Fréttablaðið - 07.12.2013, Blaðsíða 10
7. desember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
Magimix matvinnsluvélar, blandarar og safapressur.
Kaffivélar fyrir Nespresso og kaffi frá Caffé Vergnano
fyrir Nespressovélar.
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
JÓLATILBOÐ
Sími 552 2440
www.borgarbilastodin.is
Borgarbílastöðin. ehf
ATH. Ekkert utanbæjargjald.
Eldri borgara og öryrkjar fá 20% Stgr.afslátt!
TAXITAXI
Skátahreyfingin hefur um árabil selt sígræn
eðaltré í hæsta gæðaflokki og prýða þau
þúsundir heimila og fyrirtækja.
Sígrænu jólatrén eru seld í Skátamiðstöðinni
Hraunbæ 123 í Reykjavík, s: 550 9800 og á
skátavefnum: www.skatar.is
Frábærir eiginleikar:
-eðaltré ár eftir ár!
Sígræna jólatréð
10 ára ábyrgð
12 stærðir (90-500 cm)
Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga
Veldur ekki ofnæmi
Eldtraust
Þarf ekki að vökva
Íslenskar leiðbeiningar
HEILBRIGÐISMÁL Fyrirhugaðar
breytingar á fæðingarþjónustu
Landspítalans valda ljósmæðr-
um áhyggjum af því að eðlilegum
fæðingum og möguleikum kvenna
til að velja sér fæðingarstaði muni
fækka. Breytingarnar fela meðal
annars í sér að starfsemi Hreið-
ursins sameinast fæðingardeild
og meðgöngu- og sængurkvenn-
adeild.
Ljósmæður Hreiðursins eru
slegnar yfir fyrirhuguðum breyt-
ingum. Fæðingarþjónusta Hreið-
ursins hefur verið starfrækt
á Landspítalanum í 15 ár sam-
kvæmt hugmyndafræði um ljós-
móðurleidda
fæðingarþjón-
ustu og eðli-
legar fæðingar.
Anna Eðvalds-
dóttir, ljósmóð-
ir í Hreiðrinu
og varaformað-
ur Ljósmæðra-
félags Íslands,
segir áhyggjur
ljósmæðranna
me ð a l a n n -
ars koma til vegna rannsókna á
vinnubrögðum ljósmæðra. Þær
sýni að á almennum fæðingar-
deildum, þar sem aðstæður bjóða
upp á inngrip í fæðingar grípi
ljósmæður oftar inn í að óþörfu.
Það eigi einnig við, þrátt fyrir
ljósmóðirin hafi mikla reynslu af
aðstoð í eðlilegum fæðingum án
inngripa.
Anna Sigríður Vernharðsdóttir,
yfirljósmóðir fæðingardeildar-
innar, segir eitt af markmiðum
breytinganna á fæðingarþjónust-
unni vera að auka tíðni eðlilegra
fæðinga á sjúkrahúsinu. Aðspurð
segir hún ekki vera til viðmið á
Landspítalanum um hvað teljist til
eðlilegra fæðinga, en segir að alla
jafna sé miðað við inngripalausa
fæðingu.
Könnun á fæðingum á Land-
spítalanum, sem framkvæmd
var árið 2011, leiddi í ljós að tæp-
lega 63 prósent fæðinga í Hreiðr-
inu voru án allra inngripa. Á
Óttast aukin inngrip
Ljósmæður óttast að inngripum í fæðingar fjölgi í kjölfar breytinga á fæðingarþjón-
ustu Landspítalans. Rannsóknir sýna að inngrip er algengara ef aðstæður bjóða upp
á slíkt. Yfirljósmóðir segir eitt markmiðanna að auka hlutfall eðlilegra fæðinga.
ANNA SIGRÍÐUR
VERNHARÐS-
DÓTTIR
„Ég valdi Hreiðrið því að ég stefndi á náttúrulega, inngripalausa fæðingu,“
segir Marta Goðadóttir, sem nýtti sér þjónustu Hreiðursins þegar hún átti
fyrsta barn sitt. Fæðingin endaði þó ekki þar, því útvíkkunin hætti í miðju kafi
og eftir langa mæðu var hún flutt yfir á fæðingardeildina. Þaðan fór hún svo
í bráðakeisara. „Ég hef mjög jákvæða reynslu af báðum stöðum og fann ekki
gríðarlega mikinn mun. Fyrst og fremst er mikilvægt að konur hafi val og það
sé virt. Valið er svo mikilvægt fyrir konur og eykur sjálfstraust þeirra í fæð-
ingunni,“ segir Marta. Stella Ólafsdóttir hafði stefnt á að eiga fyrra barn sitt í
Hreiðrinu, en þá reyndist allt vera fullt og hún átti á fæðingardeildinni. Hún átti
svo sitt annað barn í Hreiðrinu fyrir stuttu og er sammála því að þjónustan sé
sambærileg á deildunum. Vinkonurnar segja muninn helst að finna í aðstöðu
fyrir pabbana. „Það er pabbavænna í Hreiðrinu, sérstaklega eftir fæðinguna.
Þegar ég var komin á sængurkvennadeild eftir keisaraskurðinn þótti mér mjög
erfitt að ekki var pláss fyrir makann minn og varð lítil í mér,“ segir Marta.
Um markmið sameinaðrar fæðingardeildar að fjölga eðlilegum fæðingum
segir Marta: „Í fyrsta lagi spyr ég á móti: Hvað er eðlilega fæðing? Ef átt er
við inngripalausa fæðingu, þá er það skrýtið markmið því þetta eru mjög ólík
ferli og kannski ekki hægt að sinna báðum hópum jafn vel og í núverandi
fyrirkomulagi. Ég upplifði tvískipta fæðingu, þar sem hún var meira úr mínum
höndum þegar ég fór yfir á fæðingardeildina. Þar þurfti ég að leggja traust
mitt á starfsfólkið, en í Hreiðrinu treysti ég á sjálfa mig.“ Stella segir jákvætt
ef fjölga á eðlilegum fæðingum. „Ef hugmyndafræði Hreiðursins verður nýtt
áfram, þá er það ekkert nema gott,“ segir hún.
Pabbavænna í Hreiðrinu
REYNSLUNNI RÍKARI Stella og Marta stefndu báðar að því að eiga í hreiðrinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ungmennafélag Íslands auglýsir húsnæði í Þrastalundi til leigu eða sölu.
Þrastalundur sem staðsettur er í jaðri Þrastaskógar við Sogið í Grímsnesi er ein fallegasta náttúruperla Suðurlands.
Þrastalundur og Þrastaskógur bjóða upp á mikla möguleika í ferðaþjónustu, s.s. veitingarekstur, tjaldsvæði,
útivist, menningarviðburði og margt fl eira.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Ungmennafélags Íslands
í síma 568 2929 eða í netfanginu saemundur@umfi .is.
Frestur til að skila inn tilboðum er til 20. desember.
Þrastalundur – til leigu eða sölu
fæðingar deildinni reyndust þær
aftur á móti vera 16 prósent, en
í því samhengi verður að hafa í
huga að allar áhættusamar fæð-
ingar fara fram á fæðingardeild-
inni. Í heild reyndust 25,6 prósent
fæðinga á sjúkrahúsinu vera án
allra inngripa. „Við teljum okkur
geta hækkað þetta hlutfall,“ segir
Anna Sigríður. eva@frettabladid.is