Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 305. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Rikka kemur sér fyrir… 2. Glymjandi hrannir gengu á land 3. Myrkur á Manhattan 4. „Búið að fylla baðkarið af vatni“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Myndband við endurhljóðblöndun tónlistarmannsins Hermigervils á lagi reggíhljómsveitarinnar Ojba Rasta, „Jolly Good“, hefur nú litið dagsins ljós og var það kvikmynda- gerðarmaðurinn Haukur Valdimar Pálsson sem leikstýrði því. Tökur á myndbandinu fóru m.a. fram á Eng- landi, í Níger og Egyptalandi. Myndband tekið í Níger og Egyptalandi  Sigrún Lilja Guðjónsdóttir hefur hannað skólínu fyrir Hag- kaup og ber hún nafnið 101. Á morgun hefst leit að andliti línunnar með áheyrnar- prufum fyrir utan Hagkaup í Smáralind kl. 17-19. Um- sækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og eru beðnir að koma með ferilskrá, myndir o.fl. sem þeir telja að skipt geti máli við valið. Leitað að fyrirsætu fyrir skólínuna 101  Aníta Hirlekar, fatahönnunarnemi við lista- og hönnunarháskólann Central Saint Martins í Lundúnum, er tilnefnd til fatahönnunarverðlauna tímaritsins Vogue, The Muusex Vogue Talents Young Vision Award. Atkvæðagreiðsla fer fram á vefnum muuse- .com og er Aníta ein þeirra sem hvað flest at- kvæði hafa hlotið. Aníta tilnefnd til verðlauna Vogue Á fimmtudag og föstudag Norðan 18-25 m/s og snjókoma. Úr- komulaust að kalla sunnantil á landinu, en mjög snarpir vind- strengir við fjöll. Frost 0 til 6 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 18-23 m/s á Vestfjörðum, en 10-18 m/s annars staðar. Snjókoma eða él, en skýjað með köflum sunnanlands. Hvessir víða um land seint í dag, 15-23 í kvöld. VEÐUR Fram er áfram með fullt hús í N1-deild kvenna í handknattleik en liðið inn- byrti sinn sjötta sigur á Íslandsmótinu í gærkvöld þegar það hafði betur á móti Stjörnunni í Mýr- inni í Garðabæ. Fram- konur eru einar á toppi N1-deildarinnar með 12 stig. Íslands- og bikarmeistarar Vals hafa 10 stig en eiga leik til góða. »2 Framarar áfram með fullt hús „Mér gengur samt rosalega vel núna og verð væntanlega tilbúinn í fótbolta eftir rúman mán- uð. Því miður verður tímabilið í Noregi búið þá en það var alltaf vit- að,“ segir Stefán Logi Magn- ússon, knatt- spyrnumark- vörður hjá Lille- ström, sem verið í endurhæfingu eftir aðgerð hér heima síðan í ágúst. »4 Klár í slaginn þegar tímabilinu verður lokið Íslenska landsliðið í handknattleik karla hefur undankeppni Evrópu- mótsins á heimavelli í kvöld þegar það tekur á móti Hvít-Rússum í Laugardalshöllinni. Nýr landsliðs- þjálfari, Aron Kristjánsson, segir ís- lenska liðið verða að leika af aga. Stefnan sé sett á sigur enda komi ekkert annað til greina en að vinna alla heimaleiki. »1 Undankeppni EM hefst á leik við Hvít-Rússa ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Þetta er mjög góður félagsskap- ur,“ segir Mjöll Flosadóttir við- skiptafræðingur sem tók við starfi forseta Soroptimistasambands Ís- lands á haustfundi sambandsins á Selfossi á dögunum. Soroptimistasambandið (sor- optimist.is) er starfsgreint félag kvenna sem vinnur að líknarmálum með hagsmuni kvenna og barna sérstaklega að leiðarljósi. Ekki er hægt að sækja um inngöngu í sam- tökin heldur er konum boðin þátt- taka með það að markmiði að fé- lagsmenn komi úr sem flestum starfsstéttum. Fjölbreytt verkefni Verkefnin eru fjölbreytt og árangurinn nýtist konum og börn- um úti um allan heim. Soroptim- istasystur afla fjár með ýmsum hætti. Þar má nefna félagsgjöld, sölu á ýmsum varningi, sérstök fjáröflunarkvöld, golfmót og verk- töku hjá sveitarfélögum. Sjúkrahús, hjúkrunarheimili, öldrunarheimili og dagvist aldraðra hafa verið styrkt, einnig kirkjur og skólar, börn fanga og vistfólk með- ferðarstofnana. Auk þess afmark- aðir hópar með sérþarfir. Börn er- lendis hafa verið styrkt með ýmsum hætti og svo má lengi telja. „Hver og einn klúbbur vinnur fyrst og fremst í sínu heimahéraði, í sínu nærsamfélagi,“ segir Mjöll og bendir á að sinn klúbbur, Hafnarfjarðar- og Garða- bæjarklúbburinn, hafi til dæmis stutt vel við bak- ið á Krísuvíkursamtök- unum. „Ég er mjög ánægð að vera soroptimisti,“ segir Mjöll sem hefur verið félagi síðan 1989 eða í 23 ár. Hún bendir á að systur hugsi sérlega vel hver um aðra, beri virðingu hver fyrir annarri og það sé uppbyggjandi að vinna í svona félagsskap, þar sem góð og mannbætandi gildi séu höfð að leiðarljósi. Gegn kynbundnu ofbeldi Undanfarin ár hefur Soroptim- istasamband Íslands tekið þátt í al- þjóðlegu 16 daga átaki gegn kyn- bundnu ofbeldi sem haldið er dagana 25. nóvember til 10. desem- ber. Dagsetningar átaksins eru táknrænar; 25. nóvember er alþjóð- legur dagur gegn ofbeldi gegn kon- um og 10. desember er alþjóðlegur mannréttindadagur. „Hér vilja allar láta gott af sér leiða,“ segir Mjöll. Systur láta gott af sér leiða  Soroptimista- sambandið styður konur og börn Forsetar Mjöll Flosadóttir til vinstri tekur við sem forseti Soroptimistasambands Íslands af Ingunni Ásdísi Sig- urjónsdóttur á haustfundi sambandsins á Selfossi. Mjöll verður forseti sambandsins í tvö ár. Soroptimistar eru bjartsýnissystur sem gera miklar kröfur til siðgæðis, vinna að bættri stöðu kvenna, mannréttindum, jafnrétti, framförum og friði. Innan alþjóðasamtakanna eru um 90.000 konur í 125 löndum og þar af um 600 á Íslandi í 18 klúbbum. 80 konur stofnuðu fyrsta klúbb- inn í Oakland í Bandaríkjunum 1921 en fyrsti klúbburinn á Ís- landi, Soroptimistaklúbbur Reykjavíkur, var stofnaður 1959. Nýjasti klúbburinn var stofnaður við Húnaflóa 5. nóvember í fyrra. Soroptimistasamband Íslands var stofnað 1974. Soroptimistar beita sér fyrir því að veita þjónustu í heimabyggð, heimalandi og á alþjóðavettvangi. Hver klúbbur velur sér verkefni við hæfi og tekur mið af eigin að- stæðum og verkefnamarkmiðum Alþjóðasambandsins á hverjum tíma. Bjartsýnissystur víða um heim UM 90.000 FÉLAGAR Í 125 LÖNDUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.