Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Page 59

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Page 59
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 53 sveitanna fetuðu í fótspor borgaranna og settu á sjálf- stjórn í málum sínum. Á nokkrum vikum liafði liið margþætta embættismannavald einveldisins hrunið í rústir fyrir fyrsta áhlaupi byltingarsinnaðrar múghreyf- ingar, sem með fullu virðingarleysi plebejans lagði liendur á íykfallnar stofnanir og púðraðar hárkollur þess. Að því loknu færði byltingin sig feti dýpra og tók nú að ráðast á félagslegar og atvinnulegar rætur liins gamla stjórnarfars. Bændur Frakklands fóru á sína vísu að leysa þau viðfangsefni, er þeim lágu mest á hjarta, en það var afstaða þeirra til jarðarinnar, er þeir erjuðu, og til þeirra manna, er þeir ólu með á- vöxtum hennar og vinnu sinni. Allan seinni liluta júlí- mánaðar geysuðu bændauppreisnir í sveitum Frakk- lands. Vopnaðir bændur réðust á hallir aðalsins og ónýtlu skjöl og skilríki, er höfðu að geyma ákvæði um lénskvaðir þær, er þeir urðu að gjalda aðlinum. Bændauppreisnir þessar sýndu Ijóslega, að byltingin var eklci lengur einkamál óánægðrar borgarastéttar. Byltingin risti plógstreng sinn þvert yfir þjóðfélagið og skildi á milli þjóðarinnar og sérréttindastéttanna. Meðan öldur byltingarinnar flæddu rismiklar um borgir og byggðir Frakklands, sat þjóðsamkoman í Ver- sölum og horfði á aðfarir liöfuðskepnanna. Um stund leit út fyrir, að hún hefði misst taumanna á byltingunni. Háaðallinn sá sitt óvænna og var þegar farinn að flýja land og hinum borgaralegu lögfræðingum þriðju stétt- ar var nóg um þá lítilsvirðingu réttar og laga, er bylt- ingarlireyfingin liafði sýnt í livívetna. Þjóðsamkoman varð að lilutast til, ef liún átti ekki að heltast úr lest- inni. Á næturfundi 4. ágúst 1789 gerðust þau tíðindi í þjóð- samkomunni, sem sýndi hvorttveggja í senn, alvöru liðandi stundar og ást Frakka á dramatiiskum áhrifa- meðölum. Hinir ungu aðalsmenn samkomunnar risu upp liver á fætur öðrum og afsöluðu sér réttindum

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.