Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 31.10.2012, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2012 Í dag, miðvikudag, klukkan 18 verð- ur opnuð í sýningarsal Listamanna á Skúlagötu 32 sýning á nýjum mynd- verkum systranna Lilju og Ingi- bjargar Birgisdætra. Sýninguna kalla þær Varúð en verkin unnu þær út frá myndheimi sem þær sköpuðu í tengslum við nýjustu plötu hljóm- sveitarinnar Sigur Rósar, Valtara. „Við systur höfum unnið mikið saman, erum góðan vinkonur og með svipaða fagurfræði,“ segir Lilja. Fyrir þessa sýningu vann hún myndverk en Ingibjörg myndbands- verk. „Þegar við sýndum hvor ann- arri verkin þá pössuðu þau full- komlega saman og studdu hvert annað,“ segir hún. Sýninguna vinna þær systur út frá tónlist Sigur Rósar og sýningin verður opnuð um leið og Airwaves- hátíðin hefst. „Sá myndheimur sem við Inga sköpuðum var unninn undir áhrifum tónlistar Sigur Rósar sem loka Airwaves í ár,“ segir Lilja. „Samstarf við tónlistarmenn er mjög gefandi. Tónlist í sjálfu sér er hug- læg og óáþreifanleg og sjáum við um að gefa henni ákveðna efniskennd. Tónlistin er falleg, hún er drunga- leg, hún er mikil um sig og bæði létt og þung. Togarinn sem birtist á um- slaginu er þungur í eðli sínu en svíf- ur þó í lausu lofti; það undirstrikar ákveðna sjónhverfingu og þyngd- arleysi. Sigur Rós gaf okkur alveg frjálsar hendur en verkin eru inn- blásin af tónlistinni.“ efi@mbl.is Myndverkin eru innblásin af tónlist Sigur Rósar  Lilja og Ingibjörg Birgisdætur sýna hjá Listamönnum Morgunblaðið/Krsitinn Tónlistarmyndir Lilja Birgisdóttir við uppsetningu sýningarinnar hjá Lista- mönnum. Ingibjörg var vant við látin, eignaðist dóttur á föstudaginn var. Lilja Guðmundsdóttir sópr- ansöngkona, og söngnemi í Vín, tekur á tónleikum í Salnum í Kópa- vogi í dag við viðurkenningu úr styrktarsjóði Önnu K. Nordal. Tón- leikar Önnu hefjast klukkan 17.30 og er aðgangur ókeypis. Jónas Ingi- mundarson leikur á píanóið og er efisskráin fjölbreytileg. Tilefni tónleikanna er að Lilja mun fá afhenta fyrrnefnda við- urkenningu. Er þetta í tólfta sinn sem viðurkenning er veitt úr Styrktarsjóði Önnu K. Nordal en honum ber að styrkja efnilega tón- listarnema í söng og fíólínspili. Áð- ur hafa hlotið styrk úr sjóðnum ungir og efnilegir tónlistarnemar sem nú eru starfandi tónlist- armenn. Má meðal annarra nefna Svein Dúa Hjörleifsson tenór, Guð- rúnu Jóhönnu Ólafsdóttur sópran og Ara Vilhjálmsson fiðluleikara. Sjóðurinn er stofnaður af Önnu Karólínu Nordal sem fæddist í Vesturheimi árið 1902 og lést árið 1998. Hún bjó alla tíð í Kanada og kom aldrei til Íslands en hafði engu að síður sterkar taugar til landsins og sýndi ættlandi sínu og Íslend- ingum mikla ræktarsemi eins og sjóðurinn er vitnisburður um. Lilja hlýtur viðurkenningu  Síðdegistónleikar sópransöngkonu Söngkonan Lilja er sú tólfta sem hlýtur viðurkenninguna. Bókmenntaborgin Reykjavík og Síminn bjóða vegfarendum nú að hlýða á íslenskan skáldskap á völd- um bekkjum í borginni. Bekkirnir eru fjórtán talsins og gefst vegfar- endum kostur á að tylla sér á þá, og auk þess að hvíla lúin bein hlýða þar á upplestur úr íslenskum bók- menntum, bæði á íslensku og ensku. Á bekkjunum er skjöldur með texta og rafrænum kóða, en með því að skanna kóðann með snjallsíma má nálgast upplestrana, sem liggja á snjallsímavef Bókmenntaborg- arinnar. Á sama vef er ítarefni um bókmenntamerkingar í Reykjavík, ásamt rafrænum bókmenntagöng- um og bókmenntakorti. Upptök- urnar voru unnar í samstarfi við Rás 1 Ríkisútvarpsins. Fjórir bekkjanna eru við styttur skálda, Jónasar Hallgrímssonar, Tómasar Guðmundssonar, Einars Benediktssonar og Þorsteins Erl- ingssonar. Þá má hlýða á brot úr sögu Svövu Jakobsdóttur „End- urkoma“ við austurbakka Tjarn- arinnar og úr Svartfugli eftir Gunn- ar Gunnarsson á Skólavörðuholti. Austurvöllur Á bekkjunum er hægt að hlýða á upplestur í snjallsíma. Hlýtt á upplestur á bekkjum  Bekkir í Reykjavík helgaðir skáldskap Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Á síðustu sýningu minni í i8, þegar galleríið var við Klapparstíg, voru verkin upp um alla veggi, og þannig hef ég oft sett verk upp. Hins vegar hef ég aldrei fyrr gert sýningu eins og þessa, þar sem verkin eru öll í sömu stærð og í beinni línu,“ segir Eggert Pétursson myndlistarmaður. Hann er að leiða blaðamann um sýn- ingu sem hann opnar með nýjum verkum í i8 Galleríi, Tryggvagötu 16, á morgun kl. 17. Verkin á þessari sýningu Eggerts eru öll í stærðinni 80 x 100 cm, sem er klassísk stærð fyrir portrettmyndir, og sýna undursamlega gróður- og blómaheima. Suma afar litríka. En hugsaði hann verkin sem portrett- myndir? „Ég hafði það í huga þegar ég var að vinna verkin,“ svarar hann. „En eru þetta blómaportrett eða eitthvað allt annað? Kannski eru þetta spegl- ar, því sumir standa svo lengi frammi fyrir myndunum mínum, finnst vera margt að skoða – eða eru í sjálfs- skoðun.“ Þegar komið er inn í salinn taka fyrst verk í kaldari tónum á móti gestum en innar eru litirnir heitari. „Vissulega eru þó heitir blettir í þeim öllum,“ segir Eggert og bendir á gló- andi sóleyjar. „En þetta er samtín- ingur hugmynda sem hafa blundað í mér og ég tókst á við eftir að hafa ákveðið lögunina á sýningunni.“ Setur Eggert sér ákveðnar skorð- ur, eins og hvaða jurtir geta staðið saman í mynd? „Það geta verið margskonar regl- ur,“ útskýrir hann. „Þarna er til dæmis hálendisflóra,“ og hann bendir á verk frammi við dyr. „Í þessu verki er síðan ein ætt, maríuvandarættin. Þetta eru grænvöndur, gullvöndur, mýrargras, blástjarna og maríu- vöndur – allt plöntur sem vaxa hér á landi. Það er gömul hugmynd að tefla þeim saman, hefur þvælst í skissu- bókum í um tíu ár.“ Eggert gengur að næsta verki og segir að þarna sé hann að skoða eina brönugrasategund, barnarót. „Maður finnur mörg litbrigði af þeirri plöntu. Liturinn breytist yfir sumarið og hér má sjá nokkur litbrigði sem ég hef séð og man eftir: grænleitt, fjólublátt, dumbrautt, appelsínugult. Svo set ég hérna eina kornsúru, sem er algjör- lega óskyld.“ Hann bendir á sakleys- islega súruna í horni verksins. 95 prósent málverk „Þetta er eyrarrós,“ og það fer ekki á milli mála að hann á við fag- urbleikt blómið sem kallar á athygli. „Já, þessi skærbleiki litur er erfiður, erfitt að ná honum í málverki. Og áferðinni á krónublöðunum.“ Hér leysist umhverfi blómanna upp í expressjóníska óreiðu, segi ég. „Þetta er mál- verk!“ svarar hann. „Þetta er 95 prósent málverk. Þarna var ég að hugsa um klettana sem þessi eyrarrós vex í, og um öll visnuðu laufin og stilkana sem liggja undir þar sem hún hangir í klett- unum.“ En þessi eldrauði blettur í miðju eins verksins? „Þetta er sóldögg, sem vex í mýr- um. Það er frekar erfitt að finna hana en í laufunum er þessi sterkrauði lit- ur og þegar ég fór að skoða hana í huganum fannst mér hann smita út í umhverfið. Slíka áru má sjá kringum blóm í fleiri myndum. Þetta eru litir sem umkringja plöntuna og útskýra hana, rétt eins og í portrettmyndum þar sem umhverfi útskýrir persón- ur.“ Þannig heldur Eggert áfram að fræða um jurtir í verkunum, eins og þyrnirósina og ýmis afbrigði af brennisóley, en hann segist hafa fundið ólík afbrigði hennar til fjalla. „Það er nokkuð sem grasafræðingar þyrftu að athuga betur, þarna eru hugsanlega einhverjar deiliteg- undir.“ Ef til vill verður rætt um þær á málþingi sem haldið verður í Öskju, húsi HÍ, á miðvikudaginn kemur en þar verður rætt um blómin í mál- verkum Eggerts. „Svo set ég hérna eina korn- súru, sem er algjörlega óskyld“  Eggert Pétursson sýnir ný málverk í i8 Morgunblaðið/Einar Falur Blómaheimar „Þetta eru litir sem umkringja plöntuna og útskýra hana,“ segir Eggert um túlkun sína á sóldögg. Sýningu Ólafar Nordal í Listasafni Íslands, Musée Islandique, lýkur á sunnudaginn kemur. Á sýningunni vinnur hún með afsteypur sem gerðar voru af íslensku fólki á 19. öld og varðveittar eru á safni á Kanaríeyjum. Vann Ólöf með fund- inn um nokkurra mánaða skeið á Mannfræðisafninu í París. Sýningunni lýkur Á morgun, samhliða opnun sýn- ingarinnar í i8, kemur út hjá Crymogeu ný og vegleg bók, Eggert Pétursson – Málverk/ Paintings. Í bókinni eru helstu málverk Eggerts frá rúmlega 20 árum, sum þeirra hafa aðeins verið sýnd erlendis, eru í eigu erlendra safna og safnara og gefst unnendum verka Eggerts tækifæri til að sjá þau hér í fyrsta skipti. Vægi verkanna í hönnuninni er í samræmi við raunverulega stærð þeirra. Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdóttir hanna bókina og er þetta fimmta bókverkið sem þær vinna með Eggerti. Málverk frá um 1990 BÓK UM VERK EGGERTS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.