Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 58

Læknablaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 58
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HÆSTARÉTTARDÓMUR UM GAGNAGRUNN kóðun sé í raun aukaatriði. Jafnvel með öruggustu dulkóðun er engu að síður unnt að bera kennsl á menn í grunninum, að minnsta kosti í sumum tilfellum. Gögnin eru því persónugreinanleg og fara verður eftir ákvæðum stjórnarskrárinnar og alþjóðlegra sáttmála. Jafnvel fullkomlega örugg og einstefnu dulkóðun kennitölu er ekki undankoma frá upplýstu samþykki. Heildarmynd með samtengingu við ættfræði- og erfðaupplýsingar I dóminum segir að 10. gr. gagnagrunnslaganna til- taki ekki hvaða upplýsingar úr sjúkraskrám sem varða persónuauðkenni sjúklings og flutt kynnu að verða í gagnagrunninn, geti birst þeim, sem fær svar við fyrirspurn í grunninn. Par er heldur ekki að finna vísbendingar um hvaða heildarmynd gæti fengist af einstaklingum við þá samtengingu upplýsinga úr gagnagrunni á heilbrigðissviði við gagnagrunna með ættfræðiupplýsingum og erfðafræðilegum upplýsing- um sem rætt er um í ákvæðinu. „Er þess í stað látið við það sitja“ í gagnagrunnslögunum að áskilja að þess skuli gætt við úrvinnslu upplýsinga að þær verði ekki tengdar persónugreinanlegum einstaklingum. Með þessu er vísað til þess að með tengingu við ættir og erfðir er mun auðveldara að bera kennsl á einstaklinga í grunninum. Ættartré og erfðaupplýs- ingar eru það einkennandi að þau eru ígildi lykils að heilsufarsupplýsingum einstaklinga í grunninum. Galopnar fyrirspurnir í grunninn Þá segir í dóminum að ekki sé afmarkað svo teljandi sé hvers konar fyrirspurnum verði beint til gagna- grunnsins eða í hvaða búningi svör við þeim muni birtast með eða án tengsla við gagnagrunna með ætt- fræðiupplýsingum eða erfðafræðilegum upplýsingum. Ljóst er að dómurinn telur litla afmörkun fyrir- spurna í grunninn vera óásættanlega. I þessu sam- bandi er rétt að benda á að deila rekstrarleyfishafa við Persónuvernd fjallar einmitt um það að rekstrar- leyfishafi krefst enn minni afmörkunar en þeirrar sem þó er tiltekin og netaðgangs fyrirspytjenda að fyrir- spurnalagi gagnagrunnsins. Á þessa kröfu um enn minni afmörkun fyrirspurna hefur Persónuvemd ekki fallist. Verður ekki annað séð en að dómur hæsta- réttar styðji afstöðu Persónuvemdar í því deilumáli. Eftirlit kemur ekki í stað lagaákvæða Þá er sagt að í einstaka ákvæðum gagnagrunnslaganna sé ítrekað skírskotað til þess að heilsufarsupplýsingar í gagnagrunni á heilbrigðissviði eigi að verða ópersónu- greinanlegar. Eins og fyrrnefndum reglum um þau at- riði sem um ræðir í 7. gr. og 10. gr. laganna er háttað skortir á hinn bóginn mjög á að tryggt sé nægilega með ákvæðum settra laga að þessu yfirlýsta markmiði verði náð. Vegna þeirra skyldna sem friðhelgisákvæði stjórn- arskrárinnar leggur á löggjafann til að tryggja friðhelgi einkalífs getur ekki komið hér í staðinn ýmiss konar eftirlit með gerð og starfrækslu gagnagrunns á heil- brigðissviði, sem lagt er í hendur opinberra stofnana og nefnda án þess að þær hafi við ákveðnar og lög- mæltar viðmiðanir að styðjast í störfum sínum. Nægir heldur ekki í þessu skyni að leggja í hendur ráðherra að setja skilmála í rekstrarleyfi eða fela öðrum hand- höfum opinbers valds að setja eða samþykkja um þessi efni verklagsreglur sem á öllum stigum geta verið breytingum háðar innan þeirra lítt afgerandi marka sem ákvæði gagnagrunnslaganna setja. Duttlungakenndar breytingar stjórnvalda á slík- um reglum eru velþekktar eins og brottrekstur Vís- indasiðanefndar á sínum tíma sýndi. Fallist á dómkröfur því lögin standast ekki friðhelgisákvæði stjórnarskrárinnar Að lokum segir í dómnum að ekki sé unnt að líta svo á að ákvæði gagnagrunnslaga tryggi á viðhlítandi hátt að virtum þeim kröfum sem leiddar verða af friðhelg- isákvæði stjórnarskrárinnar (1. mgr. 71. gr.) að full- nægt verði því markmiði laganna að heilsufarsupp- lýsingar í gagnagrunninum verði ekki raktar til ákveðinna manna. í 8. gr. gagnagrunnslaga er hvorki mælt fyrir um né girt fyrir að sá sem er í stöðu RG geti krafist þess að upplýsingar úr sjúkraskrám látins foreldris síns verði ekki fluttar í gagnagrunn á heil- brigðissviði. Að því athuguðu verður að gættum meginreglum íslenskra laga um þagnarvernd einka- lífs að viðurkenna rétt áfrýjanda (RG) í þessu efni. „Verða dómkröfur hennar um þetta því teknar til greina.“ Viðbrögð við dómnum Viðbrögð talsmanns rekstrarleyfishafa í tilefni dóm- sins um vinstri slagsíðu eru hjákátleg. Mannvernd geldur varhug við hugmyndum, meðal annars frá lög- fræðilegum álitsgjafa rekstraleyfishafa, um laga- breytingar sem miða að því að nema úr gildi þann rétt til að segja aðstandendur úr grunninum sem hæsti- réttur dæmdi. Ef stjórnvöld ákveða að bregðast við dómnum með því að lögbinda enn frekari skerðingu á per- sónuvernd væru það mikil mistök. ísland yrði aftur frægt að endemum ef nú yrði gripið til þess að lög- festa réttleysi látinna með því að koma í veg fyrir að ættingjar þeirra segi þá úr grunninum. Árið 1998 var allt sett á annan endann til að koma gagnagrunnslögunum í gegn á alþingi. Nú fimm árum seinna er gagnagrunnurinn ekki orðinn til og sam- kvæmt talsmanni rekstrarleyfishafa er hann ekki hluti af starfsemi fyrirtækisins. í málflutningi fyrir hæsta- rétti kom fram að gerð gagnagrunns á heilbrigðissviði 58 Læknablaðið 2004/90
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.