Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Page 82

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Page 82
þar sem hún setur sig, að því er virðist að tilefnislausu, í telpuleg- ar stellingar. Hún fer út úr kofan- um og heldur berfætt yfir hrjóstrugan íslenskan berangur. Þar rekst hún á jarmandi lamb. Hún snýr aftur heim i kofa til þess að segja móður sinni frá því sem hún hefur séð, en finnur Sigurlínu sofandi í rúmi Steinþórs. Hér er ætlun Mattssons að skapa skarpar andstæður milli gleði og vonbrigða, en honum tekst ekki vel upp. Besti hluti atriðisins sýnir Sölku loka dyrunum á sofandi móður sína, sem er táknrænt fýrir þau tengsl sem skorið hefur verið á. Persónusköpun Sigurlínu í myndinni veldur einnig vonbrigðum. Lýsing- ar Laxness á henni vekja viðbjóð með lesendum sem hneykslast á sjálfselsku hennar og afskiptaleysi þegar Salka er misnotuð. En lesandinn hefur þó ávallt samúð með henni vegna þeirra rauna sem hún gengur í gegnum. í kvik- myndinni deyr barnið hennar ekki úr eitlaberklum og dauðasenan nær því ekki trega og viðkvæmni skáldsögunnar, þar sem hún heldur á skóm drengs- ins. í kvikmyndinni er líka að finna virðingu fýrir þeim dauðu, sem stangast á við lýsingu Laxness. Meira að segja Jóhann Bogesen tekur ofan hattinn og fer með bæn. Mattsson hefur eflaust fundist lýsing bókarinnar of harðn- eskjuleg til þess að hægt væri kvikmynda hana. Læknirinn, sem skoðar lík Sigurlínu, hlær í sífellu út í annað og strákurinn Angantýr sparkar í kviðinn á líkinu. Einn „fjölskyldufaðir" lætur þau orð falla að „illa sé farið með svona góða skó að væta þá,“ meðan annar bætir við að hann skilji ekki „hvað fólk getur verið að væta sig að óþörfu“ (Salka Valka 209). Angantýr kemur aðeins fýrir í síðari hluta myndarinnar. Og þegar Salka sakar hann um að hafa sparkað í kvið móður sinnar eru forsendurnar horfnar. Mattsson felldi líka niður lokakafla Þú vínviður hreini, þar sem prófasturinn tekur saman ævi Sigurlínu í minningarorðunum: „Sigurlína Jónsdóttir. Fædd, samkvæmt kirkjubókunum. Dáin, samkvæmt dánarvottorði. Hm. Hélt mikið upp á einn sálm ...“ (Salka Valka 214). Af þessum ástæðum er Sigurlína myndar- innar aðeins skuggi af þeirri persónu sem Laxness skapaði. Steinþór er eina persóna myndarinnar sem fylgir lýsingu bókarinnar. Stærð hlutverksins og ágætur leikur Erik Strandmarks gefa glöggt til kynna frumstæða skapgerð sem er hrottafengin og full af sjálfsfyrirlitningu. Steinþór sýnir líka á sér aðra hlið í atriðinu þar sem hann gefur Sölku hringinn. Þar sjáum við vott af viðkvæmni í manni sem annars er lýst sem illmenni. 80 TMM 1994:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.