Fréttablaðið - 07.12.2013, Blaðsíða 84
7. desember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING |
BÆKUR ★★ ★★★
Jón Páll– Ævisaga sterkasta manns í heimi
Sölvi Tryggvason
ORMSTUNGA
Jón Páll Sigmarsson er einn dáðasti íþróttamaður
sem við höfum átt. Persónuleiki hans var einstakur,
hann var í senn afreksmaður og skemmtikraftur. Sigr-
ar hans á alþjóðavettvangi áttu stóran þátt í að móta
sjálfsmynd okkar sem þjóðar. Við áttum ekki bara fal-
legustu konur í heimi heldur vorum við
stærst og sterkust líka.
Sölvi Tryggvason blaðamaður tekst á
við það stóra verkefni að gera ævisögu
þessa risa í íslenskri menningu skil. Og
því miður hefur hann ekki árangur sem
erfiði. Ef notast ætti við hið sérstaka
tungutak kraftajötnanna í Jakabólinu
þar sem Jón Páll hóf sinn feril, þá er
bókin hálfgerður „krypplingur“.
Hún er stutt og hlaupið hratt yfir
sögu. Æsku og uppvexti Jóns Páls á
Snæfellsnesi eru til að mynda gerð
skil á fimm blaðsíðum. Sölvi treyst-
ir á viðmælendur sína til að segja
söguna. Stundum tekst það vel en
oft verða viðtölin endurtekninga-
söm og stundum er sömu sögurnar
endurteknar nánast orðrétt, til dæmis þegar Jón
Páll reyndi að þyngja sig um fimm kíló á einum degi
með því að drekka mjólk (bls. 41 og 183).
Einna mest spennandi kaflinn í ævi Jón Páls er
keppni hans á mótunum Sterkasti maður heims á árun-
um 1986-1990. Sölvi lýsir þessum mótum á sex síðum í
eins konar upptalningarstíl – sem er miður því til eru
frábærar heimildir, sem lýsa þeim gífurlegu átökum,
sálfræðilegu og líkamlegu, sem áttu sér stað á þessum
mótum þar sem Jón Páll lagði hvern aflraunamanninn
á fætur öðrum að fótum sér og varð fjórum sinnum
krýndur sterkasti maður heims.
Sölvi á reyndar hrós skilið fyrir að reyna ekki að
fegra sögu Jón Páls, líkt og gert var í heimildarmynd-
inni „Ekkert mál“ fyrir nokkrum árum. Kaflinn um
steraneyslu Jóns er góður. Sölvi hefur heimildir fyrir
því að skýrslu um steranotkunina hafi verið stungið
undir stól af ráðherra þess tíma og telst það
líklega „skúbb“. Í viðtölum við konurnar í lífi
Jóns Páls kemur í ljós mynd af manni sem var
svo heltekinn af markmiðum sínum að allt sem gæti
talist „hefðbundið fjölskyldulíf“ sat á hakanum.
Ef hægt er að draga einhvern lærdóm af lífi Jóns
Páls eftir lestur bókarinnar er það hve ótrúlega
nákvæmur hann var varðandi æfingar sínar og lífsstíl.
Ekkert var tilviljunum háð. Hann æfði meira en allir
aðrir, borðaði meira en allir aðrir og hlífði sér aldrei.
Jón Páll á skilið að þeir sem vilja nota nafn hans
og sögu til að selja bækur sýni af sér sömu eljusemi.
Það gerir Sölvi ekki í þessari bók og því er hún mis-
heppnuð.
Símon Birgisson
NIÐURSTAÐA Áhugaverð upprifjun á ferli Jóns Páls
Sigmarssonar en bókin ristir ekki djúpt. Endur-
tekningasöm og allt of stutt.
Heldur rýr Jón Páll
Coke og
Austurb
ær kynna
ásamt
TÓNLEIK
A
BÆ
19. desem
ber
lukkan 2
0:00
MIÐASAL
AN
er hafin á
miði.is
miðaver
ð 2.500
kr.
AUKATÓ
NLEIKAR
Fimmtud
aginn 19.
desemb
er
Klukkan
22:30
R
KUPP
SEL
T!