert frá 9.
október til 8. desember en það er
dánardagur Lennons.
Kveikt á friðarsúlu
Farþegum Strætó bs. hefur fjölgað
undanfarin misseri, samkvæmt ný-
legri könnun Capacent Gallup, sem
gerð var um mánaðamótin nóv-
ember-desember 2011.
Í febrúar 2010 sögðust 7,5% að-
spurðra nota vagnana reglulega en
nú er sú tala komin upp í 8,8%, sam-
kvæmt upplýsingum frá fyrirtæk-
inu.
Þeir sem notuðu strætó sjaldan í
febrúar 2010 voru 31% en í nýjustu
könnuninni eru þeir 36,9%.
Í könnuninni sögðust 54,2% aldr-
ei nota strætisvagna en í febrúar
2010 var þetta hlutfall 61,6%.
Reynir Jónsson, framkvæmda-
stjóri Strætó, segir í tilkynningu, að
þessar niðurstöður gefi sterkar vís-
bendingar um að viðhorfið til stræt-
isvagnsins sem ferðamáta hafi að
einhverju leyti breyst.
Gefi mælingar sem þessar starfs-
fólki fyrirtækisins fulla ástæðu til
að líta björtum augum fram á veg-
inn.
Morgunblaðið/Sverrir
Farþegum hefur fjölgað hjá Strætó
Sparnaður ehf. hefur birt reiknivél
á heimasíðu sinni þar sem hægt er
að reikna út áhrif dóma og laga á
afborganir gengistryggrða lána.
Reiknivélin hefur verið uppfærð
með tilliti til áhrifa nýs dóms
Hæstaréttar á gengistryggð bíla-
og fasteignalán.
Reiknivélin ber saman þá vexti
sem settir voru í samninginn og
lægstu óverðtryggða vexti Seðla-
banka sem ákveðið var með lögum
að ættu að vera á gengislánum.
Sparnaður segir í tilkynningu að
reiknivélin sé fyrst og fremst hugs-
uð til upplýsinga fyrir lántakendur
um hversu mikið þeir kunni að eiga
inni hjá lánastofnunum vegna dóms
Hæstaréttar um réttan vaxta-
útreikning gengistryggðra lána.
Fyrirtækið geti eðlilega ekki borið
ábyrgð á því ef lánastofnanir fái
aðra niðurstöðu í sínum útreikn-
ingum. Útreikningarnir eigi ein-
göngu að gefa mynd af hugsanlegri
niðurstöðu miðað við þær for-
sendur sem rætt hafi verið um.
Hægt er að skoða reiknivélina á
vefsíðunni sparnadur.is.
Sparnaður birtir
gengislánareiknivél
Umhverfisstofnun vekur athygli á því, að strang-
ar reglur gilda um andlitsmálningu sem eiga að
tryggja að vörurnar valdi ekki heilsutjóni við eðli-
lega notkun.
Kemur ábendingin vegna þess að öskudagur er
á næsta leiti en mörgum börnum finnst andlits-
málun ómissandi hluti af öskudagsskemmtuninni.
Vanda þurfi valið og nota eingöngu málningu sem
ætluð er börnum.
Umhverfisstofnun segir, að rétt sé að lesa vel
innihaldslýsinguna fyrir andlitsmálninguna, en hún eigi að vera á umbúð-
unum. Málningin eigi að uppfylla kröfur sem gerðar eru til bæði snyrtivara
og leikfanga. Slík málning geti innihaldið varasöm efni eins og t.d. litar-
efni, rotvarnarefni og/eða ilmefni. Ýmis litar- og ilmefni geti valdið of-
næmi og rotvarnarefni eins og t.d. paraben hafi sýnt hormónaraskandi
áhrif. Hægt er að slá upp efnaheitum og fá upplýsingar um verkun efnanna
á netinu, t.d. hjá Environmental Working Group og Forbrugerkemi.
Varað við efnum í andlitsmálningu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
mun um helgina fylgjast sér-
staklega með dvöl ungmenna á veit-
inga- og skemmtistöðum.
Hvetur lögreglan rekstraraðila
til að fara að lögum því annars geta
þeir búist við viðurlögum, t.d. svipt-
ingu eða afturköllun rekstrarleyfis.
Lögreglan fylgist með dvöl ung-
menna á skemmtistöðum og grípur
inn í þegar ástæða þykir til. Ung-
lingar yngri en 18 ára mega ekki
vera inni á vínveitingastöðum eftir
kl. 22 nema í fylgd með foreldrum
eða öðrum ættingjum.
Fylgst með
skemmtistöðum
STUTT
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Ég hafði virkilega gaman af og
naut þess að vera í þessu hófi og að
hafa lokið við þetta viðamikla og
merkilega verkefni, að skrifa sögu
þessa félags sem er það félag sem
hefur haft mest áhrif af öllum fé-
lögum í Íslandssögunni á atvinnulíf
og afkomu íslenskrar þjóðar,“ segir
Hjörtur Gíslason, blaðamaður og
annar tveggja höfunda bókarinnar
„Undir straumhvörfum“ sem fjallar
um 100 ára sögu Fiskifélags Íslands,
spurður út í útgáfuhóf bókarinnar
sem haldið var í Víkinni Sjóminja-
safni í gær.
Bókina skrifaði Hjörtur ásamt
Jóni Hjaltasyni sagnfræðingi en
þeir skiptu sögunni nokkurn veginn
jafnt á milli sín. Að sögn Hjartar sá
hann sjálfur um síðari 50 árin og
Jón um þau fyrri. Bókin var rúm tvö
ár í vinnslu og var unnin í samstarfi
við Fiskifélagið. „Fyrri hlutinn
byggist eðli sínu samkvæmt á sagn-
fræði, en seinni hlutinn er blanda af
sagnfræði og blaðamennsku, en
blaðamennskan er náttúrlega sagn-
fræði samtímans,“ segir Hjörtur,
spurður um uppbyggingu bók-
arinnar. „Það var fyllilega tímabært
að gefa bókina út akkúrat núna því
að félagið er náttúrlega ekki orðið
neitt á við það sem það var, hefur
ekki nema einn starfsmann og það
er óvíst um framtíð þess, þannig að
þetta mátti ekki tæpara standa,“
segir Jón um útgáfu bókarinnar, en
hann sá sjálfur um útgáfu hennar.
Spurður út í það hvað hafi að hans
mati staðið upp úr í sögu félagsins
svarar Jón: „Það er fyrst og fremst
þetta hvernig félagið kom nálægt
öllum hlutum með beinum eða
óbeinum hætti, það var alveg sama
hvað var að gerast í sjávarútvegi,
þar var félagið með einum eða öðr-
um hætti.“
Skýrir margt í Íslandssögunni
Í bókinni er m.a. fjallað um að-
komu Fiskifélagsins að upptöku
kvótakerfisins. Að sögn Hjartar var
upptaka kerfisins hér á landi fyrst
rædd á vettvangi Fiskifélagsins árið
1981 en það hafi síðan verið sam-
þykkt á Fiskiþingi félagsins haustið
1983 að prófa kvótakerfið í eitt ár.
„Það er staðfest sannfæring mín að
ef Fiskiþing hefði ekki samþykkt að
fara þessa leið í fiskveiðistjórnun,
m.a. að frumkvæði Kristjáns Ragn-
arssonar, þáverandi formanns og
framkvæmdastjóra LÍÚ, þá hefði
því ekki verið komið á á þessum
tíma og kannski aldrei,“ segir Hjört-
ur. Jón segir bókina skýra margt í
Íslandssögunni og þá einkum um
kvótakerfið og hvernig landhelgis-
og slysavarnamál hafa þróast.
Morgunblaðiði/hag
Útgáfuhóf Höfundar bókarinnar, Hjörtur Gíslason blaðamaður og Jón Hjaltason sagnfræðingur, skoðuðu verkið í
útgáfuhófinu í Víkinni Sjóminjasafni í gær ásamt Kristjáni Loftssyni, formanni stjórnar Fiskifélags Íslands.
Aldarlangri sögu Fiski-
félags Íslands gerð skil
Segja félagið hafa verið hið áhrifamesta í Íslandssögunni
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Bolludagurinn
hefst hjá Reyni bakara
Opnunartími: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
Karamellubollur
með Royal búðingi
Gómsætur biti
á bolludaginn
Góð brauð – betri heilsa