Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Page 50

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Page 50
44 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR stjórninni. Þeir vöktu yfir iðnaði og verzlun, réttarfari og skólum, lögðu á skatta, sáu um herútboð og lög- gæzlu. Þeir voru með nefið ofan í hvers manns koppi á sviði athafnalifs og opinberra mála. Það má geta nærri, að þessir smákonungar, búnir slíku valdi og hlaðnir svo sundurleitum störfum, urðu annað hvort smásmugulegir liarðstjórar eða yfirborðskenndir skrif- finnar. Um sjálfstjórn i bæjar- og sveitarfélögum var varla lengur að ræða, og þær fátæklegu leifar fornrar sjálfstjórnar, sem enn lijöruðu, voru ofurseldar ströngu eftirliti og stöðugri afskiptasemi intendentanna. Þessir embættismenn hinnar konunglegu miðstjórnar réðu yfir umdæmum, sem i réttarfarslegum efnum voru undirorpin hinni mislitu löggjöf miðaldanna. Suðurhluti Frakklands hlýddi rómverskum rétti, en í norðurhlut- anum voru í gildi 285 mismunandi héraðslög, er mynd- azt höfðu fyrir hefð og venju. Laga- og dómaskipunin franska var glórulaust myrkviði, sem virtist ekki liafa annað hlutverk en að veita urmul „lagamanna“ at- vinnu og gera öllum réttarleitandi mönnum bölvun. Þar við bættist taumlaust lagalegt öryggisleysi, fangels- anir án dóms og laga, er oft bitnuðu bæði á háum sem lágum, þvi að konungsbréf til fangelsana lágu laust fyrir, ef peningar voru í boði. Embættin i öllu þessu lcerfi löggæzlu og stjórngæzlu gengu kaupum og sölum, og það var ekki óalgengt, að einveldið stofnaði til nýrra embætta og seldi þau síðan hæstbjóðanda. Svo langt var sótt til að afla einveldinu telcna. Fjárhagsástand hins franska einveldis var botnlaust fen, og hafði verið svo um langan aldur. Á dögum þriggja seinustu ráðuneyta hins gamla stjórnai'fars juk- ust skuldir ríkisins um 1630 milljónir livres. Hirðin ein gleypti meira en helming rikisteknanna, og árið 1789 voru skuldir ríkisins orðnar 4% milljarðar livres. Útgjöld til hers og flota, kostnaður við styrjaldir, sem flestar end- uðu með sæmdarlitlum ósigri, hjuggu stórt skarð i líf

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.