Fréttablaðið - 11.04.2015, Page 22

Fréttablaðið - 11.04.2015, Page 22
11. apríl 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22 Ilmur Kristjánsdóttir leikkona og nú borgarfulltrúi í Reykja-vík á að baki áhugaverðan feril þrátt fyrir að vera enn ung að árum. Hún hefur átt gifturík-an feril í leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum en í vikunni tók hún sæti borgarfulltrúa fyrir Bjarta framtíð og sest í forsæti fyrir vel- ferðarráð Reykjavíkurborgar. Síð- ustu mánuði hefur Ilmur verið upp- tekin við tökur á Ófærð og fyrir skömmu var frumsýnd kvikmynd- in Fúsi þar sem Ilmur er í burðar- hlutverki á móti Gunnari Jónssyni og bæði þykja þau fara á kostum í myndinni. „Gussi er svo frábær náungi og það var roslega gaman að vinna þessa mynd með honum. Hann er svo fullkomlega laus við að vera alltaf að hafa áhyggjur af því hvað öðrum finnst eða hvernig hann á að vera. Hann er einfaldlega alltaf hann sjálfur og engum líkur. Slíkt er helst til fágætt í nútímasamfélagi. Narsissos og Facebook Um daginn byrjaði ég til að mynda að segja dóttur minni dæmisöguna um Narsissos sem var svo hrif- inn af sinni eigin fegurð að hann drukknaði í eigin spegilmynd – allt- af að kíkja á sjálfan sig í hylnum þangað til hann drukknaði,“ segir Ilmur með leikrænum áherslum og bætir við með ekki síðri tilþrifum: „Og svo fór ég beint á Facebook. Hvað er ég komin með mörg læk? Þetta er alveg það sama. Við erum alltaf að kíkja í hylinn. Velta því fyrir okkur hvað öðrum finnst og hvort að það er verið að samþykja okkur og læka. Svo drukknum við bara í sjálfum okkur,“ segir Ilmur og hlær prakkaralega. „Svona er þetta með svo margt. Það er svo miklu meira spennandi að horfa í kringum sig og hlusta á annað fólk en að vera alltaf að stara í spegilinn – hvort sem hann er inni á baði eða í símanum.“ Leikhús og pólitík Áhugi á öðru fólki, velferð þess og líðan er nauðsynleg hverjum þeim sem vill taka þátt í stjórnmálum og Ilmur hefur einlægan áhuga á vel- ferð annarra. „Ég hef alltaf haft áhuga á póli- tík. Að gera heiminn að betri stað hefur eiginlega verið einhvers konar þráhyggja hjá mér. Leikhús- ið fæst líka við að reyna að breyta samfélaginu til betri vegar en það gerir það með sögum og sköpun sem getur hreyft við okkur. Mótað hugmyndir okkar um lífið og mann- eskjuna til betri vegar. Svo það er kannski skemmra á milli leikhúss- ins og stjórnmálanna en virðist við fyrstu sýn. Ég skrifaði lokarit- gerðina mína í Listaháskólanum um Agusto Boal, brasilískan leik- húsmann sem notaði leikhúsið til þess að fræða og virkja samfélagið. Hann skrifaði bók sem heitir Leik- hús hinna kúguðu og vinnur eftir þeirri aðferðafræði á fátækustu svæðum jarðar. Þegar ég kom til Mósambík á vegum UNICEF þá sá ég svona leikhóp að störfum. Fólk kom með vandamál og hópurinn lék þau fyrir áhorfendur sem tóku þátt í að leita lausna og leika þær á staðnum. Þannig er leikhúsið önnur leið að því sama markmiði að bæta samfélagið og ég er bara að prófa að fara aðra leið. Þörfin fyrir að hjálpa Mér finnst merkilegt að Agusto Boal var svo eitt sinn boðið til Sví- þjóðar. Boðið að koma til fyrir- myndarlandsins og hjálpa þarlend- um að takast á við sín vandamál. Honum fannst það nú frekar hlá- legt tilhugsunar en engu að síður uppgötvaði hann þar ný og rosaleg vandamál sem hann hafði aldrei séð áður í sínu starfi. Í Svíþjóð sá hann einmanaleikann og óham- ingjuna í velsældinni þar sem fólk var jafnvel að svipta sig lífi. Það fær mann til þess að hugsa að við þurfum öll að taka ábyrgð hvert á öðru. Við höfum öll fundið þennan einmanaleika og hann er dálítið skyldur narsissismanum. Því það að heillast af sjálfum sér leiðir til einmanaleika. En í dag er ég með verkfæri gegn mínum einmana- leika og það er ómetanlegt. Við þurfum líka á því að halda að hjálpa og gefa af okkur. Að hjálpa snýst ekki bara um peninga. Þeir sem eru aflögufærir um peninga ættu endilega að deila þeim en svo er líka ómetanlegt að tala við fólk, vera til staðar og sýna hvert öðru virðingu. Allt er þetta liður í vel- sæld okkar allra – bæði að gefa og þiggja. Tækifærin í lífinu Ég er alin upp á pólitískt meðvit- uðu heimili, mjög vinstri- og jafn- réttissinnuðu. Foreldrar mínir eru fólk með sterka réttlætiskennd og auðvitað mótar þetta mann eins og annað í uppvextinum. Annars hef ég í raun alltaf verið frekar leitandi manneskja og reiðubúin til þess að prófa nýja hluti. Fyrir nokkrum árum skellti ég mér t.d. í guðfræði og sumum þótti það óvænt skref á sínum tíma. Það snerist nú einfald- lega um það að ég hætti að refsa mér fyrir það að vera leitandi. Hver segir að maður þurfi að vera í sama starfinu alla ævi? Mér finnst reyndar frekar bros- legt að það virðast margir halda að ég sé alveg svona korter í prest en það er satt best að segja langt frá því, en hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Þessi tími opnaði augu mín fyrir áhugaverðum hlut- um. Ég kynnti mér líka búddisma og íslam og er í sjálfu sér hlynnt trúarbrögðum. Öll trúarbrögð eru leiðarvísir að sama marki; guði eða kærleikanum en fólki hættir til að flækja málið. Stóra málið er að þora að fylgja hjartanu og stökkva á þau tækifæri sem lífið færir manni. Pólitíkin er þannig eitt af þessum tækifærum og nú er ég að byrja að takast á við hana. Það verður mikil og góð áskorun.“ Eins og Mexíkóborg Það þarf að sönnu hugrekki til þess að takast á við það tækifæri sem býður Ilmar með því að skella sér út í borgarpólitíkina og það í sjálft velferðarráð. En hún óttast ekki verkefnið heldur nálgast það af lítillæti. „Þetta er svipuð tilfinning og þegar ég fór til Mexíkóborgar sem var talin ein hættulegasta borg í heimi. Ég var alveg skítstressuð og fólk var duglegt við að benda mér á hætturnar áður en ég fór. En svo var þetta bara alveg æðisleg upp- lifun. Auðvitað átta ég mig á því að ég er fara að takast á við stórt og erf- itt verkefni í velferðarmálunum. Það eru margir búnir að koma til mín og segja: „Ilmur ertu brjáluð – ætlarðu að taka við velferðar- ráði? Veistu hvað það er erfiður málaflokkur?“ Þannig að ég veit að þetta verður erfitt verkefni en vonandi verður það líka skemmti- legt eins og ferðin til Mexíkóborg- ar var á sínum tíma. Ég er ekki að fara að umbylta neinu en vonast til þess að við sem samfélag bætum okkur. Að gera gagn Ég er svo heppin að vera að taka við af Björk Vilhelmsdóttur og hún býr yfir gríðarlegri þekkingu á þessu sviði. Hún hjálpar mér fyrstu skrefin og það gerir þetta léttara. Það sem ég hef helst haft áhyggjur af er að velferðarkerfið, eða kannski öllu heldur samfélagið, sé þannig saman sett að þeir sem nýti velferðarþjónustu hverju sinni séu þiggjendur með neikvæðum for- merkjum. Það býr til einhverja hug- læga skömm sem á ekki að eiga sér stað. Við lendum öll í áföllum og við þurfum að standa með hvert öðru. Málið er að við erum öll þiggj- endur. Við erum þiggjendur þjón- ustu sem við sköffum hvert öðru. Fullt af barnlausu fólki borgar skólagöngu barnanna okkar. Fullt af heilbrigðu fólki niðurgreið- ir læknisþjónustu en þetta heitir að vera í samfélagi. Það er hagur allra að öllum líði sem best og það er réttur fatlaðs fólks og öryrkja að það sé búið þannig um þá að þeir geti skilað til samfélagsins. Við viljum öll vera nytsamleg. Gera gagn.“ Leikhúsið fæst líka við að reyna að breyta samfélaginu til betri vegar en það gerir það með sögum og sköpun sem getur hreyft við okkur. Að hjálpa snýst ekki bara um peninga. Þeir sem eru aflögufærir um peninga ættu endilega að deila þeim en svo er líka ómetanlegt að tala við fólk, vera til staðar og sýna hvert öðru virðingu. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Við viljum öll vera nytsamleg Ilmur Kristjánsdóttir leikkona tók í vikunni sæti í borgarstjórn Reykjavíkur þar sem hún tekur við forsæti í velferðarráði borgarinnar. Þrátt fyrir ungan aldur á hún að baki glæstan feril í leikhúsinu en nú taka við nú og spennandi tækifæri. BORGARFULLTRÚI Ilmur Kristjánsdóttir leikkona og nú borgarfulltrúi er óhrædd við að breyta til og takast á við ný og krefjandi verkefni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 1 1 2 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 4 1 -5 6 F C 1 6 4 1 -5 5 C 0 1 6 4 1 -5 4 8 4 1 6 4 1 -5 3 4 8 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 1 1 2 s _ 1 0 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.