Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 45
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SKÝRSLA RÍKISENDURSKOÐUNAR Góð útkoma þrátt fyrir óeðlilegan samanburð - Viðbrögð við skýrslu Ríkisendurskoðunar um sameiningu Landspítala Læknablaðið leitaði viðbragða hjá tveimur læknuni við skýrslu Ríkisendurskoðunar um sameiningu sjúkrahúsanna í höfuðborg- inni. Hún hefur verið mjög til umræðu að undanförnu og blandast meðal annars inn í niðurskurðartillögur stjórnar Landspítala. Friðbjörn Sigurðsson formanns læknaráðs Landspítala svarar hér að neðan en Oskar Einarsson á næstu síðu en hann er formaður Læknafélags Reykjavíkur sem hefur alla lækna sem starfa á Land- spítala innan sinna vébanda. Friðbjörn Sigurðsson formaður læknaráðs Landspítala Meginniðurstaða skýrslu Ríkisendurskoðunar er sú að sjúkrahúsið fær góða dóma. Samanburðurinn við Bretland orkar tvímælis en kemur samt vel út fyrir okkur. Par hefur heilbrigðiskerfið verið í fjársvelti þótt nú hafi verið ákveðið að stórauka útgjöld til heilbrigðismála. Arangur af meðferð, svo sem vegna hjartabreps eða heilablóðfalls, er miklu betri hér, legutíminn er sambærilegur og kostnaður sömuleiðis. Ég held því að sjúkrahúsið megi vel við samanburðinn una. I skýrslunni er fróðlegur kafli um skilvirkni starfs- fólks. Það er sláandi að fólk í umsýslu og rekstri er fleira hér. Hins vegar er vísinda-, tækni- og rannsóknarfólk áberandi færra. Það er áhyggjuefni að ekki hefur verið lögð nógu mikil rækt við vísindi og rannsóknir. Ég held að mismunur á afköstum lækna sem fram kemur í skýrslunni helgist að verulegu leyti af því að það er verið að bera saman ólíka hluti. Til dæmis má nefna að á bresku spítölunum er ekki veitt eins mikil þjónusta á geðdeildum, öldrunardeildum og við vímu- efnameðferð og hér, auk þess sem hér bíða 173 manns úrræða og komast ekki út af spítalanum. Einn- ig kernur fram í skýrslunni að göngudeildaþjónustan er minni en í Bretlandi en ekkert er minnst á sér- fræðiþjónustu á einkastofum lækna sem er mikil hér á landi. Það hefði verið betra að taka hana með þegar afköst lækna voru metin. Við höfum spurt ríkisendurskoðanda hvort hag- kvæmara sé að meðhöndla ferlisjúklinga á göngu- deildum sjúkrahúsa eða einkastofum sérfræðilækna og fengið þau svör að það sé engin leið að meta það. Þrátt fyrir allar úttektir stofnunarinnar er ekki hægt að segja hvar hagkvæmast er að veita ferliþjónustu. Annað sem Ríkisendurskoðun nefnir og ég tek heilshugar undir er að það þurfi að skapast sátt um skiptingu læknisverka milli sjúkrahúsanna og sjálf- stætt starfandi sérfræðinga á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er ákaflega mikilvægt atriði og því ber að fagna ákvörðun heilbrigðisráðherra að skipa nefnd til að fjalla um þessa verkaskiptingu. - í skýrslunni er rætt um að ekki hafi náðst það markmið í sameiningunni að spara í rekstri sjúkra- hússins. Já, þegar rætt var um sameininguna var sparnaður- inn ofarlega á baugi en minna rætt um faglegan ávinning af henni. Ég held að læknar hafi ekki verið nógu dug- legir að benda á að það væri allsendis óvíst hvort hún skilaði nokkrum spamaði heldur væri fyrst og fremst verið að efla þjónustu og styrkja rannsóknir og kennslu. Það er hins vegar alvarlegt mál að í skýrslunni segir að ekki hafi tekist að efla vísindastarf og kennslu. Sú staðreynd að ekki hefur náðst fram spamaður virðist nú endurspeglast í kröfum stjórnmálamanna um enn frekari hagræðingu og spamað í rekstrinum. Það er skiljanlegt að stjórnvöld séu ósátt við að spítalinn fari alltaf fram úr fjárhagsáætlunum sínurn en ef til vill eru til skýringar á því. Sameiningarferlið hefur verið erfitt fyrir starfsfólk eins og fram hefur komið í könnunum meðal starfsfólks. Nú er samein- ingin langt komin og því er mjög óheppilegt að þetta komi fram núna. Það hefði verið betra að bíða eftir niðurstöðum nefnda sem eru að fjalla um ýmsar hlið- ar rekstrarins áður en gripið var til niðurskurðar. Það kemur líka fram í skýrslunni að skortur á framtíðarsýn og óljós stefna í málefnum spítalans hái starfseminni og það kemur glöggt fram í húsnæðis- máluni hans. Það er verið að leggja í kostnað við að lappa upp á ónýtt húsnæði og byggja upp í Fossvogi í stað þess að béina öllum kröftum að byggingunum við Hringbraut þar sem ákveðið hefur verið að framtíðauppbygging sjúkrahússins eigi að vera. Þröstur Haraldsson Læknablaðið 2004/90 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.