Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Side 71

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Side 71
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 65 á meðan herir Frakklands fóru með sigri í Belgíu, en í ársbyrjun 1793 tóku þeir að fara halloka, yfirhers- liöfðinginn Dumouries sveik föðurland sitt og gekk óvin- unum á hönd. Innanlands reisti gagnbyltingin kambinn. Hinir kaþólsku og klerkhollu bændur í Vendée gerðu uppreisn og konungssinnaðir aðalsmenn hlésu að glóð- unum. Byltingin var i voða stödd og hin jakóbínistiska höfuðborg krafðist skjótra aðgerða, en ekki fagurrar orðsnilldar. París heimtaði traust miðstjórnaralræði og liún treysti, sem von var, engum til að hera það, nema sjálfri sér og flokki sinum Fjallinu. En Gírondínar hæði hötuðu og óttuðust þennan hræðilega alvalda múgsins og þeir hjuggu sig til atlögu gegn París. En hún varð þeim viðbragðsfljótari. Nóttina 30.—31. mai gerðu deildir Parísar uþpreisn. 2. júni umkringdi bylt- ingarher borgarinnar konventuna og hún samþykkir fangelsun 29 Girondina. Enn einu sinni hafði Parísar- horg unnið sigur á fulltrúaþingi þjóðarinnar. Iiún tók sér pólitískt einræði til uppihalds einu og óskiptu frönsku lýðveldi. í sama mánuði og konventan lét svínheygjast fyrir París, ræddi hún og samþykkti hina nýju stjórnarskrá lýðveldisins. Þetta var róttækasta stefnuskrá, er borg- aralegt lýðræði hefur nokkru sinni skapað, enda kom hún aldrei til framkvæmda. Hún bætti við mannrétt- indaskrána rétti fólksins til voiinaðrar uppreisnar, lög- festi almennan kosningarétt, framfærsluskyldu ríkisins o. s. frv. Hún var siðan lögð undir þjóðaratkvæði og samþykkt. Þótt stjórnarskrá þessi yrði aldrei að pólitískum veru- leika, þá varð hún pólitískt vopn í höndum Fjallsins gegn Girondínum, sem þetta sumar skáru upp herör upp- reisnarinnar í borgum Suður- og Vestur-Frakklands gegn einræði höfuðstaðarins. Uppreisnin hændi til sin konungssinna og aðra gagnbyltingarmenn, og konventan tók ómjúkum höndum á samblástursmönnunum. 1 apríl- 5

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.