Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Qupperneq 78

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Qupperneq 78
72 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR að mynd lesandans af skáldinu geti or'ðiS sem allra skýrust. Engum mun blandast hugur um, að þetta hafi tekizt. Þó segir próf. Nordal í formóla, að unnendur Stephans liljóti að sakna ýmissa kvœða úr safninu, og mun það ekki ofmælt. Þau voru ekki fá kvæðin, sem ég saknaði við fljótan yfirlestur bókarinn- ar. Ég skal til dæmis nefna söguleg kvæði, eins og „Hjónaband- ið“, sem mér finnst eitt af snjöllustu og bezt byggðu kvæðum Stephans, „Norna-Gestur“, „Hjaðningavíg", „Fíflið", eða þá „Gróttasöng", þar sem uppreisnarandi skáldsins brýzt fram með ofurþunga, og eru þá aðeins fá talin. Eða tökum kvæði eins og „Móður jörð“, sem er svo undurfagurt, þrátt fyrir öll missmíði innan um! Og ef til vill hefði mótt taka fleiri af þeim kvæð- um, sem léttust eru og auðskildust, t. d. „Hjónaskál“, sem ber svo órækan vott um þá lífsgleði, sem Stephan var svo rikur af. Og svona mætti halda áfram. En hverju ætti þá að sleppa í staðinn? Þeirri spurningu ætla ég að lesandanum muni ofraun að svara, og þykir mér ekki ólíklegt, að flestir loki bókinni með sömu tilfinningu og ég, að engum mundi hafa tekizt valið jafnvel og einmitt próf. Nordal. Það getur stundum kostað allmikla fyrirhöfn að lesa kvæði Stephans niður i kjölinn og njóta þeirra til fulls. En fáir hugs- andi íslendingar munu iðrast þeirrar fyrirhafnar, heldur munu þeir grípa bókina aftur og aftur, og finna þar undursamlegan heim, sem verður þvi dásamlegri, sem maður kynnist honum betur. Próf. Sigurður Nordal og stjórn Máls' og menningar eiga slcilda almannaþökk fyrir þessa bók. Fátt getur verið þarfara en að kynna þjóðinni ljóð þess snillings, sem var „mesti maðurinn meðal íslenzkra skálda“. Á. Hj. E v a C u r i e : Frú Curie. Ævisaga. íslenzkað hef- ur Kristin Ólafsdóttir læknir. ísafoldarprent- smiðja h.f. Það er ef til vill barnalegt að fyllast gleði yfir sigri eins vís- indamanns, s'em réttir mannkyninu vopn i hönd í baráttu þess við sjúkdóma og dauða, meðan tugir og hundruð annarra vís- indamanna sitja með sveittan skallann við að finna upp æ nýrri og hraðvirkari tæki til þess að tæta sundur mannlegan líkama og slíta úr honum lifið, og meðan þeir friðspillar sitja á valda- stólum veraldarinnar, sem færa sér slíkar uppgötvanir í nyt. En þó munu fáir lesa ósnortnir söguna um frú Curie, konuna, sem fann radíum og lagði þannig fram ríflegan skerf til bar- áttunnar gegn krabbameininu. Að vísu hafði hún þá enga hug- mynd um lækningamátt þessa nýja frumefnis, en hún var leit-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.