Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Page 10

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Page 10
Kjarninn í heimspeki gróteskunnar er vömbin. Hún var sigurtákn manns- ins í ógnvekjandi veröld, líkamleg gröf sem gleypir heiminn og eyðileggur jafnframt því sem úrgangur hennar hefur í sér fólgið frjómagn sem stuðlar að nýju og frjósamara lífí. Táknræn merking vambarinnar er því ævinlega tvíþætt, hún stendur fyrir hvort tveggja í senn, líf og dauða. í gróteskum heimi er hin „mikrókosmíska“ hringrás spegilmynd þeirrar „makró- kosmísku“, vömbin hliðstæða hinnar sem kennd er við móður jörð, grafar- innar sem gleypir hinn dauða, er aftur frjóvgar heiminn með leifum sínum og býr í haginn fyrir nýtt líf og frjórra. Grótesk lífssýn er þess vegna í eðli sínu „útópísk“, hún gerir ráð fyrir æ gróskumeira mannlífi á jörðu. Sam- kvæmt heimspeki hins gróteska raunsæis er raunveruleg framtíð mannkyns- ins beinlínis fólgin í neðri hluta líkamsstarfseminnar — meltingu, getnaði — sem ber í sér frjómagn og tryggir því ódauðleika. Af sjálfu leiðir að úrgangurinn verður í þessari heimsmynd jákvætt efni og gleðiríkt og kyn- færin kóróna mannsins. Eins er um dauðann, hann er á sinn hátt jákvæður og ævinlega þungaður nýju lífi, hann er ekki einstaklingsbundinn, heldur er hér allt samtvinnað í eina órofa lífskeðju, maður, náttúra og hin kosmísku öfl. í lifandi karnivalmenningu var hláturinn þess vegna ævinlega tvíræður, hann var ekki eintómt spott og niðurrif eins og verða vill í nútímasatírunni, heldur var hann jafnframt þrunginn gleðiríkri sigurvímu, í honum var fólgin hvort tveggja aftignun og endurnýjun, hann jarðar og endurlífgar. Hann beinist að öllu og öllum, þeim sem hlær jafnt sem öðrum, því að allir eru seldir undir sama lögmál ófullkomleikans, fyrir öllum liggur að deyja og endurnýjast. Hláturmarkið er hin kómíska hlið heimsins alls. Með klassísismanum er hinn fágaði líkami, „líkt og skírður af öllu grómi fæðingar og þróunar“ (R/25), hafinn til vegs. Einstaklingsbundinn og ein- angraður líkami sem er skýrt aðskilinn frá öllum öðrum líkömum. Þótt þessa viðhorfs hafi verið farið að gæta á endurreisnartímanum þá lifði hin gróteska lífssýn áfram í listrænni og hugmyndafræðilegri vitund tímans, segir Bakht- ín. Hvað sem leið allri aðgreiningu og sundrun klippti endurreisnarraunsæið aldrei á „naflastrenginn sem tengdi líkamann við frjósamt móðurlíf jarðar" (R/23). Á sautjándu öld og fyrri hluta þeirrar átjándu, þegar klassísisminn ríkti á öllum sviðum lista og bókmennta, var gróteskan á hinn bóginn gerð útlæg úr æðri bókmenntum. Það er á þessu skeiði sem smátt og smátt fer að þrengja að hinni lifandi karnivalmenningu. Ríkið seilist í æ ríkara mæli inn á umráðasvæði hátíðahalda og skrúðgangan leysir markaðstorgið af hólmi, eða hátíðahöldin flytjast inn á heimilin og verða hluti af einkalífi fjölskyld- unnar. Hinn frelsandi karnivalandi sem horfði með slíkri bjartsýni til fram- tíðar umbreyttist smátt og smátt í ósköp venjulegt hátíðaskap. Hátíðin hætti nánast alveg að vera annað líf fólksins, tímabilsbundin endurfæðing þess og 8 TMM 1994:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.