Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Qupperneq 42

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Qupperneq 42
I formálanum ver Níels rímur með ýmsum rökum (63-65) og má sjá að ást hans á rímunum felur í sér þjóðlega menningarviðleitni. Ásökunum um að rímur séu fullar af merkingarlausum hjálparyrðum svarar hann með því að benda á að hið sama eigi við um sálma: „til sanns“, „með sann“, „greina skal“ og ótal fleiri — „Er þá furða þótt rímurnar hefðu þetta líka?“ Níels segir að rímnahættir hafi oftast verið brúkaðir til að „segja sögur í hendingum“ og sé ekkert skáldskaparsnið eins vel til þess fallið. Hins vegar viðurkennir hann að ofbjóða megi málinu með dýrum háttum. Til kosta rímnaformsins heyrir, að dómi hans, að versin eru stutt, svo þegar tunguheppinn hendingasmiður bindur mikið í hverju þeirra, prýðir þau með snotrum kenningum, stuttum en heppnum, gefur þetta lesendunum smekk og ánægju, en verkinu það kúnstarlíf, sem hvorki getur í þeim nýinnleiddu útlendu né heldur miðaldarkvæðalögum vart um orðið. (65) Fram kemur að meiningarlaus hjálparyrði, göp, bjagaðir ljóðstafir, sundur- slitnar nrálsgreinar, hártogaðar kenningar og ónáttúrlegar hugmyndir hafa verið fundnar rímum til foráttu, og tekur Níels undir að allt séu þetta gallar á rímum því hann kveðst vonast til að lítið sé af slíku í hans eigin verkum (68). Úr þessum merka formála skal loks minnst á tvennt í viðbót, hið fyrra varðar eiginleika íslenskrar tungu og hið síðara eiginleika skáldskaparins. Ní els segir að þj óðtunga okkar hafi tvo eiginleika sem aðrar þj óðtungur vanti og séu þeir (a) „ríkidæmi af samstöfum“ og (b) „efni til bæði Eddukynjaðra og nýgervings kenninga“ (66). Öfundarmenn af öðru þjóðerni ráðleggja okkur að draga úr okkur þessar tennur, svo við fáum ekki í þær tannpínu, vegna þess þær spruttu ekki í þeirra gómum. (...) og skal mig aldrei furða, þó hegranum sé illa við vatnið, þegar eg gef mér tíma til að aðgæta, að hann er ekki fitfugl. (66) Minnir þetta lof íslenskrar tungu á lof evrópskra endurreisnarmanna um þjóðtungur sínar (s.s. Sidney, Du Bellay og Bembo, sbr. Baldwin, 27-38). En um skáldskapinn almennt segir Níels litlu síðar: Tveir eru fullkomleikar þeir, er eg þykjumst bera skyn á, að skáld- skaparmenntinni séu svo eiginlegir sem jafngamlir. Sá eini er hug- smíðakrafturinn eður bílætasmíðin, hinn annar tungustyrkurinn, að færa hrærandi orðatiltæki, að þau geti markað spor í þenkjandi sálum. En þegar þetta er hvorttveggja ffá, finn eg ei hvað eftir er, og ekki veit eg, hvað þeir vilja láta finna verkum sínum til lofs, sem hvorugt þetta stunda. (66-67) 40 TMM 1994:3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.