Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Page 147

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Page 147
Berto/l Brecht og Berliner Ensemble beinlínis þær dyggðir sem valdhafarnir óskuðu eftir að þegnar þeirra ræktuðu með sér. Atburðirnir sautjánda júní breyttu ekki þjóðfélagsgerðinni, en þeir komu af stað umróti innan stjórnkerfisins og það tókst Brecht að notfæra sér málum sínum til framdráttar. Fljótlega eftir uppreisnina lýsti hann opinberlega yfir stuðningi við kommúnistaflokkinn og vakti sú yfirlýsing mikla furðu og reiði meðal aðdáenda skáldsins vestantjalds, sem túlkuðu hana þannig að hann væri nú orðinn algert handbendi þessarar kúgunarstjórnar. Sjálfur virðist Brecht hafa vonað að þessir atburðir yrðu til þess að flokkurinn endurskoðaði stefnu sína og reyndi að brúa bilið milli sín og hinna vinnandi stétta. Hann hvatti embættis- menn og leiðtoga til að hlýða á réttmæta gagnrýni og óánægju almennings um leið og hann gerði harða hríð að menningarpólitík flokksins. í löngu bréfi, sem birtist í Neues Deutschland í ágústmánuði, varði hann rétt listamanna til að finna sér eigin form og vítti tilhneigingu embættismanna til að hefja lélegan listsmekk alþýðunnar á stall og skipa listamönnum að taka mið af honum. Ymsir virtir menntamenn tóku undir orð Brechts og að lokum lét stjórnin undan. Listanefnd ríkisins, sem mest hafði hatast við leikflokk Brechts, var lögð niðurog umsjón menningarmála falin nýstofnuðu menntamálaráðuneyti undir stjórn skáldsins Johannesar R. Becher, gamals kunningja Brechts. Vorið 1954 gat svo Berliner Ensemble loksins flutt inn í eigið húsnæði í leikhúsinu gamla við Schiffbauerdamm. Staða þess var nú öll orðin tryggari en áður, því hafði hlotnast alþjóðleg viðurkenning og jafnvei í Sovétríkjunum gátu menn leyft sér að sýna því nokkurn áhuga. Það sem eftir var gat því Brecht sinnt starfi sínu við leikhúsið í næði og síðustu sýningar hans hafa greinilega verið jafn meistara- legar og þær fyrri. En nú var hann þrotinn að kröftum, heilsu hans hrakaði óðfluga og hann lést í ágústmánuði 1956. I upphafi fyrri greinar sagði ég frá nokkrum sýningum hjá Berli'ner Ensemble síðastliðið vor. Ég sagði þar að mér hefði ekki þótt þær geta haft þau áhrif á áhorfendur sem Brecht talar um í kenningum sínum. Menn kunna nú að spyrja, hvort sýningar hans sjálfs hafi verið trúrri hugmyndinni um hið vísindalega leikhús, sem hann vildi kalla epískt. Lá ekki beint við að hann notaði leikhús sitt til að sýna mönnum og sanna ágæti kenninga sinna og framfylgja í raun þeirri uppreisn gegn hinu dramatíska leikhúsi sem hann hafði boðað á pappírnum? En Brecht var nógu glöggskyggn til að láta slík mistök ekki henda sig. Hafi honum ekki verið það ljóst frá upphafi, viðurkenndi hann það síðar meir að leikhús- kenningar hans væru óframkvæmanlegar við ríkjandi aðstæður. Smám saman TMM 26 401
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.