Tímarit Máls og menningar - 01.11.1980, Page 154
Títthirit Miíh oj’ ttirnttiagar
nýta gáfu
náms og mennta,
í lærdóminum
lostugt hjarta,
og ávöxt
í öllum dáðum.
21
Sá sem þekkir
það hið góða
elska mun það
og umfaðma,
hann sem elskar
hann viðleitast
rétt að þóknast
þeim hann unni.
23
Ef guðrækin
viltu vera,
máttu búast
við mótlæti,
af þvi áttu
og að venja
þig við það
að þola nokkuð.
25
Ef guðrækin
viltu vera,
víst má þér
ei vaxa i augum
glys veraldar,
gengi og auður,
fáum tveimur
tekst að þjóna.
28
Ef þú hittir,
sem oft kann vera,
bliðmálugan
bakvaskara,
lát þú vel yfir
hans vinalátum,
en set traustan lás
á tungu þína.
29
Eitt er hið mesta
meistarastykki,
ómissandi
i öllum greinum,
munninum haga
mátulega,
það er vandi
að þegja og tala.
30
Elska sannleik
í öllum hlutum,
hann meðkenndu
hvað sem gildir,
annaðhvort þegar
æra drottins
eður velferð annars
við það liggur.
32
Engum láttu
orð þin liggja
til óvirðingar
né ógeðþekknis,
en brúkaðu aldrei
408