Vesturbæjarblaðið - 01.09.2008, Síða 16
16 Vesturbæjarblaðið SEPTEMBER 2008
borgarblod.is
Hvað skiptir mestu í lífinu, hvert er æðsta og mikilvægasta verkefnið? Lífið er flókið en
það er um leið svo einfalt að barnið
skilur það. Hvernig rötum við um
stigu þessa lífs og hver leiðbeinir
okkur? Yfir okkur dynja upplýsingar
alla daga, allan ársins hring, um það
hvernig okkur beri að lifa til þess
að við verðum hamingjusöm, upp-
lýsingar um hvað okkur vanhagi um
og hvað við ættum að kaupa til að
fullkomna hamingjuna. Í auglýsing-
um eru lagðar fyrir okkur tálbeitur
í þaulhugsuðum orðum og útpæld-
um myndum. Við erum líka mötuð af
margvíslegri hugmyndafræði í skól-
um og víðar og sagt að hamingjan
felist í þessu eða hinu. Og við leitum
flest að hamingjunni.
Um hvað snýst lífið? Hvað skiptir
mestu? Ég ætla ekki að skilgreina eða
telja upp það sem okkur er sagt í fjöl-
miðlum eða menntastofnunum um
hamingjuna en ég vil gjarnan skoða
með ykkur hvað mikilvægasta bók
veraldar, Biblían, hefur að segja um
það sem mestu skiptir, þessi bók sem
lagt hefur grunn að hugmyndafræði
meirihluta mannkyns. Í Biblíunni
eru margskonar ráðleggingar. Sam-
kvæmt gyðinglegri, rabbínskri hefð
eru 613 mizvot eða boð í Mósebók-
unum fimm. Þar má finna reglur um
nánast allt milli himins og jarðar. Eitt
sinn spurði fræðimaður Jesú um það
hvert væri æðst allra boðorða. Fræði-
maðurinn hafði þá þegar heyrt Jesú
tala við hóp manna um tvö aðskil-
in mál sem enn eru fólki hugleikin,
efnahagsmál annars vegar, um það
hvort gjalda ætti keisaranum skatt
og svo eilífðarmálin eða upprisuna
hins vegar. Nú vildi fræðimaðurinn
fá hnitmiðað svar og honum varð að
ósk sinni. Jesús vitnar í Gamla testa-
mentið í svari sínu og flytur þekktan
texta sem allir Gyðingar kunnu, texta
úr 5. Mósebók (6.4.). Hann grípur til
texta sem kallaður er Shema á hrebr-
esku og merkir: heyr, hlustið, takið
nú eftir. „Heyr Ísrael! Drottinn er vor
Guð; hann einn er Drottinn!“ Svo not-
ar hann annan texta úr 3. Mósebók
18.19, umorðar hann og segir: „Og þú
skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu
hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum
huga þínum og öllum mætti þínum.
Annað er þetta: Þú skalt elska náunga
þinn eins og sjálfan þig. Ekkert boð-
orð annað er þessum meira.“
Með þessum tilvitnunum dregur
Jesús saman kjarna þess sem máli
skiptir í þessu lífi. Hann setur þetta
efst og þá fellur annað í skuggann og
margt af því, sem við skiljum ekki í
Biblíunni og teljum ekki eiga heima
þar, hættir að skipta máli, eins og til
að mynda lögmálið auga fyrir auga
og tönn fyrir tönn. Af fyrrgreindum
613 mizvot skipta því aðeins tvö höf-
uðmáli. Jesús setur þessi tvö boðorð
um elskuna efst á blað og býr til úr
þeim eitt sem við köllum Tvíþætta
kærleiksboðorðið. Það er eins og
þráður spunninn úr tveimur þáttum
sem báðir fjalla um að elska, fyrri
þátturinn um að elska Guð, hinn síð-
ari um að elska aðra og að hafa heil-
brigða sjálfsmynd. Orðin úr Mósebók-
unum voru rituð á hebresku og Jesús
talaði arameísku en orð hans voru
síðar rituð á síður Nýja testamentis-
ins og þá á grísku. Blæbrigðamunur
er alltaf á merkingu orða þegar þýtt
er á milli tungumála. Frumtextinn á
hebresku segir í raun þetta um að
elska náungann og sjálfan sig: Þú
skalt elska náungann „því hann er
maður eins og þú.“ Hér erum við öll
minnt á samkenndina, það að setja
okkur í spor annarra og muna það á
hverri tíð að hver einasta manneskja
á þessari jörð er maður eins og ég og
þú. Menn sem teljast til mikilmenna
og hinir sem við köllum skúrka - og
allir þar á milli - eru menn eins og
við. Þú ræður mestu um það hvers-
konar manneskja þú ert eða verður,
hvort þú lætur hið góða ráða í lífi
þínu eða hið illa. Landamæri hins illa
og góða liggja ekki úti í hinum stóra
heimi, milli islam og kristni, austurs
og vesturs, norðurs og suðurs, held-
ur milli góðs og ills í hjarta þínu og
mínu.
Æðst og mikilvægast
Sérhæfð meðferð
á vönduðum fatnaði
Kæru viðskiptavinir
Sumt breytist, annað ekki. Í kjölfar eigendaskipta og
sameiningar Hraða við aðrar hreinsanir tökum við upp nýtt
nafn: Þvottahúsið Faghreinsun.
Það sem ekki breytist eru gæðin, verklagið og meðhöndlunin
á fatnaðinum þínum. Við tókum við góðu búi, mjög hæfu
starfsfólki og traustum og góðum viðskiptavinahópi.
Við erum mjög þakklátir fyrir allt þetta og leggjum metnað
okkar í að halda áfram og gera enn betur.
E
H
F.
Sérhæfð meðferð á vönduðum fatnaði
Ægisíðu 115 sími 552 4900
Viltu vinna í þínu hverfi?
Leikskólinn Hagaborg, Fornhaga 8, auglýsir eftir leikskólakennurum
og/eða starfsfólki með aðra uppeldismenntun. Einnig er óskað eftir
starfsfólki með menntun í listgreinum, s.s myndlist eða tónlist.
Hagaborg er fimm deilda leikskóli á tveimur hæðum. Útisvæðið við
leikskólann er rúmgott og gefur ágætt svigrúm til fjölbreyttra leikja
auk þess sem góður íþróttasalur er á efri hæðinni. Hjá Hagaborg
fer fram alhliða leikskólastarf með áherslu á hreyfingu, málrækt og
frjálsan leik. Við viljum að lífið í leikskólanum okkar einkennist
af vináttu, trausti og hlýju.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Sigurðardóttir leik-
skólastjóri í síma 551-0268 eða á netfanginu hagaborg@leikskólar.is.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um störfin á heimasíðu
Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að
vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Leikskólasvið