Fréttablaðið - 07.12.2013, Síða 64
7. desember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 64
víst að honum myndi ekki auðn-
ast að fylkja liði á ný, heldur yrði
að hrökklast burt og Vandalaríkið
stæði óskaddað eftir.
En þá gerðist nokkuð óvænt. Á
vígvellinum gekk Gelimer fram
á lík bróður síns Ammatusar sem
hafði fallið eftir að hafa drepið
tólf menn af liði Belisaríusar.
Og svo elskaði Gelimer bróður
sinn að hann virðist hafa fyllst
algjörri örvæntingu, hætti að elt-
ast við Belisaríus og lét her sinn
nema staðar meðan hann jarðsetti
Ammatus á vígvellinum með mik-
illi viðhöfn. Þetta uppátæki Vand-
alakóngs gaf Belisaríusi færi á að
sleppa burt með her sinn og stefna
til Karþagó sem nú var óvarin.
Þar var honum fagnað af íbúum,
enda voru Vandalar aðeins fámenn
yfirstétt í landinu, og nokkrum
mánuðum síðar sigraði Belisar-
íus svo Gelimer í úrslitaorrustu
og ríki Vandala var þar með fallið
og hvarf úr sögunni. Býsansríkið
varð hins vegar aldrei máttugt á
þessum slóðum og þegar Arabar
hófu herferð sína frá Arabíuskaga
hundrað árum seinna hrundi ríkið
og Norður-Afríka hvarf undir
ægishjálm íslams.
Cirta-játningin fræga
En setjum nú svo að Gelimer hefði
elskað bróður sinn ögn minna.
Hann hefði haldið áfram að reka
flótta Belisaríusar sem hefði
lúpast brott með skottið milli lapp-
anna; hvað hefði þá gerst? Jú, það
hefði getað breytt ýmsu. Í tíma-
ritinu Skakka turninum bjó ég
fyrir fimm árum til fantasíu um
það og ætla að leyfa mér að birta
hér stuttan útdrátt úr henni, sem
er settur fram eins og sannsögul
upprifjun af sögu Vandala eftir
hinn ímyndaða sigur þeirra gegn
Belisaríusi.
Og þá er þar til að taka að eftir
sigur Gelimers á Belisaríusi varð
Justiníanus Býsanskeisari að við-
urkenna yfirráð Vandala í Afríku.
Gelimer sneri sér þá að því að
sætta alþýðu Vandalaríkis við yfir-
stjórn sína og landa sinna og í því
fólst meðal annars að leggja drög
að samvinnu ólíkra kirkjudeilda.
Varð úr því Cirta-játningin fræga,
þar sem drög voru lögð að sam-
þættingu kristindómsins og hinnar
gömlu sólartrúar Rómverja, sem
aldrei hafði dáið að fullu út. Þá
sneri Gelimer sér að því að vinna
Mára til fylgis við Vandala, en þeir
bjuggu í vesturhluta ríkisins og
höfðu verið bæði Vandölum og þar
á undan Rómverjum óþægur ljár
í þúfu. Gelimer fékk helsta skáld
Vandala til að yrkja mikið söguljóð
þar sem farið var fögrum orðum
um þátt Mára í sameiginlegri vörn
þeirra Vandala gegn innrás Gota
frá Spáni. Márar voru og skip-
aðir í ýmis mikilsháttar embætti
í ríkinu. Brátt tóku Márar að líta
á sig sem bræður og vini Vandala
og ríkið efldist og styrktist að
mun. Gelimer endurvakti tengsl
Norður-Afríkubúa við hina horfnu
Púnverja, sem Rómverjar höfðu
svo lengi att kappi við, og risastór
stytta af Hannibal Barca, fyrrum
Karþagó-kóngi, var reist á torg-
inu í höfuðborginni við hlið álíka
stórrar styttu af Gelimier sjálfum,
sem dó 581 og hlaut að verðleikum
nafnbótina „hinn mikli“.
Árið 603 kom svo Asdrubalus
konungur til ríkis og fannst tíma-
bært að hefja útþenslustefnu,
hann náði suðurhluta Spánar þar
sem til varð bandalagsríki Vand-
ala, Andalúsía, og hann náði líka
Egiftalandi um tíma frá Býsans-
mönnum. Annars voru fyrstu ára-
tugir sjöundu aldar undirlagðir
af trúarbragðadeilum, Cirta-játn-
ingin þróaðist æ meir til sjálf-
stæðra trúarbragða en litlir hópar
kaþólskra ofsatrúarmanna héldu
uppi hryðjuverkum og myrtu
meðal annars tvo Vandalakónga á
þessum árum. Vandalar náðu hins
vegar páfanum í Róm til fylgis við
sinn sið.
Á seinni hluta sjöundu aldar
glímdu Vandalar við Araba sem
höfðu lagt undir sig Miðaustur-
lönd eftir útrás frá Arabíuskaga,
innblásnir af herskáum anda spá-
manns að nafni Múham. Nú kom
sér vel hve undirstöður Vandala-
ríkis voru orðnar styrkar því
þeir náðu að hrinda innrás Araba
algjörlega og náðu svo Egiftalandi
aftur og héldu því upp frá því. Í
bandalagi við sína fornu fjend-
ur í Býsans náðu Vandalar svo
að hrekja Arabana aftur suður á
Arabíuskaga og útbreiðsla hinnar
nýju trúar þeirra stöðvaðist og
takmarkaðist við upprunaleg lönd
Araba. Býsansríkið var þó illa
sært eftir átökin og missti brátt
mestöll lönd sína í Miðausturlönd-
um í hendur uppreisnarmanna í
Sýrlandi.
Í Evrópu voru risin upp ýmis
ríki á rústum Rómaveldis, og um
tíma virtist ríki Franka líklegt til
afreka, en í hvert sinn sem ein-
hverjir gerðu sig líklega til að ná
of stórum svæðum í Evrópu undir
sig komu Vandalar til skjalanna,
sendu hersveitir og brutu þá á bak
aftur. Þeir vildu gæta þess vel að
ekki risi eitt öflugt ríki í Evrópu,
þótt ekki hefðu þeir áhuga á þeim
hrjóstrugu villimannalendum
sjálfir.
Þegar komið var rétt fram
undir aldamótin 800 urðu afdrifa-
ríkir atburðir. Gæsarek konung-
ur III. hvatti þá landstjóra sinn í
héruðum Mára til að leita suður á
bóginn meðfram Afríkuströndum
og á vesturströnd álfunnar eign-
uðust Vandalar brátt miklar lend-
ur. Auðæfi þaðan styrktu ríkið
enn í sessi og kóngar Vandala
notuðu auðæfin til að efla mjög
menntun, háskólar voru stofn-
aðir og vísindarannsóknir jukust
gríðarlega.
Kvenréttindi á oddinn
Frumkvæði og hugmyndaskipti
urðu aðalsmerki Vandala. Þeir
báru gæfu til að eyða ekki orku í
trúarbragðadeilur, enda rúmuðust
flest sjónarmið undir Cirta-trúnni
sem nú var fullmótuð og fólst í að
hverjum væri heimilt að tilbiðja á
sinn eigin hátt „tign þess guðs sem
sólina skapaði“. Skipaferðir milli
Miðjarðarhafs og landa Vandala í
Vestur-Afríku urðu svo til þess að
ný meginlönd fundust fyrir vestan
Atlantshafið, og þá tóku skipaferð-
ir, verslun og landkönnun mikinn
fjörkipp. Öll þessi þróun tók nokk-
urn tíma en um 1250 hófust sigl-
ingar Vandala til Asíu fyrir alvöru,
og í kjölfar þeirra varð iðnbylting-
in í Vandalíu um 1400. Nokkrar öfl-
ugar drottningar í Vandalíu settu
kvenréttindi á oddinn. Framfarir á
öllum sviðum urðu stórstígar eftir
það og Vandalarnir Gofas Ulan og
Hildo Sertore urðu eins og allir
vita fyrstu mennirnir til að lenda á
tunglinu árið 1652.
Og ekki vonum seinna!
FLÆKJUSAGA
Illugi Jökulsson
sleppir gjörsamlega
fram af sér beislinu
og býr til – á mjög
hæpnum forsendum
– nýja sögu
um öflugt
stórveldi
í Afríku
sem í
raun
var
aldrei
til.
Skoðaðu úrvalið á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040
Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Notaðir bílar
- Brimborg
Tilboð: 5.890.000 kr.
Toyota Land Cruiser VX 4x4 KMR01
Skráður febrúar 2008, 3,0Di dísil, sjálfskiptur
Ekinn 63.000 km.
Ásett verð: 6.190.000 kr.
Tilboð: 3.650.000 kr.
Ford Escape Limited AWD LDB02
Skráður júní 2011, 2,5i bensín, sjálfskiptur
Ekinn 66.000 km.
Ásett verð: 3.950.000 kr.
Tilboð: 4.490.000 kr.
Ford Kuga Titanium S AWD YGG14
Skráður maí 2012, 2,0TDCi dísil, sjálfskiptur
Ekinn 63.000 km.
Ásett verð: 4.850.000 kr.
400.000 KR.
FERÐAFJÖR NOTAÐRA BÍLA
FINNDU BÍLINN ÞINN Á
NOTADIR.BRIMBORG.IS
*Allir sem kaupa notaðan bíl af Brimborg á tímabilinu 7. nóvember 2013 til og með 20. desember 2013 fara í pott. Einn heppinn vinningshafi
verður svo dreginn út 23. desember 2013 og fær hann 400.000 kr. gjafabréf frá WOW air. Athugið á ekki við um umboðssölubíla.
Kauptu notaðan bíl af Brimborg
og þú átt möguleika á að vinna
* GJAFABRÉF FRÁ WOWair
JEPPAR
Í GÓÐU ÚRVALI
Vertu með!
Fjórhjóladrifinn,
sparneytinn og
vel búinn
Hvert myndir
þú fara?
Í ábyrgð
Rúmgóður
og öflugur
sportjeppi
Vel búinn
og öflugur
dísil jeppi
Síðustu tvær flækjusögur fjölluðu um ógurlegt stríð Býsansmanna eða Austrómverska ríkisins við Persa í blábyrjun sjö-undu aldar eftir Krist, en
þeim langvinna slag lauk með því
að stórveldin stóðu bæði hálflöm-
uð eftir og urðu því auðveld bráð
Aröbum þegar þeir gerðu útrás
frá Arabíuskaga og náðu á örfáum
ÞEGAR VANDALAR
LENTU Á TUNGLINU
GELIMER
KONUNGUR
BELISARÍUS
HERSHÖFÐINGI
árum stórum hlutum bæði Býsans
og Persíu. Og tóku síðan að breiða
íslam út um heiminn. En gæti
sagan hafa orðið öðruvísi? Getum
við fundið einhvern tímapunkt þar
sem sagan hefði getað breytt um
stefnu út af einhverju smáatriði
og orðið öðruvísi? Og íslam hefði
þá til dæmis aldrei komið til sög-
unnar?
Og jú, það er hægðarleikur að
búa til slíkar sviðsmyndir. Ég hef
til dæmis löngum skemmt mér við
tilhugsunina um hvernig veraldar-
sagan hefði orðið öðruvísi ef Geli-
mer Vandalakóngur hefði ekki
fengið hálfgert taugaáfall við að
sjá bróður sinn fallinn á vígvelli
nálægt Karþagó árið 533. Og út frá
því má smíða hátimbraða sögu sem
til dæmis leiðir til þess að íslam
verður aldrei að alvöru afli í ver-
aldarsögunni en hins vegar hefjast
tunglferðir fjórum öldum fyrr en
varð í raun og veru.
Kurteisleg framganga
Vandalar voru germanskur ætt-
bálkur sem fyrst verður fyrir
alvöru vart við á sléttum Póllands
á fjórðu öld eftir Krist. Innrás
Húna inn í Mið-Evrópu varð til
þess að þeir hröktust inn í Róma-
veldi og fóru um Gallíu eða Frakk-
land og síðan Spán en stigu árið
429 það óvænta skref að kaupa
undir sig skip og flytja alla þjóðina
til Norður-Afríku. Þjóðin taldi þá
80.000 sálir, karla, konur og börn,
en til samanburðar má geta þess
að það er rétt rúmlega sá fjöldi
sem fyllir Old Trafford, heima-
völl Manchester United. Vandalar
náðu svo helstu borg Rómaveldis í
Norður-Afríku, Karþagó, tíu árum
seinna og stofnuðu ríki sem varð
svo öflugt að árið 455 náðu Vand-
alar sjálfri Rómaborg og rændu
mörgum gersemum og auðæfum
áður en þeir hurfu á braut. Þeir
gengu reyndar kurteislega fram
við þetta allt saman, svo það er
með öllu óverðskuldað að orðið
„vandalismi“ sé kennt við þessa
þjóð.
Algjör örvænting
En nema hvað, tuttugu árum
seinna féll Rómaveldi í vestri og
ríki Vandala virtist þá hafa alla
burði til að hasla sér almennilegan
völl í mannkynssögunni. Það var í
áratugi öflugasta ríkið við vestan-
vert Miðjarðarhaf. En við austan-
vert hafið var Austrómverska ríkið
eða Býsans enn við lýði og keisar-
inn Jústiníanus, sem kom til valda
árið 527 lét sig dreyma um að end-
urreisa hina föllnu dýrð samein-
aðs Rómaveldis og sendi sex árum
seinna hershöfðingjann Belisar-
íus með fremur fámennan her til
Norður-Afríku til að freista þess
að endurheimta svæðið. Vandala-
kóngurinn Gelimer mætti Belisar-
íusi með her sinn við þjóðveginn
ekki allfjarri Karþagó (skammt
þar frá sem Túnisborg stendur
nú) og Vandalar virtust lengst af
á góðri leið að hrekja Belisaríus
á flótta. Þar sem Býsansherinn
var fjarri heimaslóðum má telja