Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Side 19

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Side 19
Á alþjóðlegri kvennaráðsteftiu lesbískar konur. Umræðurnar voru þar sífellt á sömu nótunum, að þær væru stoltar og glaðar yfir að elska aðrar konur o. s. frv. Þetta vakti ekki áhuga minn. Og mér fannst alveg óskiljanlegt að eyða öllu þessu fé í að ræða þess háttar efni í opnu umræðunni. Heima átti ég mann sem vann i námunni hvern dag og gætti barnanna minna sjö. Ég hafði ferðast frá landi mínu til að segja frá öllu sem þar gerist og til að heyra hvað aðrar gætu sagt um arðránið í öðrum löndum og fá sjálf hugmyndir og hvatningu frá þeim sem þegar hafði tekist að varpa af sér okinu. Og það fyrsta sem mætir mér svo eru vandamál af allt öðru tagi. Mér féll allur ketill í eld. I öðrum fundarsölum stóðu konurnar upp og sögðu: Það eru karlmennirnir sem eru böðlar okkar, það eru þeir sem efna til styrjalda, finna upp kjarnorku- vopn, og þeir líma konurnar við sig. Þess vegna er mikilvægast og brýnast að berjast við karlmennina. Ef karlmaðurinn á tíu ástkonur verður konan líka að eiga tíu elskhuga. Ef karlinn eyðir öllu sínu fé í skemmtanir og gleðskap á konan að gera það sama. Og það er ekki fyrr en þessu marki er náð sem karl og kona geta tekist í hendur og barist fyrir frelsun lands síns og bættum lífskjörum öllum til handa. Það varð mér mikið áfall hversu margir þessara kvennahópa höfðu þvílíka afstöðu og brutu heilann um þess háttar efni. Það eru engar ýkjur að segja að við töluðum gerólík tungumál. Mér var ljóst að það yrði erfitt að fá að taka til máls í aðalráðstefnusalnum og yfirleitt var strangt efdrlit haft með því hverjar máttu tala og hversu lengi. Svo náði ég sambandi við hóp kvenna frá Rómönsku Ameríku og okkur tókst að brjótast í gegnum hindranirnar. Við sögðum frá vandamálum okkar, sem eru hin sömu í öllum ríkjum á meginlandinu, um það hvernig við berðumst fyrir málefnum kvenna og um lífsviðurværi mikils meirihluta kvenna í Rómönsku Ameríku. Við sögðum líka að frá okkar sjónarmiði væri langstærsti vandinn fólginn í því þjóðfélagskerfi sem við byggjum við og sem við yrðum að reyna að breyta, hvað sem það kostaði. Mikilvægast væri ekki að berjast við menn okkar heldur byggja saman það samfélag þar sem bæði karlar og konur ættu rétt til mannsæmandi lifs, atvinnurétt og félagsleg réttindi. í upphafi tók maður ekki svo mikið eftir þeim hömlum sem voru settar á það hver sagði hvað á ráðstefnunni. En eftir þvi sem á leið og tillögurnar sáu dagsins ljós varð þetta æ skýrara. Það var t. d. augljóst hvemig þær konur sem höfðu áhuga á vændi, fæðingatakmörkunum og öllu því reyndu að snúa umræðunum þannig að þetta yrðu meginviðfangsefnin. Okkur hinum þóttu þetta líka mikilvæg vandamál, en ekki þau mikilvægustu. TMM 18 273
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.