Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012 Álagningu tekjuskatts er lokið á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2011 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra á www.rsk.is og www. skattur.is. Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á lögaðila í viðkomandi sveitarfélagi, liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða sérstaklega auglýstum stöðum dagana 31. október til 14. nóvember 2012 að báðum dögum meðtöldum. Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 30. nóvember 2012. Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framgreindra laga. 31. október 2012 Auglýsing um álagningu opinberra gjalda á lögaðila árið 2012 Halldór Jónsson skrifar um nýttfjölmiðlafrumvarp, vitnar í orð Páls útvarpsstjóra í Pressunni, sem undrast yfirgengilega fyrirgreiðslu Landsbankans við 365 miðla og segir:    Ofan á þetta bæt-ist að nú liggur fyrir Alþingi ríkis- stjórnarfrumvarp sem árlega mun flytja 300-400 millj- ónir króna af auglýs- ingatekjum frá RÚV beint í vasa 365 og Jóns Ásgeirs, sem fyrir er með um 60% af heildarauglýs- ingamarkaðnum á Ís- landi.    En þar með er ekki allt upp talið.Það liggur líka fyrir ríkisstjórn- arfrumvarp sem fjallar um eign- arhald á fjölmiðlum og tryggir að ekki verður hreyft við einsmanns eignarhaldi Jóns Ásgeirs á meira en helmingi íslenskra fjölmiðla, sé mið- að við veltu.    Af hverju stendur ríkisvaldiðþennan grimmilega og grímu- lausa vörð um hagsmuni og ítök Jóns Ásgeirs Jóhannessonar? Skuldar þjóðin honum eitthvað? Skulda stjórnmálaflokkarnir honum eitt- hvað?“    En Halldór Jónsson spyr: „Er ekkinokkuð ljóst ef menn lesa Fréttablaðið hvað Samfylkingin skuldar Jóni Ásgeiri? En það ber nýrra til ef frá RÚV kemur svona kvörtun þar sem sú stofnun hefur legið undir talsverðu ámæli fyrir þjónkun sína við sama stjórn- málaflokk.    Má skilja bréf Páls Magnússonarþannig að honum finnist Sam- fylkingarspillingunni misskipt? Nýtt fjölmiðlafrumvarp skilji RÚV eftir út- undan?“ Halldór Jónsson Halldór spyr: STAKSTEINAR Páll Magnússon Veður víða um heim 30.10., kl. 18.00 Reykjavík -1 skýjað Bolungarvík -2 alskýjað Akureyri -2 snjókoma Kirkjubæjarkl. 0 léttskýjað Vestmannaeyjar -1 heiðskírt Nuuk -1 alskýjað Þórshöfn 3 skúrir Ósló -2 heiðskírt Kaupmannahöfn 5 léttskýjað Stokkhólmur 5 skýjað Helsinki 2 skýjað Lúxemborg 5 skýjað Brussel 7 léttskýjað Dublin 8 skýjað Glasgow 8 skúrir London 10 léttskýjað París 12 skýjað Amsterdam 7 skúrir Hamborg 7 skýjað Berlín 6 skýjað Vín 5 skýjað Moskva 0 frostrigning Algarve 16 skúrir Madríd 8 skúrir Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 18 skýjað Róm 15 léttskýjað Aþena 18 heiðskírt Winnipeg 5 skýjað Montreal 16 skúrir New York 10 skúrir Chicago 5 alskýjað Orlando 14 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 31. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:10 17:14 ÍSAFJÖRÐUR 9:27 17:06 SIGLUFJÖRÐUR 9:11 16:49 DJÚPIVOGUR 8:42 16:40 Katrín Jak- obsdóttir, mennta- og menn- ingarmálaráð- herra, hefur ákveðið að taka þátt í forvali Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs í Reykja- vík, sem fram fer þann 24. nóv- ember. Gefur Katrín kost á sér í fyrsta sæti í öðru hvoru Reykjavík- urkjördæminu. Katrín hefur setið á þingi síðan 2007 og gegnt embætti mennta- og menningarmálaráðherra síðan 2009. „Verkefnið sem nú blasir við er að halda áfram uppbyggingu lands- ins og mín sannfæring er sú að það verði best gert undir merkjum jöfn- uðar, réttlætis og sjálfbærni. Ég vil gjarnan halda áfram að taka þátt í þeirri vinnu og mun gera það af krafti ef kjósendur treysta mér til þess,“ segir Katrín í tilkynningu um framboðið. Gefur kost á sér í 1. sæti í forvali Jónína Benedikts- dóttir íþróttafræð- ingur býður sig fram í 1. sæti á framboðslista Framsókn- arflokksins í Reykjavík- urkjördæmi suður í komandi kosn- ingum til Alþingis. Fram kemur í tilkynningu á heimasíðu Jónínu að helstu kosn- ingamál hennar séu skuldamál heimilanna og smærri fyrirtækja og mannúaðarmál. „Ég hef margar hugmyndir um peningastefnu þjóðarinnar og lausn á þeim hnút sem við þurfum að höggva á er varða gömlu bankana og þá nýju reyndar einnig. Ég lít nýsköpun jákvæðum augum og hef verið frumkvöðull í áratugi. Ég legg af heilum hug í þessa baráttu og hef nægan tíma til þess að fara á fundi og heimsækja fólk og fyrirtæki,“ segir m.a. í tilkynn- ingunni. Býður sig fram í 1. sæti í Reykjavík „Viðbragðsáætlun fyrir Húsavík og nágrenni er tilbúin og var hún kynnt á fundinum. Það er stærsta skrefið í þessum undirbúningi af hálfu al- mannavarna. Fimmtán fulltrúar frá opinberum og hálfopinberum stofn- unum sátu fyrir svörum. Auk þess gáfu jarðeðlisfræðingarnir dr. Sigur- jón Jónsson og Einar Kjartansson greinargóða mynd af jarðhræring- unum á svæðinu. Fundurinn var mjög góður, upplýst og fróðleg um- ræða átti sér stað,“ sagði Svavar Pálsson, sýslumaður á Húsavík, um íbúafund sem haldinn var á Húsavík í gærkvöldi vegna jarðskjálftanna undanfarið. Um 250 manns mættu á fundinn, salurinn á Fosshóteli var fullur. Stöðug skjálftavirkni Jarðskjálftavirki við Eyjafjarð- arál heldur áfram en lítilsháttar hef- ur dregið úr virkninni miðað við síð- ustu daga. Í gær mældust tveir skjálftar undir þremur stigum. Ann- ar, 2,9 stig, var klukkan tæplega sex síðdegis í gær, 20 km NNA af Siglu- firði. Annar rétt minni, 2,8 stig, mældist tæplega tvö í fyrrinótt. Eftir stóra skjálftann, 5,6 stig, sem varð sunnudagsnóttina 21. októ- ber, hefur þróun á virkninni verið til austurs eftir Húsavíkur-Flateyjar- misgenginu, segir á vef Veðurstofu Íslands. thorunn@mbl.is Viðbragðsáætlun tilbúin  Jörð skelfur enn  Íbúafundir á Húsavík og Kópaskeri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.