Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Qupperneq 20

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Qupperneq 20
þetta bæri ekki að taka svo að þau orð sem ekki væru þannig auðkennd væru horfin úr lifandi íslensku máli. Menn læsu ekki formála að orðabókum, sagði hann.(IS/98) Hvað neyðarlegust er atlagan að dönskunni og Danskinum í atriði sem kallast „Hjá Plógi". Hér fáum við sýnishorn af tvíræða oflofinu sem er dæmigert stílbragð fyrir bókmenntir af þessu tagi. Þegar við heyrum sagt um Dani: „Yðar hágáfuðu landar eru sú hin málfræðislegasta þjóð sem til er í veröldinni“ (17), þurfum við ekki lengi að velkjast í vafa um hvaða skilning beri að leggja í lofsyrðin. Eins og svo víða má sjá samsvörun á milli Gandreið- arinnar og ritgerðar Benedikts um Friðþjófssögu. Af ritgerðinni má ráða að Benedikt fmnst „óspillt" tungan veita íslendingum andlega yfirburði meðal skandinavískra þjóða, hún geri þeim einum — hugsanlega þó einnig Norð- mönnum — kleift að höndla hinn norræna anda sem var svo mjög hampað af fylgjendum skandínavismans. Eða „hver getur borið á móti því,“ spyr Benedikt, „nema þeir, sem ekki hirða um neinn sannleik, að andinn fer, þegar málið spillist?" Og það þarf ekki að spyrja að því að danskan er að mati höfundarins gjörspillt mál, hún „hefur misst hneigingaraflið, og „stendur nú sem stofnað tré stirð og dauð á jörðunne“ (R.III/118). Það er þessi vægðar- lausi dómur sem skín í gegnum fleðulæti Ögmundar í garð Dana. Vísunin í Bíleams Ösnu ber vott um andríki Benedikts og sýnir að hann er fundvís á pillurnar, eða hvað er andlausara en „asninn“ í víðtækustu merkingu þess orðs? Ögmundr „Herra Plógr! Afkvæmi Plógs svarta! Þér eruð verndaðir af guðlegri hendi, og ég hef nú verið vitni til þess kraftaverks, sem ég aldrei hefði trúað, að verða mundi á þessari skrúfstykkja-jörð . . . en þetta kraftaverk, sem ég ætlaði að tala um, það er sú hin forundrunarlega repetitio af Bíleams ösnu, sem talaði það, sem hún sjálf ekki skildi, ogeins hafið þér nú líka talað íslenzku... (17) Já, það þurfti ekkert minna en kraftaverk til að Dani talaði íslensku, því að eins og stendur í fyrrnefndri grein, „[þeir] geta aldrei lært eitt íslenzkt orð“ (R.III/119). Fyrirmyndin að Plógi þeim sem hér fær svo háðulega útreið var einn ötulasti talsmaður skandínavismans Parmo Carl Ploug sem að auki hafði unnið sér það til „ófrægðar“ að vera ritstjóri Fædrelandet, blaðsins sem hafnaði svargrein Jóns Sigurðssonar við nafnlausu skammarbréfi Gísla Brynjúlfssonar. Upphaf þáttarins „Hjá Plógi“ á sér augljósa fyrirmynd í „samræðunum á þröskuldinum“ sem svo eru kallaðar. Þetta bókmenntaform á rætur að rekja 18 TMM 1994:3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.