Vesturbæjarblaðið - 01.09.2008, Blaðsíða 1
Íþrótta- og tómstundaráð hef-
ur samþykkt tillögu Kjartans
Magnússonar borgarfulltrúa um
að kannaðir verði möguleikar
á því að setja gervigras á Stýró,
malbikaðan sparkvöll við Öldu-
götu. Með því væri bætt úr brýn-
ni þörf barna og unglinga fyrir
sparkvöll með mjúku yfirborði í
Gamla Vesturbænum.
Kjartan hefur um árabil barist
fyrir bættri aðstöðu fyrir íþróttir
og hreyfingu barna og ungmenna
í Vesturbænum. Hefur hann
m.a. bent á að aðstæður barna
og ungmenna til íþróttaiðkunar
séu slæmar í Gamla Vesturbæn-
um og að hann sé nú eina hverfi
borgarinnar þar sem ekki finnst
sparkvöllur með mjúku yfirlagi,
þ.e. grasi eða gervigrasi. Á síðasta
kjörtímabili flutti Kjartan tillögur
á vettvangi borgarkerfisins um
lagningu sparkvallar í hverfinu en
þær hlutu ekki náð fyrir augum
þáverandi meirihluta.
Tveir sparkvellir eru í gamla
Vesturbænum en þeir eru báðir
malbikaðir og fremur litlir. Nú er
unnið að hönnun viðbyggingar
og lóðar Vesturbæjarskóla og er
ætlunin að þar komi battavöllur
(upplýstur, upphitaður og afgirt-
ur sparkvöllur með gervigrasi)
þegar gengið verður frá lóðinni
við lok framkvæmda. Nú vill
Kjartan kanna möguleika á því
hvort einnig sé unnt að bæta hinn
sparkvöllinn í Gamla Vesturbæn-
um, þ.e. völlinn við hlið Gamla
Stýrimannaskólans við Öldugötu.
Á fundi íþrótta- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkur 26. ágúst var
samþykkt, að tillögu Kjartans, að
kanna möguleika á því að setja
gervigras á umræddan sparkvöll.
Hverfisráð Vesturbæjar fagnaði
á síðasta fundi sínum tillögu Kjart-
ans. ,,Slík aðgerð myndi bæta úr
brýnni þörf fyrir sparkvöll með
mjúku undirlagi í Gamla Vestur-
bænum. Enginn slíkur völlur er
til staðar í hverfinu í dag,” segir í
bókun ráðsins.
Vill hækka hitastig í
barnalauginni
Íþrótta- og tómstundaráð hefur
samþykkt tillögu Kjartans Magnús-
sonar borgarfulltrúa um að ráðist
verði í aðgerðir til að hækka hita-
stig í barnalaug Vesturbæjarlaugar.
Margir Vesturbæingar hafa um
árabil kvartað yfir of lágu hitastigi
í barnahluta Vesturbæjarlaugar.
Vegna uppbyggingar laugarinnar
er lítill hitamunur á milli djúpu
laugarinnar, sem notuð er til
áreynslu og sundiðkunar, og grun-
nu laugarinnar þar sem ungviðið
buslar og leikur sér. Afleiðingin er
sú að mörgum finnst grunna laug-
in vera of köld stóran hluta ársins
og hún nýtist því ekki eins vel og
hún gæti gert ungum og öldnum til
leikja og ánægju. Hefur fjölskyldu-
fólk í Vesturbænum í einhverjum
mæli sótt í aðrar laugar borgarinn-
ar eða út á Seltjarnarnes þar sem
eru ylvolgar busllaugar.
framh. bls. 2.
9. tbl. 11. árg.
SEPTEMBER 2008Dreift frítt í öll hús í póstnúmer 101 og 107
- bls. 14-15
Bernskuminningar
Ólafs Hauks
Símonarsonar
Vilja sparkvöll við Öldugötu
Nýlenda, nú á Árbæjarsafni, stóð við Nýlendugötu 31. Á þessum slóðum, vestast í Reykjavík, var þá þyrp-
ing tómthúsmannabýla, mest torfbæir, en smám saman tóku timburhús við af þeim. Þeir sem þar bjuggu
stunduðu sjóróðra á opnum árabátum og unnu þess á milli við það sem til féll í landi, m.a. fiskverkun. All-
margar fjölskyldur, ekki síst konur, tóku fisk af útgerðarmönnum og verkuðu hann heima við. Nýlenda er
steinbær, þ.e. langveggir hússins eru hlaðnir úr tilhöggnu grjóti en að öðru leyti er húsið úr timbri.
Fyrstu íbúar hússins voru Gísli Jónsson tómthúsmaður, kona hans Katrín Magnúsdóttir og Kristjana dóttir
þeirra. Á vertíðum stundaði Gísli útræði á árabátum.
borgarblod.is
1
M
er
ki
o
g
le
tu
r
Merki og letur
Grafískt tákn
LETUR
LITIR
Avenir LT Std 35 Light
Pantone Black 6
CMYK 50-0-0-100
Merki án slagorðs
Merki með slagorði
Merki án slagorðs
Merki með slagorði
ABCDÐEFGHIJKLMNOPQRSTUVXYZÞÆÖ
abcdðefghijklmnopqrstuvxyzþæö
123456789!@#$%&/()=*„“?,;:”
ABCDÐEFGHIJKLMNOPQRSTUVXYZÞÆÖ
abcdðefghijklmnopqrstuvxyzþæö
123456789!@#$%&/()=*„“?,;:”
Avenir LT Std 85 Heavy
Grafískt tákn
�����������������������������������������
St
af
ræ
na
p
re
nt
sm
ið
ja
n
49
04
verð pr. kg.
A
fs
lá
tt
ur
m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t
Læri 1298 - Hryggir 1498
Lifur 198 - Hjörtu 249 - Nýru 99
Lambakjöt -nú um helgina 26/9 - 28/9af nýslátruðuúr kjötborði