Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Síða 99

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Síða 99
Snöggvast fannst gamla manninum þetta vera sjónvarpsviðtal. „Já, það var reyndar hálfgerð tilviljun. Sjáðu, ef ég hefði verið búinn að láta athuga hjartað í mér eins og til stóð, ég trassaði það víst, þá hefðum við kannski aldrei sést. En þegar ég fór var hann tekinn til við að rannsaka hjörtun.11 „Og manstu þá hvernig hann kom þér fyrir sjónir?“ „Hann doktor Jósep Jóseps? Ég er nú hræddur um það. Hann var allra manna hofmannlegastur, stífgreiddur og stífpressaðar buxurnar, það hefði mátt skera með þeim hákarl. Alveg heiðursmaður. Og sannfæringarkrafturinn ótrúlegur, ekki annað hægt en hrífast með, hár og herðabreiður, fjarskalegur að vallarsýn. Hornspangargleraug- un þykk og augnaráðið ýtið.“ „Fleira?“ Umhugsun: „Ja, þeir sögðu að það rigndi í nasirnar á honum. En það fannst mér ekki mjög áberandi.“ „Þú gleymir höfuðatriðinu.“ „Höfuð, mmm, já, auðvitað! Hvernig læt ég. Hann var með vængi! Ég gleymi þeim. Risastóra, hvítgullna vængi. Eini maðurinn sem ég hef kynnst um dagana sem hafði vængi. Það sindraði á þá, þeir blöktu þegar hann gekk um gólf. Afar tígulegt.“ „Já, ég veit,“ sagði álfdísin. „Fannst þér ekkert undarlegt að hann skyldi hafa vængi?“ „Ja, þetta var nú ákaflega mikill læknir, það var ljóst. Ég held bara að það hafi þótt eðlilegt að hann hefði vængi. Og líka þetta, þú veist kannski, það var á allra vitorði að hann reykti hvorki né drakk nokkurn tíma. Og svo fór hann alltaf í klukkustundar heilsubótarflug- ferð seinnipartinn, alla virka daga. Feikilega sérstakur maður.“ „Og mikið talað um vísindi hans, var það ekki?“ „Þú getur nærri. Maðurinn hafði starfað árum saman í Ameríku- löndum vestur, það held ég nú. Það var sagt að hann kynni fleiri vísindi en nokkur annar. Og rannsóknirnar sem þeir höfðu stundað vestur þar, ég skal segja þér, það var búið að sýna og sanna að þær væru áreiðanlegri en Guð sjálfur! Og þá þótti mikið sagt. En þetta var sannað. Áreiðanleikinn var slíkur.“ „Og var læknirinn ánægður með þig?“ Nú hnussaði gamli maðurinn. „Hnehei. Hann tók mig strax svo föstum tökum að slíks voru fá TMM 1994:3 97
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.