Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Page 51

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Page 51
ísak Harðarson Atvinnulaus snillingur Það var eins og allir verstu og illgjörnustu púkar alheimsins hefðu bundist samtökum um að ofsækja Indriða Haraldsson snilling á sama tíma. Honum fannst hann vera innikróaður — umlukinn óyfirstíg- anlegum hindrunum, fjallháum vonbrigðum, marglæstum dyrum — hvert sem hann snéri sér. Það gátu ekki verið neinar tilviljanakenndar ytri aðstæður sem ollu slíkum ósköpum. Bak við þau hlutu að standa lifandi og raunverulegir árar og andskotar, draugar og djöflar, sem höfðu það að markmiði að eyðileggja Indriða Haraldsson snilling fyrir fullt og allt. Og þeir réðu greinilega ríkjum alls staðar — jafnvel hér á Vinnumiðlunarskrifstofunni. „Því miður,“ sagði rauðnaglalakkaða, geðvonskulega konan, með rödd sem líktist snörpum hurðarskelli. „Ef þér hafið aðeins unnið sem verktaki á síðasta ári, þá eigið þér ekki rétt á neinum atvinnuleysisbót- u um. Indriði Haraldsson snillingur var loksins kominn fremst í röðina við afgreiðsluborðið effir hálftíma bið, og að baki hans hlykkjaðist löng runa atvinnulauss fólks á öllum aldri og úr ólíkustu starfsgrein- um, næstum alla leið út í kuldann og slabbið á gangstéttinni fyrir utan skrifstofuna. Von Indriða dofnaði enn. Var hann kominn hingað til þess eins að finna enn eina hurðina skella á nefið á sér? Rauðnaglalakkaða konan horfði framan í hann eins og éljagangur. Ætlaði hann ekki að þakka fyrir og fara? Það var meira hvað sumir voru tregir. „Hvert sögðuð þér aftur að starfsheitið væri?“ spurði hún loks með semingi. Þrátt fyrir allt var Indriði nógu mikill snillingur til að skynja að spurningin var aðeins borin fram til kurteislegra málamynda, svo það breytti engu þótt hann segði sannleikann. „Snillingur,“ sagði hann hátt og snjallt. „Ég er snillingur og hef TMM 1994:3 49
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.