Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Side 120

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Side 120
áfram á tilfmningunni fyrir að ekki sé allt með felldu og honum er ekki hleypt í sannleikann fyrr en nokkrum síðum fyrir bókarlok. Eftir það verða bæði les- andi og Heimir að endurmeta það sem á undan fór, því allt var það metið og lifað á þeirri forsendu að Heimir væri einkasonur. Bókin tekur í einu vetfangi hamskiptum og verður ekki söm aftur fremur en söguhetjan. Sælir eru einfaldir Til að lesandinn missi ekki trú á verkinu og afskrifi það sem innantóma afþrey- ingu að hinum óvæntu uppgötvunum fengnum, þarf bragð sem þetta að vera einhvers virði í sjálfu sér. Það þarf með öðrum orðum að felast eitthvert raun- verulegt innihald, einhver dýpri merk- ing, jafnvel víðari skírskotun, í ætterni Heimis og dauða Jóhanns Svavars. Sú er í grundvallaratriðum raunin, flétta bók- arinnar vekur ótal spurningar, ekki að- eins um þýðingu fjölskyldutengsla og blóðbanda, heldur einnig um siðferði og gildi sannleikans fyrir sjálfsmynd okkar og samskipti við aðra. Allt verðug við- fangsefni. Og þar sem bókin er í megin- atriðum vel byggð, ekki síst hvað speglanir áhrærir, hlýtur það að velta á atriðum eins og stíl, persónusköpun og niðurlagi hversu vel sagan þolir spennu- fallið. Viðbrögð Heimis við hinum nýju forsendum einkennast fyrst og ffemst af ósegjanlegum létti, eins og hann kallar það, því hann taldi sig „loksins skilja hvers vegna Jóhann hafði farið.“ Sam- kvæmt því er bókin aðallega um bræðrabönd, þau virðast standa Heimi nær en uppruninn, þar er þá meginhluti fjórðu hæðarinnar. Þannig kemst hann að þeirri niðurstöðu að hann geti með engu móti farið að kalla „foreldra“ sína Stefán og Auði eins og Jóhann hafði gert: „Ég mátaði þessi nýju nöfn við tunguna. Nei, það gekk ekki upp. Um seinan að ætla að breyta því. Hún var mamma. Stefán var pabbi." Þessa yfirlýsingu mætti túlka sem nokkurs konar trúar- játningu fullorðins manns. Jóhann Svavar hatast við fósturfor- eldra sína fyrir skollaleikinn en getur samt ekki fengið af sér að leiða Heimi í sannleikann, þótt hann geri tilraun til þess. Blekkingin varð Heimi til góðs að mati hans sjálfs, hún gaf honum forskot sem Jóhann Svavar „átti aldrei mögu- leika á að vinna upp.“ Jóhann kiknar hins vegar undan sannleiksbyrðinni. Samkvæmt því virðist blekkingin, grandaleysi um upprunann, mikilvæg forsenda þess að geta tekið ástfóstri við fósturforeldra sem væru þeir blóðfor- eldrar; það er nauðsynlegt að trúa. I þeim skilningi miskunnar Jóhann Svav- ar sig yfir Heimi, „Bartimeus hinn blinda", deyr jafnvel fyrir hann með full- trúa veraldlegs valds á hælum sér, eins og sumir dóu fyrir mannkynið forðum. Ósegjanlegur léttir Heimis er skiljan- legur, en þó hefði mátt undirbyggja við- brögð hans betur og dýpka. Hann tekur afhjúpuninni af fullmikilli léttúð, jafh- vel þótt tekið sé tiUit til þess að hann hefur eignast sína eigin fjölskyldu og hafið nýjan lífshring með Jóhanni Svav- ari: „Fjarlægðin jókst jafht og þétt með hverjum deginum sem leið og mér fannst undarlegt að heyra rödd Jóhanns dofna og hverfa loks saman við hjalið í syni mínum.“ En þótt Heimi sé lífs- nauðsyn að yfirgefa byggðarlag fortíðar- innar, þá getur þessi íhuguli mennta- maður vart leyst málin með slíkri skemmri skírn, öUu líklegra er að hann muni halda áffam að velta vöngum yfir uppruna sínum og æskusvíma svo lengi sem hann lifir. Raunar er gefið í skyn í framhjáhlaupi á síðustu síðu bókarinn- ar að Heimir muni vitja þessa máls á ný: 118 TMM 1994:3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.