Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Side 88

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Side 88
Kjartan Ólafsson Yfirvald og þurfalingar Magnús Jónsson (f. 1865, d. 1947) var sýslumaður í Gullbringu og Kjósarsýslu og bæjarfógeti í Hafnarfirði 1909—1930, sömu ár var hann einnig bæjarstjóri í Hafnarfirði. Magnús var mjög virðulegur á velli og upphafinn í fasi, gekk með gullbryddað embættiskaskeiti og virtist ímynd hins fjarlæga valds; við börnin í Firðinum vorum logandi hrædd við hann og svipuð hygg ég hafi verið viðhorf Margra uppkominna alþýðumanna. En ekki er allt sem sýnist. Faðir minn, Kjartan Ólafsson sem kenndi sig við Hafnarfjörð meðan hann hafði afskipti af opinberum málum til þess að greina sig frá mörgum kunnum alnöfnum i Reykjavík, var lögregluþjónn hjá Magnúsi 1926—1931 og kynntist allt öðrum hliðum á yfirvaldinu og trúlega næsta sjaldgæfum á þeirri tið. Frá þeim kynnum greindi hann i bréfi til Hjartar Kristmundssonar skólastjóra í Reykjavík. Þetta bréf er heimild um Magnús Jónsson og aldarfar sem mikill meirihlud þjóðarinnar virðist búinn að gleyma að viðgekkst hér á landi fyrsta þriðjung þessarar aldar. Hér fer á eftir meginhluti bréfsins, en það er dagsett 6. sept. 1963. Magnús Kjartansson. Nokkru eftir að ég fluttist til Hafnarfjarðar árið 1920 fór ég eitt sinn á baejarstjórnarfund til að hlusta á umræður. Fundinum stýrði Magnús Jónsson, bæjarstjóri og bæjarfógeti. Eitt af aðalmálum fundarins voru fátækramálin, enda voru þau erfið í mörgum kaupstöðum fyrrum. Á fundinum höfðu sumir bæjarfulltrúarnir uppi allmiklar ádeilur á meðferð þessara mála. Töldu þeir að framfærslumál bæjarins væru mikils tii of fjárfrek. Beindust ádeilurnar að stjórn fátækramálanna og þá einkum að bæjarstjóranum, sem sá um framkvæmd þeirra. Bæjarstjórinn stóð upp til að verja gerðir sínar. Ekki var hann gæddur neinni hrífandi mælsku, en málflutningur hans var á þá lund að hann hitti mig beint í hjarta. Mér varð fljótt ljóst að hér talaði vinur og málsvari fátæklinga og þurfamanna. Eitt var þar æðsta boðorðið; „Enginn má líða skortl\ og það endurtók hann oftar en einu sinni. Þegar bæjarstjóri hafði lokið máli sínu héldu ádeilurnar áfram og þyngdust nokkuð. Lét einn bæjarfulltrúinn að því liggja, að líklega væri rétt að bæjarstjórnin gerði samþykkt sem gæti orðið hemill á hina óforsvaranlegu eyðslu til fátækramálanna. Aftur tók bæjarstjórinn til máls og hafði nú hitnað nokkuð. Hann brýndi raustina, er hann sagði eitthvað á þessa 342
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.